Vikan - 21.12.1978, Blaðsíða 44
Blái fejmn
Jólabrúðurin
í kringum jólin er talsvert um brúðkaup og því
datt Bláa fuglinum í hug að fá að fylgjast með
þegar verið var að leggja síðustu hönd á að útbúa
brúði í versluninni Hjá Báru.
o Hvernig viltu líta út í
brítúkaupi þinu? Vissulega viltu
að þessi dagur verði þér og brúð
gumanum el'tirminnilegur.
Kannski viltu vera í hvítum kjól
með slöri og tilheyrandi eða i kjól
sem þú getur notað áfram eftir
brúðkaupið. Af nógu er að
taka. Vandinn er bara að velja
rétt. þannig að þú finnir sjálfa
þig, finnir að í þessum kjól sérlu
nákvæmlega eins og þú hafðir
hugsað þér á brúðkaupsdaginn
þinn. I>etta er einmitt sá dagur
sem ætti að varðveitast i minn
ingunni. Dagurinn sem þú vilt
að hann geymi sérstaklega i
liuga sínum, lika þegar þið eruð
orðin gömul og barnabörnin eru
komin í heiminn. Þess vegna er
vandi að velja rétl. Höfuð
búnaðurinn er ekki siður mikið
atriði í heildarsvip brúðarinnar
og hvernig hún ber hann. bví
skaltu gefa þér góðan tíma þegar
komið er að þvi að velja brúðar
útbúnaðinn.
Hárgreiðslan, sem þú velur,
fer að sjálfsögðu eftir þinni eigin
„týpu”, kjólnum og ekki sist
höfuðbúnaðinum.
Andlitssnyrtingin er lika
sjálfsagt atriði til að heildar
svipur brúðarinnar verði
fullkominn, að ógleymdum
höndunum sem verða i sviðsljós
inu. Mundu að allir vilja fá að
sjá hringinn.
Iljá frú Báru Sigurjóns fékk
ég þær upplýsingar að verð á
brúðarkjólum væri mismunandi
og færi það að sjálfsögðu eftir
þvi hve mikið væri lagt i efni,
snið og skraut. Algengt væri að
Hárið lagfært áður en
höfuðbúnaðurinn er festur á.
Hárgreiðsluna annaðíst Dúddi.
brúðarkjólar kostuðu frá kr. 45
þúsundum.
(iuðrún Ingólfsdóttir, Snyrti
stofunni ('löru, sagði að andlits
snyrting kostaði kr. 2800 og
handsnyrting það sama.
Dúddi, Hárgreiðslustofunni
Suðurlandsbraut 10, kvað
mismunandi verð á hárgreiðslu
og færi það nokkuð eftir sídd
hársins og hvaða aðferð vreri
notuð við greiðsluna en óhætt
væri að segja að meðalverð væri
3200 krónur.
o
.. .. .. .. ..