Vikan - 14.02.1980, Side 9
Trylltur skíöa-
kennari og brot-
inn ganglimur
Ekki má svo gleyma honum Pétri.
kenndum við Vatnskot í Þingvallasveit.
Pétur er nýlega kominn á fullorðinsár.
þ.e.a.s. orðinn ellilifeyrisþegi. Hann er
ódrepandi skiðabrjálæðingur. sem aldrei
nemur staðar meðan skyggni er og lyftur
ganga. Pétur var með ntér i Lech i
nokkur skipti og eru þær samveru-
stundir hvað minnisstæðastar úr þessum
reisum. Hann kom albrynjaður i
morgunverð og var ætíð fyrstur upp i
brekkur. Sérstaklega lagði hann niikið
upp úr að vera fyrstur á vettvang þegar
nýfallin mjöll lá yfir öllu. Hann vildi
nota púðrið ..áður en helvítis troðararnir
og pakkið eyðilegðu snjóinn". Pétur
hafði yndi af að láta gamminn geysa.
skiða hratt og bremsa nálægt fólki. Einu
sinni var ég á eftir honum á mikilli ferð.
þegar á vegi okkar verður snjótroðari.
Pétur vildi skoða gripinn eitthvað nánar
og nam snögglega staðar i nokkurra
sentimetra fjarlægð frá troðaranum.
Geysimikið fát kom á stjórnandann.
Úlli er dæmalaus húmoristi og gleði-
maður. Þegar ,.fondu"veislurnar voru
haldnar á veitingahúsinu Rauða
veggnum (Die Rote Wand) var liann
forsöngvari og skritluskemmtir.
Vertshús þetta liggur um 4 knt fyrir
utan Lech og er venja að aka þangað á
hestasleðum. Sitja farþegar þá dúðaðir i
teppi. hlýja sér á brjóstbirtu og syngja
við raust.
útopnuðu og splundrar rækilega þessum
lærisveinum skíðalistarinnar. Skiða
kennarinn trylltist við aðför Péturs og
ryðst að honum með lúkuna útstrekkta
og gerir sig líklegan til að hjóla í öldung-
inn. Pétur misskilur aðförina. rennir sér
að manninum, tekur snögglega i
hramminn á honum og segir: Góðan
daginn. Pétur Símonarson. Greinilegt
var að mannskarfurinn hafði engan
áhuga fyrir nafni Péturs en hvæsti á
hann og hafði i hótunum. Ég var
skammt fyrir aftan Pétur: hrópaði á
hann að koma sér á burtu, hvað hann
gerði allsnarlega og dró ekki af.
Pétur er ntyndasmiður góður en gefur
sér allt of sjaldan tíma til að sinna þeirri
iðju í hita og önn skiðamennskunnar.
Eitt sinn var hann að mynda landa I
þægilegri brekku. Myndefnið, þriggja
álna. 90 kg beljaki. bróderaði brekkuna
af mikilli list og hvatti Pétur hann til að
koma nær. Leikurinn endaði með þvi að
fyrirsætan keyrði myndasmiðinn niður
með þeim afleiðingum að annar gang-
lintur Péturs brotnaði við ökklann.
Pétur sá nú frant á að nú væri
skíðamennska fyrir bí að sinni. En þar
sem skórinn hélt vel að. færi gott og
maðurinn hraustmenni, þá renndi hann
sér tvær ferðir á brotinni löppinni. Siðan
renndi hann sér að spitalanum. sem
stendur við fjallsræturnar i útjaðri
þorpsins. Læknirinn spurði nú Pétur,
hver hefði flutt liann þangað. Pétur
kvaðst hafa rennt sér þangað niður.
enda væri þaðgreiðast og hélt þá doktor
inn að Pétur væri vitlaus.
Hér i Lech eru tvær vikur fljótar að
líða. Menn venjast landslaginu og læra
örnefni landslags. sem væri lítils virði ef
það héti ekki neitt. eins og Tómas sagði
I
forðum. Nöfn eins og Madloch.
Rufikopf. Mohnenfluh og Trittkopf
liggja létt á tungunni og gengilbeinurnar
á veitingastöðunum uppi i Oberlech
verða kunnuglegar. Litarfar samferða-
fólksins er nú óðum að breytast úr fölva
í roða og síðan i brúnku sem minnir
helst á hangikjötslæri eða graflax.
Síðasta laugardaginn er vaknað kl. fimm
og haldið í rútu til Zúrich og þaðan yfir
Kaupmannahöfn og heint.
Til Keflavíkur er kornið um
fimmleytiðsiðdegis.
Ríkaröur Pálsson
Sam/okur — Hamborgarar — Lang/okur — Hei/hvertíhorn
Köld borð og hvers konar veisluréttir
SENDUM HEIM
Hann hélt sýnilega að Pétur ætlaði að
keyra á sig. Hann snarstansaði, skrúfaði
niður rúðuna og hellti úr sér runu af
skammar- og blótsyrðum á háþýsku og
mállýsku héraðsins. Pétur skildi náttúr-
lega ekkert en vinkaði i kauða. hrosti og
liélt al' vettvangi á fullum hraða.
Morgun einn fór Pétur á undan mér á
þettingshraða að venju niður þrönga og
isaða brekku. Þarna var samtimis á
ferðinni skiðakennari með fimmtán
manna halarófu á eftir sér. Skipti það
engum togum en Pétur kemur á öllu
1. tbl. Vikan 9