Vikan


Vikan - 14.02.1980, Side 19

Vikan - 14.02.1980, Side 19
það. Væri verkið án vitundar Ivy hlyti Audrey Rose að hafa verið aflið á bak við hana. Pökkuð taska gat aðeins þýtt eitt: Ferðalag. Var Audrey Rose að ýta Ivy til baka til borgarinnar? Heim aftur — og Hoover?'Var þetta ráðagerð hennar? Og ef svo var. hvernig ætlaði hún þá að framkvæma það? Tiu ára stúlka, ein á ferð án peninga? Ótti hennar var staðfestur seinna um morguninn. Ivy vildi fara og leika sér á ströndinni og Janice samþykkti það þar sem Ivy leið miklu betur. Hún sat og horfði á Ivy þegar snöggur gustur blés sandi í augu hennar. Hönd hennar fálmaði eftir töskunni til að leita að bréf- þurrku og eftir að hafa þreifað og ekki fundið hana leit hún niður og uppgötvaði að hún var i ógáti að gramsa í tösku Ivy. Hún fann næstum strax áætlunarból um ferðir lesta — smáblað um ferðir lesta milli New York og Westport. Janice gleymdi sársaukanum í auganu. Hún flýtti sér að fara í gegnum innihald töskunnar og dró fram buddu Ivy. 1 henni fann hún tiu dala seðil. Reiðibylgja fór um hana þegar hún setti bæði tímaáætlunina og peningana í sína eigin tösku, þar sem hún vissi að dóttir hennar hafði tekið þetta þaðan, ekki sjálf meðvitandi um það, heldur sem verkfæri Audrey Rose, sem var i ör- væntingarfullri þörf til að komast til borgarinnar. Til að fullvissa sig spurði Janice Ivy sakleysislega þegar hún kom til hennar: „Eigum við að fara heim, elskan? Til borgarinnar, til pabba?” „Verðég?” „Langar þig ekki til þess?” „Nei, ekki núna, gerðu það?” kallaði Ivy, svo áköf að henni var augsýnilega alvara. Ég verð að fara aftur í skólann. Það er svo margt að ske einmitt núna sem ég get ekki misst af. Á morgun er krýning snjókarlsins, og á eftir verður veisla. Gerðu það, mamma!” „Það er allt í lagi,” huggaði Janice hana og þurrkaði tár af fölu andlitinu. „Auðvitað máttu vera kyrr.” Hún starði í bláu augun sem litu svo hreinskilnislega í hennar og hún var ekki i vafa um hver þjófurinn hafði verið — og hvers vegna. Audrey Rose efldist. Janice kom á Grand Central stöðina snemma kvölds og fann fljótlega leigubíl. Þegar hún kom inn í fjölbýlishúsið fannst henni hún hafa verið burtu mánuðum saman. Hún kom að Bill ljómandi. Hann gladdist yfir góðum árangri dagsins og var í veisluskapi. Hanri tók á móti henni með glaðværð og löngum kossum. Eftir raunir hennar þennan dag var þetta ná- kvæmlega það sem hún þarfnaðist. Það var búið að leggja á borð fyrir tvo fyrir framan arininn. Kampavín var í isfötu. Stór, rauð epli og kaldur. grillaður kjúklingur biðu eftir þeim. Janice var gagntekin. „En yndislegt,” sagði hún. Bill glotti og opnaði flöskuna. Skál hans var fyrir góðum árangri. „Við höfum öll þurft að þola helvíti mikið,” sagði Bill. „Um þetta leyti á morgun verður þetta búið. Og þegar það að lokum er búið skal ég bæta þér það upp, Janice, bæta fyrir allt sem þú hefur orðið að ganga í gegnum. Ég lofa þér því.” Janice fann að hún stirðnaði í örmum hans þegar hann kyssti hana. Hana langaði að útskýra fyrir Bill óttann um að þessu yrði ekki lokið á morgun. Hvað sem gerðist i réttinum liði langur tími áður en þessu væri lokið fyrir Ivy og þau sjálf. En hún hafði ekki kjark til að segja neitt. Klukkan var þrjú siðdegis sama dag og Brice Mack hafði yfirgefið réttar- salinn og gekk niður langan gaginn í áttina að lyftunum. Hann hafði verið á venjulegum fundi með skjólstæðingi sínum, Elliot Hoover. Hann hafði reynt að láta hann skilja að mál þeirra væri næstum því tapað. „Ekki hafa svona miklar áhyggjur,” sagði Hoover ákveðinn. „Hvort sem þú trúir því eða ekki er úrskurðurinn nú þegar til. Hann var skrifaður löngu áður en þú komst inn í málið.” Athugasemdin gerði Brice Mack bókstaflega orðlausan. Hann hafði litið á Hoover sem sérvitring, núna efaðist hann um skynsemi hans. Hann gat samt sem áður ekkert sagt sem gæti breytt fullvissu Hoovers. Þessi fullvissa myndi haldast i minni Macks það sem eftir væri af ævi hans. Lyfta kom og svo önnur og út úr henni kom Reggie Brennigan, sem var fyrrver- andi lögregluþjónn og sá einkaleynilög- regluþjónn, sem Mack hafði ráðið til að rannsaka sjúkrasögu Ivy. Seinna myndi Mack brjóta heilann um þá tilviljun að lyfturnar komu nákvæmlega á sama tíma. „Ah! Þarna ertu, góði minn.” Gamla löggan andaði' daufri vínlykt framan i Mack. „Eger meðsvolítiðhanda þér.” Hann rétti Mack umslag sem innihélt ljósmyndir af skjölum sem voru skrifuð með flausturslegri rithönd. Hann fór i gegnum slatta og stoppaði við eitt. Það var ljósmynd af skjalaopnu og nafnið „Templeton” var prentað þvert yfir framsíðuna. Næstu fimm minútur fékk lög- fræðingurinn nógu margar staðreyndir úr skjalinu til að sannfærast um að þarna lægi varnargarðurinn i máli hans: bráðnauðsynlega frumatriðið sem vantaði. „Hvar fannstu þetta efni?” spurði hann Brennigan, æstur í skapi. „Þar sem það hefur verið síðustu sjö árin — í skjalasafni Park East sál- lækningastofunnar. „Talaðirðu við þessa Vassar lækni?" „Nei, hún er látin. Ég talaði við lækni að nafni Perez. Hann var vanur að aðstoða hana, veit allt um málið.” „Við getum aldrei komið með þetta sem sönnunargagn. Þessi frásögn er trúnaðarmál.” Brennigan tók fram annan skjala- bunka. Það voru ljósrit af skatta- eyðublöðum fyrirárið 1967. Undrun Macks var takmarkalaus. Hann fletti á blaðsíðuna, sem leynilög- reglumaðurinn benti honum á, og fann á tveim línum tilvitnunina til sál- lækningastofunnar og strax fyrir neðan atriðið þar sem Templetonhjónin misstu rétt sinn til að hindra að nákvæm sjúkrasaga Ivy yrði lögð fram sem sönnunargagn. Að sjá manninn með olifulitu húðina koma inn um dyrnar á réttarsalnum rétt fyrir klukkan niu á þriðjudeginum, hræddi Bill Templeton. Hann var viss um að hafa séð þennan mann einhvers staðar. Hann var ekki viss hvar, aðeins að andlitið var kunnuglegt og ósjálfráð viðbrögð hans voru snöggur ótti. Svo þegar Brice Mack stóð upp til að kalla vitni sitt fyrir mundi Bill eftir að þeir höfðu hist á Park East sállækninga- stöðinni þegar Ivy var í meðferð hjá Vassar lækni. „Ég kalla fram næsta vitni mitt,” sagði Mack. „Gregory Alonzo Perez lækni.” „Viltu skýra frá fullu nafni þínu?” spurði Mack vitnið. „Gregory Alonzo Federico Perez.” „Og hvaðstarfarðu?” „Ég er sálfræðingur." Bill fann að Janice greip um hönd hans. „Ertu kunnugur máli sem varðar sjúkling að nafni lvy Templeton. Hún fékk meðferð hjá Vassar lækni tímabilið frá 12. desember 1966 til 23. september 1967?” Scott Velie greip fram í. „Þetta er einkamál, herra dómari." Mack skaut fljótlega inn í. „1 þessu máli er til skjal sem heimilar að gögn læknisinsséu birt.” „Kemur ekki til mála," sagði Velie hvasst, „aðforeldrar Ivy Templeton hafi leyft það, herra dómari.” Mack sagði: „Herra dómari, ég er viðbúinn að bera fram til sönnunar skjöl sem gefa til kynna uppgjöf þagmælsku á milli læknis og sjúklings. „Eitt, krafa samin af hr. og frú Templeton á hendur Manhattan tryggingarfélaginu. Tvö, tryggingar- krafan búin til af Manhattan tryggingar- félaginu fullgerð af Vassar lækni og viðurkennd af tryggingarfélaginu. Og í þriðja lagi hin skrifaða viðaukaskýrsla varðandi sálarröskun Ivy Templeton, sarnin af Vassar lækni og viðurkennd af Manhattan tryggingarfélaginu, allt eftir beiðni Templetonhjónanna." Velie kallaði: „Þaðer ekki marktækt. Það var aðeins gert til að fá tryggingarfé til að borga kostnað við lækninguna.” „Þau geta ekki átt kökuna og borðað hana,” áminnti Langley dómari 7. tbl. Vikan 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.