Vikan


Vikan - 14.02.1980, Qupperneq 18

Vikan - 14.02.1980, Qupperneq 18
Framhaldssaga „IMei. Ég kom með flugvél.” Scott Velie leit á minnisblöð sin. „Nákvæmlega: Flugfélag Indlands. Ferð fram og til baka á fyrsta farrými var borguð af sérstökum, löglegum reikningi á nafni verjandans í Chase Manhattan banka. Eins er með allan persónulegan kostnað síðastliðinn mánuð, sem er núna, að meðtaldri svítu þinni á hótel Waldrof-Astoria, sex þúsund þrjú hundruð og fimmtíu dalir, eða nálægt þvi.” Velie leit upp úr minnisbókinni og leit á vitnið með ruddalegu brosi. „Þetta kallar maður að lifa flott, af manni sem hefur snúið baki við freistingum hins efnislega heims, finnst þér það ekki?” Brice Mack stökk á fætur. Honum blöskraði. En áður en hann gat mótmælt hafði Scott Velie tilkynnt: „Herra dómari, ég mun taka tillit til að kostnaðurinn, sem hr. Pradesh hefur bakað sér og augsýnilega er hóflaus, gæti verið álitinn réttur. En samt sem áður er hér annað atriði, ávísun á löglegan reikning Elliots Hoover að upphæð tuttugu og fimm þúsund dalir og var stíluð á hr. Gupta Pradesh.” Bill tók eftir að Brice Mack var brugðið og hann ráðfærði sig i skyndi viðskjólstæðing sinn. „Ég spyr þig núna, hr. Pradesh," sagði Velie, „fékkst þú I raun og veru svona ávísun?” „Já.” „Og fékkst þú þessa ávisun i skiptum fyrir vitnisburð þinn?” „Ég mótmæli hvernig spurningin er lögð fram,” kallaði Brice Mack, stóð upp og leit á dómarann með svip sem var sakleysið uppmálað. „Ég hafði enga hugmynd um peningaskipti milli sak- borningsins og vitnisins, herra dómari. Hvað sem öðru líður þá segir skjólstæðingur minn mér að peningarnir hafi verið ætlaðir til mannúðarmála en aldrei ætlaðir hr. Pradesh til persónu- legra nota.” „Herra dómari," greip Velie fljótlega fram í. „Ég spurði hr. Pradesh spurningar, ekki verjanda.” Meðan á þessum orðaskiptum stóð var svipur Pradesh eins bliður og rólegur og þess sem hefur farið með sál sína burtu frá heiminum sem honum finnst ómerkilegur og dónalegur. Bill fannst hann vera í dái. En þar sem þessi mikilvæga spurning hljómaði eins og móðgun eða dylgjur var honum að lokuni nóg boðið. Hann móðgaðist augsýnilega, stóð upp I vitna- stúkunni og gekk í átt til dyra. Áheyrendur gripu andann á lofti. Langley dómari stökk á fætur og kallaði „Perez lœknir, segjum svo að barn hafi verið innilokað í brennandi bíl, þar sem gluggarnir voru lokaðir og eldurinn hindraði flótta. Hefur þú lceknisfrœðilegt álit á hvort þessar kringum- stæður gætu framkallað svipuð viðbrögð?” á eftir vitninu sem var að fara: „Stansaðu! Þér hefur ekki verið leyft að fara!” Pradesh flýtti sér meðfram stúkunni að útganginum en dyravörður hljóp á móti honum og tók þéttu taki um fislétt- an líkama hans. Elliot Hoover stökk upp úr sæti sinu og ætlaði að frelsa gamla manninn. Langley dómari barði æfur með hamrinum. „Komið reglu á! Verðir, haldið hinum sakborna í skefjum!" Þrekvöxnu lögregluþjónarnir tveir þurftu ekki viðvörun frá dómstólnum til að skerast í leikinn og flýttu sér að Hoover sinn úr hvorri áttinni. Frétta- mennirnir voru allir staðnir á fætur og einnig kviðdómendur. Brice Mack faldi andlitið í höndum sér. Það sem hafði verið ráðgert sem virðuleg fyrirspurn um trúna á endurholdgun hafði snúist í ruddaleg áflog. Enginn kviðdómur myndi taka þetta alvarlega núna. „Hr. Mack,” sagði Langley dómari hörkulega. „Ég mun láta þig sæta ábyrgð fyrir verk vitnis þíns og skjól- stæðings. Hr. Velie, þú mátt spyrja vitnið spurningarinnar.” „Herra dómari,” sagði Scott Velie, „ég tek spuminguna til baka.” Hann horfði á vitnið með stórkostlegri fyrir- litningu og bætti við: „Ég hef engar frekari spurningar fyrir séra Pradesh!" Þegar Janice og Ivy kom til herbergis sins klukkan þrjú hringdi síminn. Það var Bill í ofsagóðu skapi. „Mál verjandans er hrunið!” kallaði hann og lýsti þvi sem gerst hafði. „Scott Velie vill að þú verðir i réttinum á morgun. Hvernig hefur Ivy það?” „Hún er betri. Hóstinn er hættur!’ „Jæja þá, komdu með hana með þér í bæinn!" Þetta kom Janice á óvart. Hún hikaði. „Hún myndi frekar vilja vera í skólanumn.” „Og ég vil frekar hafa hana heima,” sagði Bill. „Þar sem við getum haft auga með henni.” Janice mótmælti. „En við verðum I réttinum allan daginn.” „Hún verður nær okkur hér en þar. Ég fæ hjúkrunarkonu ef þú vilt það. Allt I lagi?” Æð sló í gagnauga Janice. Ivy mátti ekki fara aftur til borgarinnar en hún vissi ekki hvernig hún ætti að útskýra ótta sinn fyrir Bill þannig að hann sannfærðist um að hún væri ekki aðeins auðtrúa fífl. Allt í einu rétti hún Ivy símtólið og sagði: „Þú skalt tala við pabba, elskan.” Ivy masaði sakleysislega. „En ég get ekki komið heim núna," sárbændi hún. „Á morgun er krýning snjókarlsins og ég get ekki misst af því. Við höfum allar unnið svo mikið við Sylvester. Gerðu það, leyfðu mér að vera!” Bænir hennar unnu smám saman á honum. „Ó, þakka þér fyrir pabbi,” kallaði hún. „Og ekki hafa áhyggjur, mér líður I raun og veru miklu betur.” Ivy leit til Janice. „Já, hún er hér, ég gef henni samband.” „Er þér sama þótt þú skiljir hana eftir þama?” spurði Bill Janice. „Já,” sagði Janice ákveðin. Rödd hans var döpur. „Allt í lagi. Komdu eins fljótt og þú getur. Ég bíð með kvöldmat handa þér.” „Gott.” Janice skellti á og sneri sér að Ivy. „Við verðum að flýta okkur að pakka niður ef við eigum að koma þér aftur til skólans fyrir kaffi.” „Ég er nú þegar búin að pakka,” sagði Ivy dálitið óstyrk. „Manstu?” „Já, Janice mundi eftir því. Það var erfitt að rifja það upp, sérstaklega vegna þess að minningin vakti aftur hræðslu- tilfinninguna sem elti hana miskunnar- laust siðan Bíll fór kvöldið áður. Það sem gerst hafði á — hvað — minna en sólarhring, hafði steypt henni aftur I hræðslu og örvæntingu. Það hafði byrjað á sunnudagskvöldið, eftir að þær Ivy voru komnar í rúmið — Janice í svefnherberginu, Ivy i næsta herbergi. Eftir að hafa boðið hvor annarri góða nótt hafði Ivy spurt: „Mamma, hvað heitir hún?” Janice vissi fullvel við hverja Ivy átti, en samt spurði hún að óþörfu: „Hver?” „Litla stúlkan hans hr. Hoovers.” „Audrey Rose.” Janice fann að Ivy var hugsi. „Það er fallegt. Heldurðu að hún hafi líkst mér?” „Nei,” svaraði Janice snögglega. Svo flýtti hún sér að binda enda á samræðurnar. „Eigum við ekki að fara að sofa núna, elskan?” „Allt í lagi. Góða nótt.” „Góða nótt.” Hún vaknaði við að heitur og bjartur sólargeisli lenti á augum hennar. Rödd kallaði: „Mamma!” Húnsettist upp. „Já, hvaðer að?” Hún brölti fram úr rúminu, hljóp að dyrunum og opnaði þær. Hún sá Ivy standa á náttfötunum á miðju gólfinu í setustofunni. Það var hræðslusvipur á andlitinu og hárið var úfið. „Mamma, dótið mitt er farið. Öll fötin min — kjólar, gallabuxur, allt!” „Farið? Hvað áttu við?" „Því hefur verið stolið!" fullvissaði Ivy hana. „Öllu!” „Þaðer ómögulegt.” „Jæja, athugaðu það sjálf. Einu hlutirnir sem þeir hafa ekki tekið eru fötin sem ég var í I gær. Og kápan mín.” Janice opnaði fataskápinn og sá röð af herðatrjám. Hún fann rakan svita á enninu. Hún sneri sér að kommóðunni og opnaði hverja skúffu til að fullvissa sig um að þær væru tómar. Þá tók hún eftir ferðatöskunni sem stóð framundan rúminu. „Þeir virðast ekki hafa viljað ferða- töskuna þína,” sagði hún og dró hana fram. Hún opnaði smellurnar og lokið sprakk næstum undan þrýstingi. Föt, flöskur.burstar, skór, allt mjög vel pakkað niður. Hún sneri sér að Ivy og ætlaði að spyrja hana um þetta, en hætti við þegar hún sá undrunarsvipinn á andliti dóttur sinnar, svip sem var algjörlega ekta og mjög sannfærandi. „Hver gerði þetta?” spurði Ivy slegin. „Önnur hvor okkar hlýtur að hafa gert það.” sagði Janice rólega. „Éggerði þaðekki!” mótmælti Ivy. Það var enginn efi I huga Janice. Einhvern tima nætur hafði Ivy pakkað niður í ferðatöskuna. Hún var viss um það og það var enginn vafi á að hún hafði enga hugmynd um að hafa gert 18 Vikan 7. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.