Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 40
volvo fréttir
Aukablað
Útgefandi: Veltir hf. Suðurlandsbraut 16
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásgeir Gunnarsson.
1979
Nýlega fyllti Veltir hf, fyrsta tug-
inn, en fyrirtœkið varstofnað 4. sept-
ember 1968. Tilgangurinn með stofn-
uninni var sá að flytja inn og dreifa
þeim vörum, sem Volvo AM í
Svíþjóð framleiðir. Sá innflutningur
hajði áður verið í höndum Gunnars
Ásgeirssonar hf. Veltir hf. er dóttur-
fyrirtæki Gunnars Ásgeirssonar hf.
og Volvo í Gautaborg.
Þegar fyrirtækið var stofnað voru
Volvo fólksbílar í landinu 1190, og
var Volvo þá í 9. sæti af fólksbílaeign
landsmanna. / dag er talan um 4100
fólksbílar, og er Volvo nú í 4. sæti af
fólksbílaeigninni. Tala Volvo vöru-
bifreiða var 1968 454 og var Volvo
ARA ,
'v
þá í 5. sæti. í dag er þessi tala um 650
og 3. sæti.
Af þessum tölum má ráða, að
Volvo nýtur mikilla vinsælda og
trausts á íslandi, og má ef til vill sjá
það best á því, að Volvo 244 var mest
selda fólksbílagerðin á Islandi fyrstu
9 mánuðina á þessu ári.
Veltir hf. hefur því miklu
ábyrgðarhlutverki að gegna, og mun
um ókomin ár leitast við að þjóna
sínum 4750 Volvoeigendum eftir
fremsta megni. 1 því sambandi má
benda á það, að Veltir hf. hefur lagt
ríka áherslu á þjónustuna úti á landi
sl. 6 ár. Nú eru þjónustuverkstæðin
15 að tölu utan Reykjavíkur og hafa
þau bæði viðgerða- og varahluta-
þjónustu fyrir Volvo.
Við hjá Velti hf. viljum á þessum
tímamótum þakka öllum viðskipta-
vinum fyrirtækisins samvinnuna á
undanförnum árum, því án þeirra
væri Veltir hf. ekki til.
VOLVO
afturí
rallýkross
1 fjöldamörg ár hefur Volvo ekki verið þátt-
takandi i rallýum, en er nú aftur að hefja feril
sinn á þessu sviði, og þá með tilkomu Volvo
343, sem virðist vera frábær bill til slíkra
keppna.
Keppnisverkstæðið, sem nefnist Volvo
Competition Service, er undir yfirstjórn
Gunnars Andersson, gamallar keppnisstjörnu
Volvo og Brage Sundström ásamt rallýstjörn-
unni Per Engseth og síðast en ekki síst 12
öðrum aðstoðarmönnum. Volvo Competition
Volvo R-Team á sviöinu í .. Volvohöllinni" rétt
áöur en fyrsta keppnin hófst I Evrópukeppn-
inni í rallý.
grein bílasportsins. Ástæðan er m.a. sú, að Per
Inge Walfridsson vann sænsku rallýkeppnina
á Volvo 343, sem færði Volvo heim sanninn
um það, að Volvo 343 er frábær rallýbill.
Rafmagnsbílar frá
Volvo tilbúnir til
reynsluaksturs í
umferðinni
Nú eru i akstri I Gautaborg tveir nýir
rafmagnsbílar frá Volvo. Hér er um að ræða
tvo reynslubíla, sem Voivo hefur framleitt
og eru fullþróaðir til þess að vera reynslu-
ekið.
Ekki hefur Volvo gert neinar áætlanir um
að framleiða slíka bíla. Á meðan vandamálin
með raforkuna hafa ekki verið leyst, geta raf-
magnsbílar ekki keppt við bensínbíla, segir
Rolf Mellde, tæknilegur fjorstjóri hjá Volvo.
Þessir tveir rafmagnsbílar frá Volvo eru litlir
bílar með mjög lítið utanmál. En þrátt fyrir
smæðina, vega rafmagnsbílarnir 1000 kg. —
heldur meira en litlir bensínbílar. 1/3 af þyngd-
inni er vegna rafgeymanna. Annar þessara
rafmagnsbíla hefur fjögur sæti og er ætlaður
til fólksflutninga. Aftursætið er hægt að fella
fram eins og I „Combi-bíl”. Hinn rafmagns-
bíllinn er hugsaður sem vöruflutningabíll. 1
honum er ekki aftursæti og hann er með stýrið
hægra megin. Dyrnar hjá bílstjóranum eru
rennidyr.
Service ætlar sér nú mikið i þessa sívinsælli