Vikan - 14.02.1980, Blaðsíða 10
Erlent
ALLT FYRIR
SKATABUÐIN
SERVERSLUN
FYRIR
FJALLA- OG
FERÐAMENN.o
SNORRABRAUT 58 SÍMI 12045 Rekin af W) Hjálparsveit Skáta Reykjavík
Linda og Jim: Ástin er besta meðalið.
Engill
Það virðist svo sannarlega hafa
tekist að reka djöfulinn úr henni:
Linda Blair, 19 ára, er orðin að fyrir-
myndar stúlku. Linda varð fræg fyrir
leik sinn í kvikmyndinni The Exorcist
(Særingamaðurinn) þar sem hún lék
telpu á valdi Satans. Það var eins og
hlutverkið hefði sín áhrif á hina 15 ára
gömlu Lindu. Hún tók til óspilltra
málanna við kókaínneyslu, drykkju-
skap og kallafar. En nú er sá timi
liðinn og Linda hefur aftur snúið til
fyrirmyndar lífs. Og hún fékk nýtt
tilboð um kvikmyndahlutverk. Hún
stendur nú aftur frammi fyrir
kvikmyndatökuvélunum ásamt rúllu-
skautastjörnunni Jim Bray í myndinni
Rúlluskautabúggí. Hún er fegurri en
nokkru sinni fyrr, drekkur aðeins
mjólk og kóka kóla og er yfir sig ást-
fangin af hinum 18 ára gamla mótleik-
ara sínum. Þar hefur enn einu sinni
sannast aðástin er besta meðalið.
Erlent:
Afkvæmi stjarnanna
Að vísu eru ekki til neinar öruggar
tölur um þau börn sem Hollywood-
stjarnan Marlon Brando hefur getiðaf
sér. En það fer ekki á milli mála að
hann er faðir hinnar 16 ára gömlu
Mayu því þau eru hvað útlit snertir
greinilega steypt í sama mótið. Enda
er Maya árangurinn af hjónabandi
hans og leikkonunnar Maríu Ryan en
Maya 'Brando og Sean Ferrer: Góðir
vinir.
hún var þriðja eiginkona hans. Mayu
langar að feta i fótspor hins heims-
fræga föður síns og gerast kvikmynda-
leikkona. Það má þó segja að hún byrji
algjörlega á neðsta þrepi því að hún
sér um búningana við tökuna á
kvikmyndinni Inchon en þar leikur sir
Laurence Olivier aðalhlutverkið. Hún
eignaðist líka góðan vin meðan á
tökunni stóð, Sean Ferrer, son Audrey
Hepburn og Mel Ferrer.
Linda Blair i myndinni Særinga-
maðurinn.
XO Vikan 7.tbl.