Vikan - 04.01.1979, Page 6
VÖLVUSPÁ
Hvað gerist árið 1979? spurði
Vikan um síðustu áramót, og sem
fyrr var það hin eina sanna völva
Vikunnar, sem reyndi að svala
forvitni lesenda. Við skulum til
gamans tína til örfá atriði úr spá
hennar fyrir síðasta ár:
Um kosningarnar: „Alþýðuflokk-
urinn mun vinna mest á------------
þeir verða hinir óumdeilanlegu
sigurvegarar kosninganna, og það
eru nýju mennirnir, sem skína
skærast. Annað mál er, hvort þeim
nýtist þessi sigur.”
Um þingmennsku Karvels: „Ég
held ekki, að Karvel muni sitja
næsta þing.”
Um framtíð Samtakanna: „Ég vil
engu spá um framtíð þeirra, alls
engu.”
Um aronskuna: „Það eru
málamiðlunartillögur Gunnars
Thoroddsen, sem verða til umræðu,
en þær verða ekki framkvæmdar á
næstunni, ekki árið 1978.”
Um efnahagsmál: „Ég spái
versnandi ástandi í þeim málum —
-----þessi vandamál setja verulega
svip sinn á þetta ár — — —
íslendingar auka enn við skuldir
sínar, og verðbólgan hægir ekkert á
sér.”
Um veðrið: „----------sumarið
með betra móti.”
Ýmislegt: — — hæst ber
vitanlega kjör Friðriks Ólafssonar í
stöðu forseta alþjóða skáksam-
bandsins.” „--------ég vil sérstak-
lega nefna popptónlistina, því þar
verður mikið að gerast-------.”
Erlend málefni: „Vegur Carters
fer hins vegar vaxandi, og hann nær
betri tökum á þeim vandamálum,
sem við er að fást. Það er einkum
eitt tiltekið mál, sem verður honum
rós í hnappagatið.” — —
ófriðlegt víða á Spáni. Indira
Gandhi nær auknum áhrifum á
Indlandi.--------.”
Við látum þessa upptalningu
nægja og snúum okkur að árinu
1979. Verður það gjöfult ár til
sjávar og sveita? — svo notað sé
viðeigandi orðbragð á tímamótum.
6 Vikan i.tbl.
Við gefum völvu Vikunnar orðið en
rétt er að geta þess, að viðtalið er'
tekið fyrir miðjan desember:
— Ég verð að viðurkenna, að ég
horfi ekki björtum augum til
komandi árs, ekki þó beinlínis með
kvíða heldur. En ég held ekki, að
árið 1979 verði talið til merkisára
fyrir margar sakir, hvorki hér heima
né erlendis. Þó tel ég, að a.m.k. einn
atburður verði þess valdandi, að
margir muni minnast þessa árs með
þakklæti og gleði. Ég spái því, að
unnin verði afrek á sviði lækna-
vísinda, sérstaklega í baráttunni
gegn krabbameini.