Vikan - 14.02.1980, Side 6
Fjölskyldumál — Guöfinna Eydal
Uppeldi felur í sér að fullorðnir reyna
að breyta barni á einn eða annan veg.
Það er oft bent á að foreldrarnir hafi
mikla þýðingu fyrir uppeldi og þroska
barna sinna. Foreldrarnir móta börnin
með því að hegna þeim fyrir suma hluti,
hrósa og umbuna þeim fyrir aðra.
Foreldrar gera ákveðnar kröfur til barna
sinna, búast við ákveðnum hlutum af
þeim og nota boð og bönn til þess að ná
einhverju settu marki. Allt er þetta gert
til þess að reyna að ala barnið upp.
Oft furða foreldrar sig á því að systkini
séu mjög ólik. Þeir halda því oft fram að
þeir ali börn sín nokkurn veginn eins
upp og skilji þess vegna ekki af hverju
útkoman verður svo ólík.
Það er hægt að koma með margar
skýringar á þvi af hverju systkini verða
ólik en hér verður aðeins drepið á
nokkuratriði.
Börn eru mismun-
andi
Börn fæðast með mismunandi
persónulega eiginleika og þau þróast þar
af leiðandi á misjafnan hátt. Röð barna i
systkinahópi skiptir miklu máli fyrir
þróun þeirra og getur oft útskýrt þann
Af hveiju
verða
sysfkini
mismun-
andi?
mikla mun sem foreldrar tala um. Að
vera elstur í systkinahóp- eða eiga eitt
eða fleiri systkini gerir það að verkum að
börn alast upp i umhverfi sem er grund-
vallarlega ólíkt frá byrjun. Flvaða kosti
og galla umhverfið hefur fyrir barnið er
Þú gætir jafnvel boðið uppáhalds þing-
manninum þínum út að aka.
Kerrur hannaðar með tilliti til f lutninga
á vélsleðum og /
reyndar fleiru:
Vélsleðar:
Citation4500 40 hö. Verðca 1800.000
Everest 500 50 hö. Verð ca 2350.000
Pantera 55 hö. Verð ca 2550.000
Einnig mikið af varahlutum, oliu og fleiru.
Gísli Jónsson & Co. hf.
að miklu leyti háð þvi hvar það lendir i
röðinni.
Viðbrögð foreldra gagnvart börnum
eru mismunandi og skipta barnið miklu
máli, en viðbrögð barna gagnvart
foreldrum skipta engu að síður máli.
Börn þróast oft allt öðruvísi en foreldr-
arnir vonuðust eftir. Foreldrar halda oft
að ákveðnar uppeldisaðferðir móti börn
á ákveðinn hátt. Það er rétt að vissu
marki, en þá skipta viðbrögð foreldr-
anna gagnvart barninu afar miklu máli
fyrir útkomuna og það eru foreldrar sér
oftómeðvitandi um.
Barnið hefur áhrif á viðbrögð
foreldranna alveg frá fæðtngu. Kyn
barnsins hefur t.d. mikil áhrif á hvernig
foreldrar ala börn upp. Þrátt fyrir að
foreldrar haldi þvi oft sjálfir fram að þeir
ali drengi og stúlkur eins upp en að það
hljóti bara að vera „eðlið” sem valdi
því að þau verði ólík og leiki sér t.d. að
bílum og dúkkum er það yfirleitt ekki
rétt þegar að er gáð. Þegar viðbrögð
foreldra gagnvart mismunandi kyni eru
ólík eru þeir sér sjaldnast meðvitandi um
það.
Foreldrar hafa yfirleitt ákveðnar óskir
um að barn verði annaðhvort drengur
eða stúlka. Það hefur lika áhrif á
hvernig barnið er meðhöndlað alveg frá
fæðingu. Útlit og hegðun barns fram-
kallar lika ákveðna hegðun hjá foreldr-
unum. Barn sem er fallegt, rólegt og
sefur vel framkallar allt aðra hegðun hjá
foreldrum sinum en það barn sem er
ófrítt, órólegt og vaknar sífellt.
Foreldrum likar yfirleitt misjafnlega við
börn sín og þeim þykir misvænt um þau
þegar frá upphafi. Margir eiga erfitt með
að viðurkenna slíka hluti af því að það
gefur fólki sektarkennd að viðurkenna
að það elski eitt barn meira en annað.
En það á jafnt við um börn og fullorðna
að sumir falla manni í geð og aðrir ekki.
Fyrsta barn i fjölskyldu hefur hins
vegar alltaf sérstöðu miðað við þau sem
á eftir koma. Það fær lika gjarnan
sérstaka meðhöndlun. M.a. vegna þess
er útilokað að foreldrar geti alið næstu
börn eins upp. Frumburðurinn hefur
alltaf sérstöðu.
Frumburðurinn
Flestir sem verða foreldrar i fyrsta
skipti reyna að kynna sér ýmsa hluti um
ungbörn. Þeir lesa bækur um börn og
meðferð ungbarna, fara á námskeið ef
slíkt er mögulegt, fá upplýsingar frá
vinum og vandamönnum o.s.frv. Fólk
sem hefur kynnt sér málið vel fyrirfram,
áður en barnið fæðist, verður hins vegar
oft fyrir vonbrigðum af því að barnið
verður allt öðruvísi en það hélt.
Hlutirnir verða ekki eins einfaldir og
gert var ráð fyrir og ekki er um annað að
Ég get verið
alveg eins töff og þið!,
Ég skal komast í
þessar þuxur!