Vikan


Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 51

Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 51
PÍLAGRÍMSFERÐ TIL FORTÍÐARINNAR Luke starði undrandi á gestgjafa sinn. Andlit hans varð allt í einu svip- laust og lokað. „Ég myndi biðja Rhiannon um að visa þér aftur til dyra, hr. Owen. En ég held, að ég hafi heyrt í bilnum hennar, nú rétt áðan.” Luke stóð upp, fullur vonbrigða. Það var augljóst, að presturinn hafði sagt allt, sem hann hafði hugsað sér að segja. „Þú mátt ekki gleyma þessu. hr. Owen.” Morlais Jenkins rétti honum gömlu biblíuna. „Gættu hennar nú vel.” Þeir tókust aftur í hendur. „Kannski gætum við rætt saman seinna, hr. Jenkins?” Gamli maðurinn hélt fast í hurðar- húninn. Andardráttur hans var þungur. „Á morgun er sunnudagur, og þá verð ég upptekinn. Presturinn er í fríi. En þú getur litið inn á mánudaginn, ef þú verður hér þá?" „Það verð ég áreiðanlega,"sagði Luke. Þakka þér fyrir samræðurnar. En getur þú gert mér einn greiðann enn, áður en ég fer? Getur þú bent mér á einhvern góðan gististað?” „Látum okkur nú sjá.” Gamli maðurinn hikaði. „Jú. ég veit um góðan stað, u.þ.b. fimm milur frá Aber- morvent. Nationfjölskyldan rekur stað- inn; þær stunda enn kirkju Sharonar. Það er aðeins lítill bóndabær, en hann stendur út af fyrir sig, svo að það er góður staður til að eyða fríinu. Það er því miður enginn sími hér...” „Það er allt í lagi. Ég ek þangað og spyrst fyrir. Ég hef nægan tíma.” „Þú skalt aka þjóðveginn i vesturátt. Þá muntu fara framhjá litlu húsi, sem kallast Rhydewel. Hinum megin við veginn er yfirgefin malargröf. Þar ferð þú inn á afleggjarann að bóndabænum Rhydewel. Þú getur sagt þeim, að ég hafi sent þig. Þar munt þú finna það, sem þú leitar að.” Luke lagði af stað, en snerist hugur í dyrunum. „Það er aðeins eitt, sem mig langar til að biðja um i lokin. Mér þætti vænt um, ef nafni mínu —” „Eins og ég sagði áður, allt sem þú hefur sagt er trúnaðarmál. Guð veri með þér drengur minn.” LuKE ók hægt út úr þorpinu. glaður yfir að snúa baki við námu- þorpinu. Hann átti erfiðara en nokkru sinni fyrr með að ímynda sér föður sinn í þessu umhverfi. Samræður hans við Morlais Jenkins ollu honum bæði undrun og vonbrigðum. Hvers vegna hafði gamli maðurinn ekki viljað tjá sig meira um þátt Enoch Owens í slysinu? Hann hafði auðvitað verið illa fyrir- kallaður, en hann vissi, að Luke hafði komið yfir hálfa jörðina til að öðlast einmitt þessa vitneskju. Þegar Luke kom að mjóum og krókóttum afleggjaranum. var hann orðinn staðráðinn i. að hann þyrfti aftur að ná tali af Morlais Jenkins. Það lifnaði aðeins yfir honum, þegar hann kom inn i fagurt fjallalandslagið. Dökk jörðin var þakin gróðri, og trén bar við himininn. Hann fylgdi leið- beiningum prestsins og sá engin merki um líf, að undanskildum nokkrum kindum. sem dreifðust um hlíðarnar, og örfáum fjallasmáhestum. Nokkrum sinnum sá hann hvit smá- hýsin, sem stóðu við hlykkjótta fjalla- götuna, en hann sá hvergi vatn, og jafnvel árfarvegirnir, sem lágu í fjalls- hlíðunúm, voru þurrir. Hann hugsaði um, hvernig fólki tækist að reka búskap í þessu þurrkasama landi. En hugsanir hans sneru alltaf aftur að blaðaúrklippunni. Þrír menn höfðu látið lífið. Hann mundi ekki nöfn þeirra. Og Gareth Jenkins var örkumla. Hann furðaði sig einnig á því, hvernig Morlais Jenkins hafði komist að orði. þegar hann sagði, að það væru aðrir, sem betur gætu hjálpað honum... Já, en hver? Húsaþyrpingin við Rhydewel saman- stóð af tylft smáhýsa í kringum litla sveitaverslun og ótrúlega stórri kirkju. I.uke ók áfram, þar til hann kom að gömlu malargryfjunni, sem Morlais Jenkins hafði talað um. Hann beygði aftur inn á þröngan torfærustig. Hann fór út úr bílnum og skoðaði veðurbarið tréskilti, sem neglt var á tré. RHYDEWEL BÆRINN — TÖKUM SUMARGESTI — SKOÐUNARFERÐIR Á SMÁHESTUM — EIGANDl: GERAINT NATION. Slóðin, sem lá að bóndabæ Nations, var mjög illa farin. Luke yfirgaf bílinn, gekk yfir götuna og opnaði ryðgað járn- hliðið, sem gaf frá sér eymdarlegt ískur. Framhald í næsta blaði. Ókeypis eyðublöð á afgreiðslunni: Bíll: Sölutilkynningar, tryggingabréf, víxlar, afsöl. Lausafé: Kaupsamningar, víxlar. Húsnæði: Húsaleigusamningar. MtEBIABIB Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Dagblaðið afgreiðsla Þverholti 11 sími 27022 Miðstöð smáauglýsingaviðskiptanna Smáauglýsingaþjónustan. Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022 zo. tbl. Vlfcan f x
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.