Vikan - 17.05.1979, Qupperneq 67
Aldurinn þeirra
Ólivíu og Jóns
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær
vinkonur og erum alltaf að
rífast. Ég segi að John Travolta
sé 34 ára og ég viti ekki hvað
Olivia sé gömul. En hún segir
að Olivia sé 39 ára og John
Travolta sé 29 ára eða yngri.
Hvort er rétt? Hvernig er
stafsetningin, og hvað heldurðu
að við séum gamlar?
R ogH
Því miður, vinkonan hefur rétt
fyrir sér. Olivia er á fertugs-
aldrinum en Travolta rétt undir
þrítugu. Stafsetningin er sæmi-
leg og þið eruð varla meira en
þrettán ára.
Til þess að
lærapokarnir
hverfi
Kæri Póstur!
Þakka þér fyrir allt gamalt
og gott. Hér hef ég nokkrar
spurningar handa þér.
Hvað get ég gert til þess að
lærapokarnir hverfi? Ef maður
er í megrun, er þá gott að
drekka mikið vatn? Hvaða kex
er lítið fitandi? Sefur maður
betur ef maður borðar ekki
áður en maður fer í rúmið?
Þökk fyrir birtinguna.
S.E
Leikfimi og öll hreyfing er það
árangursríkasta í baráttunni við
lærapokana. Ekki væri
óhugsandi að leikfimi hjá ein-
hverjum þeim aðilum, sem
starfa að heilsurækt, gæti valdið
breytingum á vaxtarlagi þínu
á skömmum tíma. Vatn máttu
víst drekka ómælt, þrátt fyrir að
þú sért í megrun, en allt er best í
hófi. Þú getur víst orðið ölvuð af
átta lítrum vatns á dag! Allt
ósætt kex, hrökkbrauð og slíkt,
er minna fitandi en annað, að
ógleymdu megrunarkexinu, sem
þú færð í apótekum. Það er
mjög fitandi að borða rétt fyrir
svefn og í sumum tilvikum getur
það valdið því að viðkomandi
fær slæma martröð.
Bók náttúrunnar verður ekki skrifuð án tófunnar, segir formaður Tófuvina-félagsins
ínæstuViku
LEIÐIIM
TIL
HIMNA
Vikan kynnir
trúflokka
utan hinnar
íslensku
þjóðkirkju
Flosað af Iffi og sal
20. tbl. Vikan 67