Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 24
Myndlista-
og handíðaskóli íslands
fertugur
Hæfir
hverjum
handverk sitt
Á þessu herrans ári 1979 á ein af menntastofnunum þjóðarinnar
merkisafmæli. Það er Myndlista- og handíðaskóli íslands, en
hann verður fertugur á þessu ári.
Skólinn var stofnaður af Lúðvík Guðmundssyni árið 1939 sem var
fyrsti skólastjóri hans. Þá nefndist hann Handíðaskólinn og var til
húsa í djúpum kjallara að Hverfisgötu 57. Það húsnæði var hvorki
stórt né rúmgott, aðeins fjórar kjallarastofur þegar allt er talið.
Um tíma var hann í eigin húsnæði á Grundarstíg 2a, þar sem
hann var lengst á þessum tíma og síðar svo í leiguhúsnæði á
Laugavegi 18. Skólinn var í upphafi einkaskóli, en hlaut þó styrki
frá ríki og borg fyrir þær deildir hans, sem útskrifuðu kennara.
Árið 1942 var nafni hans breytt í Handíða- og myndlistarskólinn,
en 1965 hlaut hann núverandi nafn, Myndlista- og handíðaskóli
íslands. Þá var hann fluttur í núverandi húsnæði að Skipholti 1 og
orðinn ríkisskóli, en það varð hann árið 1964.
Fyrsti kennari og jafnframt aðalkennari hans var Kurt Zier. Hann
starfaði þar frá '39-'49 en fór utan og gerðist rektor Odenwald-
skólans í Svartaskógi í Þýskalandi. Hann kom síðan aftur hingað
til lands 1961 og varð þá skólastjóri Handíða- og myndlista-
skólans til ársins 1968. Kurt Zier lést árið 1969. Óhætt mun að
segja að hann hafi mótað skólann meira en nokkur annar maður,
og mun skólinn verða með minningarsýningu á verkum Kurts
Zier á afmælissýningu skólans nú um miðjan maí.
IMú í dag mun eitt stærsta vandamál skólans vera húsnæðis-
vandræði, en þetta fertuga afmælisbarn hefur ekki enn fengið
eigið þak yfir höfuðið. Þar er ótrúlega að málum staðið frá hendi
yfirstjórnar menntamála í landinu, þegar þess er gætt að skólinn
hefur útskrifað flesta af mestu listamönnum þjóðarinnar. Skólinn
er til húsa núna í byggingu, sem upphaflega var hugsuð fyrir
skrifstofur og er ekki vafamál að hún myndi nýtast betur sem
slík. Kennsluhúsnæði er í þremur mismunandi húsum og ekki er
innangengt milli þeirra. Dreifing á nemendum og kennurum er til
mikils óhagræðis og á mörgum stöðum vantar jafnvel smáatriði
eins og vaska í stofur og fleira. Að sögn Björns Th. Björnssonar
hafa staðið yfir í allan vetur viðræður við Menntamálaráðuneyti
og Fræðsluráð Reykjavíkur um hentugra húsnæði, þar til byggt
verði yfir skólann, en engin lausn er ennþá í sjónmáli. Óskandi
væri að þessu merka af mælisbarni verði meiri sómi sýndur í
framtíðinni og hann verði ekki hornreka íslenskra menntamála.
baj
Margrét Jenný Valgeirsdóttir.
íaugum
Annars árs
nemendur
í Myndlista-
og handíðaskóla
íslands í
augum hver
annars.
24 Vikan 20. tbl.