Vikan


Vikan - 17.05.1979, Síða 43

Vikan - 17.05.1979, Síða 43
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson: Áætlun 3 í fjórum liðum, þar af einum, sem heppnaðist vinna hjá Hinu opinbera mjög eftirsótt. Honum fannst ómögulegt að leggja upp laupana. Áætlun tvö fólst hins vegar í því, að biðja fröken Jórunni um annað starf og bera því við, að hann langaði til þess að kynnast fleiri störfum innan skrifstofunnar, svo hann staðnaði ekki með timanum. Um skeið safnaði hann kjarki til þess að færa það í tal við hana, en hætti svo við allt saman á síðustu stundu, því hann þóttist viss um að hún gæti séð í gegnum það og þá yrði aðstaða hans mun verri. Fröken Jórunn hélt líka uppteknum hætti, að viðbætt- um þrýstingi í bókstaflegum skilningi. Hún lét sér ekki lengur nægja að snerta hann rétt sem snöggvast, heldur þrýsti sér upp að honum og andaði á hálsinn á honum. Stundum svimaði hann, en harkaði af sér og hélt sér í skrifborðið meðannarri hendi. ReIÐARSLAGIÐ dundi yfir, þegar síst skyldi, á miðvikudegi. Þau fröken Jórunn höfðu unnið eftirvinnu, en að henni lokinni bað hún hann að skutla sér heim, því billinn hennar var bilaður. Hann gat auðvitað ekki neitað henni um það, en þegar þau komu að húsinu, sem hún bjó í, spurði hún hvort hann gæti komið inn rétt sem snöggvast og rætt við sig um smávægi- legar breytingar á skrifstofunni. Hann varð meira en lítið undrandi, en lét þó ekki á því bera og varð við bón hennar. Það var hugsanlegt, að nú fengi hann skemmtilegra starf og jafnvel betri laun. Það hlakkaði í honum. Hannes fór ekki úr frakkanum, heldur gekk rakleitt á eftir fröken Jórunni inn í stofuna og settist í sófann. Hún hafði farið úr kápunni og kom með tvö glös af sérríi. Þau skáluðu fyrir skrifstofu Hins opinbera. Fröken Jórunn var óvenju- viðmótsþýð, settist við hlið hans í sófann og lagði glasið frá sér á borðið við hliðina á hans glasi. Hann velti því fyrir sér, hvort hún myndi koma beint að efninu. Næstum í sömu andrá fleygði hún sér á hann, lagði hann eiginlega undir og kyssti hann hvað eftir annað. Hannes greip andann á lofti. Hann var skelfingu lostinn, lamaður af hræðslu og vissi ekki hvað var að gerast. Þetta líktist ógnarmartröð, sem hann fékk ekki rönd við reist. Það var ekki til neins að mót- mæla, því fröken Jórunn gleypti hann næstum með húð og hári. Hún hafði þegar náð honum úr frakkanum og jakkanum. Hann hélt að hún myndi kyrkja sig með hálsbindinu, var óglatt og fékk blóðbragð í munninn. Eftir það var hann blindur hvolpur, en hún skvap- holda og ógnvekjandi. Og gammurinn geysti. Hann kom fljótlega til sjálfs sín, leið hræðilega illa og langaði mest til að gráta, því þetta var allt svo ógeðslegt. Fötin hans voru stórskemmd, nærfötin hvergi sjáanleg og hann lék sjálfur á reiðiskjálfi. Án þess að líta frekar við fröken Jórunni, flýtti hann sér út og heim til sín. Honum gekk illa að aka skikkanlega, lenti óvart yfir á rauðu Ijósi, en hafði heppnina með sér. Sama kvöld hófst gerð áætlunar 3, sem var í sjálfu sér einföld, en krafðist útsjónar- semi. Hann magnaði hatrið upp í sér. skrifstofu Hins opinbera var óvenju stór peningaskápur, vel mann- gengur, staðsettur á ganginum milli Skotsins og skrifstofunnar sjálfrar. I skápnum voru hillur á veggjum, þar sem geymd voru mikilvæg skjöl og verð- mæti. Að sjálfsögðu var skápurinn eld- traustur og meira að segja loftþéttur, svo reykur gæti ekki skemmt neitt, sem í honum var geymt. Fröken Jórunn hafði ein lykil að skáp þessum, en á daginn var hann venjulega opinn og haft á honum sérstakt öryggi, svo hann lokaðist ekki, og það var jafnan haft i flimtingum, að starfsfólkið gæti átt það á hættu að lokast inni í skápnum. Um þennan kostulega skáp spannst áætlun þrjú. ir AÐ liðu tvær eða þrjár vikur frá því fröken Jórunn fékk sínu framgengt og töluðust þau Hannes nær ekkert við. Með sjálfum sér var Hannes sannfærður um, að hún væri að safna orku til nýrrar atlögu og það stappaði heldur stálinu í hann. Á föstudegi bað hún hann að vinna eftirvinnu og hann vissi að stundin var komin. Þau yrðu tvö ein. Klukkan fimm skrapp hann sem snögg- vast niður í anddyrið og stimplaði bæði sig og fröken Jórunni út. Húsvörðurinn varð einskis var og hann læddist aftur upp í Skotið. Eftir réttan hálftíma þóttist hann ætla á klósettið, en í stað þess að fara þangað tók hann öryggið af peningaskápshurðinni, svo hægðarleikur var að skella henni í lás með einu hand- taki. Þegar hann kom aftur inn í Skotið var fröken Jórunn einmitt að ljúka bunka af skýrslum, sem áttu að fara til geymslu í skápnum. Hún stóð á fætur og hvarf fram á ganginn. Hannes læddist þegar á eftir henni og hún var mátulega horfin, svo hann tók undir sig stökk og skellti aftur skáphurðinni. Það small í lásnum, en í sama bili heyrði hann kunnuglega rödd, sem barst frá skrif- stofunni: „Hvaða hljóð var þetta, Hannes?” „Ég er einmitt að huga að því,” laug hann samstundis. Fröken Jórunn kom fram á ganginn. „Hurðin á skápnum hefur víst skollið aftur,” sagði hann, án þess að iíta á hana. „Það á ekki að geta hent sig,” sagði hún. „Kannski öryggið hafi bilað,” stakk hann uppá og reyndi að vera sannfærandi. Hann tók eftir því, að hún hélt á skýrslunum, sem hún hafði ætlað að setja í skápinn. „Ég verð að láta athuga öryggið,” sagði hún og fór inn í Skotið til þess að sækja lykilinn að skápnum. Á meðan gerði hann áætlun 3-B og lét sig hverfa inn á skrifstofuna. Þegar hann heyrði hana koma, fór hann aftur fram á ganginn og horfði á hana opna skápinn. Hann manaði sjálfan sig og gekk ákveðnum skrefum í áttina til hennar, en hún gaf honum engan gaum. Lykillinn stóð í skránni og fröken Jórunn var eitthvað að bogra fremst í skápnum. Hannes Jónsson, skrifstofumaður hjá Hinu opinbera, gaf fröken Jórunni Jens- dóttur, skrifstofustjóra hjá sama fyrir- tæki, vel útilátið spark í afturendann og heyrði hana hrópa eitthvað, en greindi ekki orðaskil, þótt honum fyndist hurðin vera heila eilifð að falla að stöfum. Síðan var allt hljótt. Björninn var unninn. Hann þurrkaði hugsanleg fingraför af skáphurðinni og lagaði til á skrifborðinu sínu. Lyklinum að skápnum stakk hann á sig í öryggisskyni og yfirgaf húsið bak- dyramegin. Hann andaði léttar á leiðinni heim og sá sjálfan sig i anda, skrifstofustjóra hjá Hinu opinbera. HaNNES JÓNSSON, skrif- stofumaður hjá Hinu opinbera, sat í stofunni heima hjá sér, gat ekki horft á sjónvarpið og reyndi að réttlæta verkn- aðinn fyrir sjálfum sér. Það gat engan grunað neitt, þegar um svo fullkomna tækni var að ræða, nema ... Það læddist að honum hræðilegur efi. Fröken Jórunn var alltof klók til þess að láta fara svona illa með sig. Henni gæti þess vegna dottið í hug að skrifa einhverjar útskýringar á blað og þannig náð að hefna sín. Við því var bara eitt ráð. Hann varð að fjarlægja líkið og ganga úr 20. tbl. Vikan 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.