Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 6
tslenskar konur hafa löngum
verið rómaðar fyrir fegurð. Það
var meira að segja á tímabili
sígild spurning blaðamanna, ef
einhver útlendingur, karlkyns,
rak nefið inn um gáttir íslenskra
fjölmiðla, að spyrja hann hvað
honum fyndist um íslenskt
kvenfólk. Sennilega af því þeir
hafa verið svo vissir um að fá
jákvættsvar.
Hins vegar datt aldrei neinum
blaðamanni í hug að spyrja
útlending af kvenkyninu, hvað
henni fyndist um íslenska karl-
menn. Enda vafasamt að við
hefðum fengið góða land-
kynningu út úr þvi svari.
tslenskir karlmenn hafa allt
fram á þennan tima verið sorg-
lega hirðulausir um útlit sitt.
Kannski er það ekki svo undar-
legt, þar sem sú grundvallarregla
í hirðingu á líkama sínum, að fara
í bað, náði engri almennri hylli á
þvísa landi fyrr en um og eftir
heimsstyrjöldina síðari. Og
konur eru nú einu sinni mun
fljótari að tileinka sér nýja siði
en karlmenn.
Síðan er mikið vatn runnið til
sjávar, en því miður er það enn
alltof algengt, að íslenskir
karlmenn telji helstu einkenni
hinnar sönnu karlmennsku
svitalykt og ruddalega fram-
komu.
En hafa karlmenn sömu tæki-
færi og konur til að bæta útlit
sitt? Til að fá svar við þeirri
spurningu fékk Vikan Bentínu
Björgólfsdóttur snyrtisér-
fræðing, sem rekur snyrti-
stofuna Bentínu, til að sýna
okkur hvaða þjónustu karlmenn
geta notfært sér á snyrtistofum
— og það er Helgi Pétursson
blaðamaður sem hún tekur til
meðferðar.
Bentína stundaði nám í
Englandi, á Henlow Grange
Health And Beauty Farm, sem
er nokkurs konar heilsumiðstöð,
þar sem hægt er að stunda allar
tegundir líkamsræktar, og á
Spáni.
— Það færist mikið í vöxt, að
karlmenn notfæri sér þá
þjónustu, sem við höfum upp á
að bjóða, sagði Bentína. —
Annars er það einkenni á
íslenskum karlmönnum, hvað
þeir eru yfirleitt feimnir og spé-
hræddir, og það er alltof út-
breiddur misskilningur, að það
6 Vlkan 20. tbl.
sé eitthvað óskaplega „kvenlegt”
að fara á snyrtistofu.
— Þó er stór hluti af þjónustu
okkar einmitt fólginn í almennri
heilsurækt, sem er alveg jafn-
mikilvæg fyrir karla og konur,
eins og t.d. líkamsnudd, andlits-
nudd, vatnsnudd og fót- og
handsnyrting. Og það er einmitt
þessi þátturinn, sem karlmenn
eru nú að uppgötva.
— Tökum til dæmis fót-
snyrtingu. Heilbrigðir fætur eru
undirstaða almennrar vel-
líðunar. Fótamein hafa meira að
segja sín áhrif á andlitið. Hafi
maður stöðugan sársauka í
fótunum, koma kvaladrættir í
andlitið.
— Algengustu fótameinin eru
líkþorn, fótraki og sveppir. Og
það er aldrei of oft brýnt fyrir
fólki, hversu hættulegt það er að
klippa hornin á tánöglunum
Handsnyrting — og Helgi virðist háHhræddur við tækin hennar Bentínu.