Vikan


Vikan - 14.02.1980, Qupperneq 20

Vikan - 14.02.1980, Qupperneq 20
Framhaldssaga sækjandann. „Þau vildu fá kostnaðinn greiddan og þau mótmæltu ekki að þriðja aðila yrðu gefnar upplýsingar varðandi veikindi barnsins. Þú getur ekki krafist þagmælsku þar, hr. Velie. Mótmælum vísaðfrá.” Brick Mack sneri sér aftur að vitninu. „Perez læknir, þú ert beðinn að leggja fram skjöl Vassars læknis varðandi sjúkling hennar, Ivy Templeton. Hefur þú lagt fram þessar skýrslur?” „Já." Perez rétti honum skjalaum- slagiðsem Bill og Janice þekktu strax. „Herra dómari,” sagði Mack, „ég bið um að allt innihald þess verði lesið á skrá.” Það sem eftir var morgunsins fór í að lesa innihald skjalanna á skrá. Á meðan Bill pantaði hádegismat hringdi Janice I skólann þar sem Ivy var. Ungfrú Alderman svaraði og tjáði Janice að stúlkurnar væru ánægðar og önnum kafnar við að undirbúa Sylvester snjókarlinn, fyrir hina venjulegu krýningu og bræðsluathöfnina sem átti að verða síðdegis. Já, Ivy leið vel. Vildi Janice fá að tala við hana? „Nei, það er allt í lagi,”sagði Janice og fann allt í einu fyrir óskiljanlegum kuldahrolli i upphituðum símaklefanum. „Ég hringdi bara til að vita hvernig hún hefði það.” Á leiðinni til Bills svimaði hana allt í einu. Hún byrjaði að skjálfa, óviðráðan- lega. Góði guð, hvað var að? Það hafði byrjað eftir símtalið, i raun og veru meðan á þvi stóð. Eitthvað sem ungfrú Alderman hafði sagt olli því að henni leiðallt i einu illa. En hvað? Þau voru aftur i réttarsalnum. Brice Mack var ásamt Perez að fara í gegnum minnisskrif Vassars læknis um martraðir JtaipciV Látið Hörpu gefa tóninn. Perlumatt Jökul lakk akl T;':. Alhliða innilaKk ú vffftji, loff. hurðii. glugya og ri húsgögn. I. akkið <!i auðvt!lt I notkun t!g þotnai ú íáeinum klukku stunduni Ivy. Janice heyrði raddirnar eins og í fjarska. Skjálftinn var horfinn en ennþá var kuldahrollur i henni og tilfinningin um aðdómsdagur nálgaðist. „Þann 21. apríl,” var Brice Mack að segja, „er innkoma þar sem segir: ... „glugginn virðist vera aðaltakmarkið ... rúðan er sem hindrun vegna ógurlegs hita. . reynir að nálgast rúðuna án árangurs þar sem hitinn er of mikill . . hrasar til baka, dettur, grætur.. . „Áttir þú viðræður við Vassar lækni um þessa sérstöku innkomu?” „Já, vissulega. Okkur fannst báðum að þetta gæti verið minning um atburð þar sem barnið hefði verið innilokað og flótti hefði haft sársauka í för með sér.” „Voru foreldrar barnsins spurðir um það?" „Það var ekkert í fortíð barnsins sem gat skýrt svona minningu.” „Perez læknir. segjum svo að barn hafi verið innilokað í brennandi bíl, þar sem gluggarnir voru lokaðir og eldurinn hindraði flótta. Hefur þú læknisfræði- legt álit á hvort þessar kringumstæður gætu framkallað svipuð viðbrögð?” „Já, hugsanlega gæti það orsakað svona hegðun.” „Brice Mack sneri sér að sækjandan- um. „Gagnspyrðu.” Rödd Scott Velies virtist þreytuleg. „Perez læknir, i þessari lokainnkomu Vassars læknis er minnst á fyrirmyndir Jungs læknis sem mögulegt svar við hegðun bamsins. Hvað þýðir þessi til- vitnun?” „Kenningin sem hún visar til,” sagði Perez, „er sú sem stingur upp á að í huga mannsins sé hæfileiki til að minnast atburða sem maður hefur ekki upplifað sjálfur — upplifun mannkynsins.ekki einstaklingsins. Það getur hafa verið eina leið Vassars læknis til að skýra hegðun Ivy Temple- ton, þar sem það er engin leið að skýra endurtekningu atburða sem manneskja hefur ekki upplifað, nema maður trúi á endurholdgun." Þarna var það sagt, hugsaði Janice. í fyrsta skipti var orðið i raun og veru sagt á þessum degi. „Trúir þú á endurholdgun, Perez læknir?"spurði Velie. Vitnið hló hátt. „Nei, það geri ég ekki.” Þegar Velie settist niður stóð Brice Mack strax upp til að heyra frá Perez að það væru aðrir visindamenn serft tryðu á endurholdgun. En Bill, sem horfði á kviðdómendur, fannst sem þeim fyndust viðbrögð Perez sjálfs meira sannfær- andi. Næsta vitni, Mary Lou Sides. var feimin kona um fertugt. „Um morguninn þann 4. ágúst 1964, ungfrú Sides,” hóf Mack mál sitt, „lentir þú þá í bílslysi á Pennsylvaniu hringveginum?” „Já.” 20 Vikan 7- tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.