Vikan


Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 50

Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 50
^ ttrt A NANCI HELGASON HEILLARÁÐ FYRIR HANDLAGNA Þegar ð að méla með rúllu er ráð að þekja bakkann með plasti. Þegar verki er lokið er lítið mól að svipta plastinu burt, og bakkinn er jafn hreinn og fyrr. Ef ó að geyma mólningar- bursta í nokkra daga, ón þess að hann þorni, skuluð þið stinga honum i plastpoka, tœma pokann af lofti og hnýta fyrir opið. Þegar búið er að móla eitthvert herbergið er snjallt að fylla hreina flösku undan nagla- lakkseyði eða skögljóa með dólitlu af mólningunni og merkja flöskuna. Bindið pensil við flöskuna og geymiö ó góðum stað að grípa til ef þarf að pensla bletti eða sór. Lítil ílát af þessu tagi er auðveldara að geyma heldur en stærðar málningardósir með kannski svolítilli slettu ó botninum. Ef þið þurfið að geyma mólningu er til bóta að draga eitt pensilfar með litnum utan ó dósina. Þó er fljótlegt að sjó hvað er i dósinni. Oft er þægilegra að hafa mólninguna í minni ilótum en dósunum, sem hún er keypt i. Skerið ofan af hreinni mjólkur- femu og þið hafið ógætis dall undir mólninguna, auk þess sem brúnir fernunnar eru betri til að strjúka úr penslinum heldur en dósarop. Notið naglalakkseyði til þess að nó burtu ýringi ó fötum. Leyfið eyðinum að vinna i fóein- ar minútur, nuddið siðan blettina með klút og þvotið i volgu sópuvatni. Yfirleitt flýgur mólningin úr, jafnvel þó langt só liðið sfðan hún ýrðist ó fötin. Þegar ó að móla gluggakarma er hór róð til að losna við að skrapa slettur af rúðunum ó eftir: Vætið dagblöð i volgu vatnið og leggið ó rúðurnar, þannig að blöðin hylji þær alveg út I hornin. Pappírinn ó að tolla ó rúðunum þar til verkinu er lokið. Leggið ólpappir ofan ó mólninguna i dósinni til þess að hindra að skón myndist. Einnig er róð að loka dósinni vandlega og geyma hana svo ó hvolfi. Til þess að eiga hægara með að kaupa gluggatjöld eða annað i róttum litatónum við nýju mólninguna ó herberginu, er viturlegt að taka með sér svolitla spýtu, til dæmis ispinna- spýtu, með málningu á endanum. Þó fer ekkert ó milli móla með litinn. Reynið að nó málningu af andliti og höndum með matarolíu. Hún fer ekki illa með hörundið. Þegar verið er að móla loft er róð að skera gamlan tennisbolta í tvennt og skera hann þannig til að megi festa hann ó hald burstans. Boltinn tekur þó við dropum, sem kunna að leka niður eftir burstanum. Til þess að draga úr málningarlykt skuluð þið setja tvær teskeiðar af vanillu í hvern fjórðung lítra af mólningu. Engin hætta er ó að liturinn breytist við það. Ef skrúfa er orðin laus á sinum stað mó prófa að stinga eldspýtu í skrúfganginn og skrúfa svo skrúfuna aftur i. Einnig mó prófa að dýfa skrúfunni i lim, svo að hún haldist betur föst, eða þið getið vafið fóeinum vafningum af stálullarþróðum um skrúfuna. Sé erfitt að skrúfa skrúfu lausa skuluð þið hita enda skrúfjórnsins rækilega óður en þið reynið að beita því. Einnig mó reyna að væta skrúfuna i peroxiði og lóta það liggja ó i nokkrar mínútur. Nuddið kalki ó enda skrúf- jórnsins, þó rennur það síður til í skrúfuraufinni. Ágætt róð til þess að dempa hóvaða i húsinu er að setja sjólf- límandi snepla ó horn og brúnir hurðanna í eldhússkápunum og þið eruð laus við alla leiðinlegu skellina. Beríð gólfbón ó snjóskófluna, og snjórinn flýgur af henni, og snjómoksturinn verður léttari. Notið stórt, gamalt sigti til að dreifa sandi ó hóla gangstótt. Það er auðveldara og drerfingin verður jafnari en ef hendurnar eru eingöngu notaðar. miðjunni. benti hann hikandi og rétti Luke bókina. Á vinstri siðuna var löng blaðagrein limd föst. „Það voru fleiri, sem skrifuðu um málið,” sagði Morlais Jenkins titrandi röddu. „Og einnig myndir. En þetla var greinin, sem ég kaus að geyma. . . frá bæjarblaðinu..." LuKE tók varla eftir þvi sem sagt var við hann. Úrklippan lyktaði eins og gömul dagblöð, en feitletruð fyrirsögnin varáberandi. SLYS í ABERMORVENT Luke fór með bókina að glugganum, þar sem sólin skein inn. Hann byrjaði hægt að lesa greinina: SLYS t ABERMORVENT Gærdagurinn var sorgardagur fyrir ibúa Abermorvent, þegar þrír af bestu mönnunt ba jarins voru bornir til grafar. VVill Prothero, Hywel Davies og John Edvvards voru ekki aðeins virtir menn, en einnig hugrakkir námumcnn, sem settu svip sinn á námuna i Ahermnrvent. Hin sorglega neðanjarðarsprenging, sem olli snöggum og ótímabærum dauða þcirra, mun xtið verða blettur á nám- unni okkar. Við skulum ekki á þessum sorgar- tfmum ásaka neinn einstakan — námu nefndin mun áreiðanlega staðfesta orsök slyssins — heldur samhryggjast fjölskyldutn hinna látnu og biðja fyrir hinum alvarlega særða Gareth Jenkins, sem nú liggur á gjörgxsludeild Bæjar- sjúkrahússins. Syrgjendur við jarðar- förína voru... Luke leit upp frá löngum nafnalistan- um, sem eflir fylgdi. Hann leit á Morlais Jenkins. „Hvað kentur þetta máli föður mins við?" „Ég er hræddur um, að þetta komi föður þinum töluvert við, hr. Owen!" „Hvers vegna?” „Vegna þess” sagði Morlais Jenkins þunglega, „að faðir þinn var ásakaður um að hafa drepið þessa þrjá menn og gert þann fjórða að örkumla aumingja. Sautján ára gamlan námumann, sem var i annað skiptið á ævinni að vinna i námunni!" Hjarta Lukes var þungt sem blý, þegar hann tók bókina upp aftur og las seinni hluta greinarinnar I annað sinn. ... og hiðja fyrir hinum alvarlega sxrða Gareth Jenkins... Háls Lukes var samanherptur. þegar hann leit framan í gamla manninn. „Gareth Jenkins?” Morlais Jenkins leit beint framan i hann. „Já, hr. Owen, sonur minn!" LaMANDI þögn fylgdi, og Luke fann, hvernig hjarta hans barðist. „Gareth Jenkins?" endurtók hann að lokum. „Sonur þinn?” Morlais Jenkins var ákaflega þreytu- legur. Hann andvarpaði mæðulega. „Já, hr. Owen. Aðeins ungur drengur, hann var svo stoltur af að vera farinn að vinna við námuna. Ég hafði vonað, að hann veldi kirkjuna..." Hann hikaði. „Fyrirgefðu mér, þetta hlýtur að vera erfitt fyrir þig, Nú er þetta liðin tið — það er ekki hollt að láta sér dveljast við það sem liðið er.” „Þú þarft ekki að biðjast afsökunar, hr. Jenkins,” sagði Luke hljóðlega. „Ég held, að ég geti skilið, hvernig þér líður.” „Þakka þér fyrir þessi orð. hr. Owen, en ég efast um, að þú getir skilið það." Hann brosti dauflega. „Ég man, að Gareth talaði um að kaupa nýjan liatt handa móður sinni, þegar hann fengi fyrslu launin...” Hann hristi höfuðið. „Þar byrja ég aftur. Fyrirgefðu mér. Ég er heimskur, gamall maður. Trúðu mér, ég er löngu hættur að vera bitur — vegna fortíðar- innar." Gamli maðurinn þagnaði. Að lokum tók hann minnisbókina og lokaði henni. Að gömlu klukkunni undanskilinni var algjör þögn. Luke fannst óþægilegt að þurfa að rjúfa þessa þögn. En það voru fleiri spurningar, sem hann þurfti að fá svarað. „Og eiginkona þín — hvernig tók hún þessu?” Presturinn leit snöggvast upp, en hann virtist ekki geta horfst i augu við Luke. „Frú Jenkins? Ég reikna með, að það sé alltaf verra fyrir mæðurnar þegar svona gerist, en hún hafði trúna til að styðjast við — það höfðum viðbæði.” Það varð aftur þögn, áður en Luke tók til máls. „Hvar er sonur þinn núna?” „Enn í Abermorvent. Þetta er heimili hans, og ég býst við, að hann sé hamingjusamastur hérna. Það tók hann nokkurn tíma að sætta sig við að verða bundinn hjólastólnum til æviloka, og þegar móðir hans lést stuttu seinna — jæja, en ég hafði áhyggjur af honum. En hann hafði innri styrk. Hugrakkur. . .og hæfileikarikur...” Orð gamla mannsins ristu djúpt i sál Lukes. „Ég hefði átt að gera þér viðvart, áður en ég heimsótti þig.” „Nei.” Presturinn lyfli hendinni, um leið og hann mótmælti. „Þetta var eina leiðin fyrir þig. Þú hefur orðið fyrir óþægilegri reynslu. Það er ekkert undarlegt. Ég ætlaði mér ekki að fara að rifja upp gamlar minningar, en þú likist föður þinum svo mikið, að það var eins og ég talaði aftur við hann.” „Ég get skilið það, en ég get ekki séð, hvernig faðir minn kom inn I málið." Gamli maðurinn var nú mjög þreytu- legur, og sviti glitraði i augabrúnum hans. Hann tók upp vasaklút og þurrkaði ennið. „í þvi máli, hr. Owen, vildi ég óska, að ég gæti hjálpað þér meira. En, í hrein- skilni sagt, um það eru aðrir betur færir.” 50 Vikan 20. tbl,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.