Vikan


Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 45

Vikan - 17.05.1979, Blaðsíða 45
Þrír sérkennilegir draumar Kæri draumráðandi. Mig langar til að biðja þig um að ráða fyrir mig þrjá drauma, sem mér finnast allir mjög sérkennilegir. Sá fyrsti var svona: Mig dreymdi að ég hitti fyrrverandi kærasta minn og ein- hvern veginn þá gerðist það að hann kom með mér heim. Ekki var ætlun mín að hann væri hjá mér yfir nóttina, en honum virtist fnnast það alveg sjálfsagt og svo varð. Ég man ekki eftir að við höfum talað saman. Ég held að allt haf bara gengið þegjandi og hljóðalaust fyrir sig. Svo þegar kvöldið er liðið og ég fer upp í her- bergið mitt til að sofa, koma tvær pínulitlar dúfur, hvítar inn um glugg- ann. Þær voru eiginlega dúkkudúfur ef hægt er að segja það þannig, svo æðis- lega faUegar og þærfugu aðeins um og settust svo á hillu á móti rúminu. Ég get ekki lýst því hvað þær voru fallegar. Svo hlýt ég að hafa sofnað í draumnum því ég man ekki lengra, allt saman svart. Siðan þegar ég vakna (í draumnum) þá er fyrrverandi kærasti minn farinn, en mérfannst hann hafa fýtt sér í vinnuna um morguninn og ekki viljað vekja mig. Nœsta sem gerist er að ég er komin í eitthvert umhverf sem égátta mig ekki á, hvort það var úti eða inni, veit ég ekki. En ég held á kind, hlutfalls- lega jafnlítilli og áðurnefndar dúfur. Kindin var mjög falleg og hún átti að fara að bera og svo átti hún lítið og fallegt lamb. Svo sagði einhver við mig „finndu magann á henni" (kindinni). Hann var alveg sléttur og mjúkur og ég vissi að þessi fæðing hafði tekist alveg sérstaklega vel. Lambið hafði fæðst í fullum vetrarskrúða eða þ.e.a.s. með mikilli ull, sem var svo mjúk, falleg og hrein. Síðan var lambinu stungið ofan í tært vatn ogég vissi að þetta átti að gera, þannig að allt var ósköp eðlilegt, fannst mér. Og á meðan á þessu stóð var ég að hugsa um fyrrverandi kærasta minn. Næsti draumur var þannig: Ég var stödd í húsi vinkonu minnar og við vorum að hagræða blómum. Þarna inni voru allar hugsanlegar tegundir af blómum og sömuleiðis allir hugsanlegir litir á þeim. Það var sama hvert var litið, alls staðar voru blóm. Þriðji og seinasti draumurinn var að ég stóð fyrir utan lögreglustöð í Mig drejmdi bænum X, ogfannst mér hún breytast í stjórnarráðshús í draumnum, hvítt að lit. Efsta hæðin var með stalli sem hægt var að ganga á, nokkurs konar svalir og þar stóðu nokkrir og horfðu á styttu. Ég hugsaði ekki sérstaklega út í þessa styttu fyrr en seinna að ég er komin niður á grasið fyrirframan húsið. Þá, allt í einu, kemur maður eða strákur labbandi með styttuna brotna (styttan var brotin um axlir) og hendir henni á grasið. Ég hugsaði með mér. Frelsisstyttan er brotin! Ég vissi að þetta var Frelsisstytta New York borgar. Eg vona innilega að þessir draumar verði birtir og ráðnir því þeir eru mér mjög minnisstæðir. Með fyrirfram þakklæti. GI Fyrsti draumurinn er fyrir miklu fann- fergi, og einnig þér fyrir mjög góðu. Líklega festir þú ráð þitt fyrr en varir, en það þarf alls ekki að vera að þar verði um fyrrverandi unnusta þinn að ræða, þó er það ekki útilokað. Fjölskyldu þinni mun bætast nýr fjölskyldu- meðlimur innan tíðar og samlyndi innan heimilisins verður óvenju gott og tíðindalitið. Næsti draumur er líka fyrir- boði giftingar, jafnvel ykkar vin- kvennanna beggja. Síðasti draumurinn er fyrir miklum breytingum í þessum tiltekna bæ, liklega stjórnunarlega. Þó getur það verið draumur, sem ekki kemur fram fyrr en síðar, jafnvel mörgum árum. í draumum þessum eru ákveðin tákn til þín um að huga betur að eigin gjörðum og láta þá frekar lönd og leið hvað aðrir hafa fyrir stafni. Þrískiptur sveitadraumur Kæri draumráðandi! Viltu vera svo góður að ráða þennan draum fyrir mig? Hann er í raun og veru í þrennu lagi, en var þó samfelldur. 1. hluti. Við pabbi og mamma vorum í heimsókn á bæ einum í sveitinni heima, þar sem systkini eiga heima. Kœrasta eins bróðurins var hjá okkur. Þá kom kærasti hennar inn og spurði hvort hún væri ekki enn búin að færa okkur kaffi og með því, ogfáraðist hann yfr því að eiga trassa fyrir konu. 2. hluti: Ég og einn bræðranna, sem við skulum kalla V, vorum að fara eitthvað, ég held á landsmót. Þásagði ég við einhvern: „Ég er nú búin að vera hér í 6 ár. ” Ég var þarna sem kærasta hans, en við vorum ekki enn gift. Mér fannst hann vera að verða blindur og sagði hann að það væri eitthvað á bak við augun, sem þrýsti á. það var eins og ekkert væri hœgt að gera við þessu, eða það fannst V að minnsta kosti. 3. hluti: Ári seinna var ég á fóðurgangi ífjósinu heima, kom þá V inn ogfór að einum básnum. Ég er ekki viss hvort ég hugsaði eða sagði að hérna (í fóður- ganginum) hefði ég einu sinni verið með einhverjum, en það hefði nú gerst áður en ég fór að vera með V. Og ég sagði að ég hefði ekki verið með neinum öðrum síðan. Hann sagði ekkert, en kom að glugganum til mín. Mér fannst eins og allt væri að fara út um þúfur á milli okkar, að einhverju leyti vegna sjóndepru hans, held ég. Ég tók hálf hikandi utan um hann og kyssti hann létt, en hann hreyfði sig ekki. Með bestu kveðjum og þakklœtifyrir ráðningu. 7384-6099 Erfitt er að gera sér ljósa grein fyrir hvort draumur þessi er að einhverju leyti vegna hugsana, sem ásækja þig í vökunni. Þó mun óhætt að telja að einkum síðasti hlutinn boði þér eitthvert happ, gjöf eða góðar fréttir. Líklega má sá sem þú kallar V vara sig á öllu laus- læti, því það gæti orðið honum til mikils tjóns. Fyrsti hlutinn boðar hins vegar tilteknu kærustupari góða sambúð og farsæld á öðrum sviðum. 20. tbl. Vikan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.