Vikan - 14.02.1980, Qupperneq 26
Vikan á neytendamarkaði
Hvað kostar skíða-
útbúnaður í dag?
FYRIR BÖRN OG UNGLINGA:
Austurrísk skifli frá Hagan á 31.700
krónur. Skiðastafirnir eru
svissneskir, frá Leki, á 8.400 krónur.
Skiðaskórnir frá Dynafit, austur-
rískir og kosta 24.600 krónur. Suewe
bindingar frá Austurriki, án stoppara
á 21.900 krónur. Fœst í Skáta-
búflinni við Snorrabraut.
Þar sem þetta blað er helgað
skíðaíþróttinni þótti okkur
tilhlýðilegt að gefa nokkra
hugmynd um hvað skiða-
útbúnaðurinn kostar. Hér er
einungis rætt um skíðin, skíða-
stafina, bindingar og skíðaskó,
en að sjálfsögðu verður
útbúnaðurinn dýrari þegar farið
er að ræða um skíðagalla,
gleraugu, húfur og allt það sem
fæst á markaðnum.
Við leituðum til þriggja verslana i
þessu sambandi. Þær eru Skátabúðin.
Snorrabraut 58-62, Sportval, Laugavegi
116 (við Hlemm) og Útilíf í Glæsibae,
Alfheimum 74. / þessum verslunum er
mikið úrval af skíðavörum og afgreiðslu-
fólk með sérþekkingu leiðbeinir kaup-
endum um val á skíðavörum við þeirra
hæfi. Hér er ekki œtlunin að ráðleggja
eða benda á að eitt sé betra en annað.
við ællum einungis að gefa tesendum
hugmynd um hvað vörurnar kosta idag.
í Skátabúðinni skoðuðum við fyrir
börn og unglinga skíði á 31.700
krónur, Leki skíðastafi á 8.400 krónur.
skíðaskó frá Dynafit á 24.600 krónur, en
unglingar geta einnig keypt skiðaskó
sem ætlaðir eru fyrir fullorðna og kosta
þeir allt frá 27.000-112.000 krónur.
Fyrir fullorðna skoðuðum við compact
skíði frá Kástle á 66.200 krónur, Leki
skíðastafi á 9.200 krónur, skíðaskó frá
Dynafit á 38.400 krónur og bindingar
frá Marker sem kosta án stoppara
29.900 krónur en með stoppara 39.500
krónur. Að síðustu litum við á göngú-
útbúnað í Skátabúðinni, en skíðaganga
hefur færst mjög í aukana á síðustu
árum. Skilom gönguskíðin þurfa ekki
áburð og er sama verð á öllum stærðum,
38.700 krónur. Einnig eru fáanleg
keppnis-gönguskiði frá Skilom’ sem
kosta 67.000 krónur. Stafirnir eru úr
fíber, frá Skilom og kosta 6.970 krónur,
en bambus-skíðastafirnir eru ódýrari,
kosta 3.900 krónur. Skórnir eru frá Jarl
og kosta 26.000 krónur en eru einnig til
hærri og kosta þá 29.000 krónur. Einnig
eru fáanlegir ferðaskór frá Kikut sem
eru sterklegri og vandaðri og kosta þeir
41.900 krónur. Bindingarnar frá
Skilom kosta 4.900 krónur. Væntanleg-
ar eru í Skátabúðina Marker keppnis-
bindingar í svigi og er áætlað að þær
muni kosta um 80.000 krónur.
Næst lá leiðin i Sportval við Hlemm
og skoðuðum við þar Atomic skiði fyrir
börn í stærð L50 sem kosta 35.900
krónur. Þau fást einnig í L10-L40, kosta
33.210 krónur og eru væntanleg í I.70
og munu þá kosta tæpar 40.000 krónur.
Einnig fást skíði frá Cadet i 1.30-1.80 og
kosta þau frá 34.950-48.665 krónur.
Stafirnir frá Dethleffs fást i 1.05 og 1.10
og kosta 3.950 krónur. Bindingarnar eru
frá Salomon á 22.870 krónur og skórnir
frá Caber, fást í nr. 30-34 á 19.850
krónur og nr. 34-39 á 23.850 krónur.
Einnig fást Caber-impact skíðaskór í nr.
39-46 sem kosta 25.440 krónur. Fyrir
fullorðna fengum við Atomic skíði i
1.70-2.00 á 65.520 krónur og einnig fást
compact skíði í 1.60-1.75 á 65.860
krónur. Skiðastafirnir eru frá Dethleffs,
fást í 1.15-1.35, kosta 6.970 krónur og
eru með öryggishandfangi, en á mörgum
stöðum erlendis er skylda að vera með
slíka stafi. Skórnir eru með svokölluðu
„bio-system”, þar sem púði í hæl tekur
mesta höggið af hælnum. Einnig er
veltingur i innleggi sem tekur mesta
álagið af hnénu og kosta skórnir í stærð
39-46 38.950 krónur. Bindingarnar heita
Salomon 444 og kosta 32.440 krónur.
Fyrir kvenfólk er mælt með nettari
skóm sem heita Caber-Elite og kosta þeir
37.880 krónur. Gönguskíðin sem við
skoðuðum heita Atomic-Leader og eru
sérstaklega vönduð. Þau fást i 2.00-2.15
og kosta 62.830 krónur. Einnig eru
fáanleg Atomic-Step skíði, þau eru með
þrepum og þurfa þar af leiðandi ekki
áburð, með stálköntum og kosta 53.660
krónur. Cross gönguskíði eru einnig
með þrepum og kosta 39.870 krónur.
Skórnir eru frá Caber, lágir og ófóðraðir
kosta þeir 14.695 krónur, en háir og
loðfóðraðir kosta þeir 18.655 krónur.
Bindingarnar frá Caber kosta 7.750
krónur.
Að lokum nutum við hjálpar
afgreiðslufólksins í Útilífi í Glæsibæ. Þar
skoðuðum við fyrir börn og unglinga
fíber-skíði frá Alfa, þau eru 1.00-1.75 og
kosta frá 33.500-42.500 krónur. Artis-
Variant skíðin eru tréskíði, fást frá 1.50-
1.75 og kosta 23.000 krónur og einnig
eru til skiði frá K2 og Blizzard sem kosta
frá 45.000-75.000 krónur. Stafirnir eru
frá Ertl, með öryggishandfangi og kosta
6.200 krónur. Bindingarnar frá Look.
með stoppara kosta 28.100 krónur, en
barna og unglingabindingar kosta allt
frá 25.600 krónum upp í 42.000 krónur.
Nordica skiðaskórnir fást í nr. 28-41 og
FYRIR FULLORÐNA:
Austurrísk compact skifli frá Kástle
á 66.200 krónur. Skiðastafirnir heita
Mirage-Leki og kosta 9.200 krónur.
Skórnir austurriskir, Dynafit, á
38.400 krónur og bindingar þýskar,
frá Marker, mefl stoppara á 39.500
krónur. Fæst i Skátabúðinni við
Snorrabraut.
26 Vikan 7. tbl.