Vikan


Vikan - 14.02.1980, Side 21

Vikan - 14.02.1980, Side 21
Raksl bíllinn sem þú ókst á bíl sem Sylvia Flora Hoover ók og var með dóttursina, Audrey Rose, meðsér? „Já.” „Viltu segja kviðdómendum hvað gerðist þennan morgun um klukkan hálfníu, ungfrú Sides?” „Ég var að aka eftir hringveginum á leið til vinnu. Það var von á óveðri. Þegar ég var um það bil fimm mílur frá vinnustaðnum skall óveðrið á. Það var hræðilegt. Haglkornin voru á stærð við egg. Ég gat varla séð í gegnum rúðuna og var að hugsa um að vikja til hliðar þegar bill kom hemlandi fram hjá mér vinstra megin . . . og ég sá að við mynd- um lenda saman.” Það heyrðist kjökur frá henni. „Báðir bílarnir lentu á varnargirðing- unni. Minn bíll stansaði en hinn fór yfir og lenti á brattri syllu.” Hún þagnaði til að hafa hemil á sér. „Ég man að ég fór út og sá fólk standa á brúninni á veginum, horfandi niður á hinn bílinn. Það kom reykur frá honum og ég sá . . . andlit litillar stúlku við gluggann.. . öskrandi. Síðan varð sprenging. . . og billinn logaði allur.. . það var hræðilegt. Ég gat ennþá séð litlu stúlkuna berja á rúðuna . . . ég sá hana gegnum logana á meðan bíllinn bráðnaði...” Hjarta Janice sló örar. Bráðna? Krýningin og bræðsiuathöfnin. hafði kennarinn sagt. Janice starði yfir til Hoovers. Hann stóð, augu hans virtust loga og leita bak við kjökrandi stúlkuna í vitnastúkunni, að tima og stað þar sem vindurinn blés og börnin hlógu og snjór bráðnaði niður aðhvæsandi logunum.... Horfandi úr glugganum á skólanum, þegar logar varðeldsins sleiktu burtu lögun snjókarlsins, tók móðir Veronica Joseph eftir að ein stúlkan var allt of nálægt eldinum. Ivy? Var þetta Tempietonstúikan? Hvað var barnið að gera? Færa sig hægt nær eldinum? Núna var hún á fjórum fótum. skríðandi! Sér enginn hana? „Stoppaðu!” kallaði nunnan. Hún barðist við að opna gluggann en ryðgaðar krækjurnar voru fastar. Góði guð. barnið var nœstum inni i logunum og ennþá hafði enginn tekið eftir henni! „Stöðvið! Stöðvið hana!" öskraði hún, þreif vasa og braut rúðuna. ..STÖDVID HANA!" Janice og Bill komu á spitalann í Ijósa- skiptunum. Móðir Veronica Joseph og gamall læknir, hr. Webster, tóku á móti þeim og róuðu þau fljótlega. Þau voru fullviss um að sár Ivy væru aðallega fyrsta og annars stigs brunasár og svo hefði hún fengið vægt taugaáfall. „Hún var heppin að vera svona mikið dúðuð og að allur snjórinn var í kring,” hughreysti Webster læknir þau. „Likami hennar var algjörlega ósnortinn. Hún brenndist aðeins i andliti en ekkert sem skemmir útlit hennar til frambúðar.” Móðir Veronica hvíslaði að Janice: „Ég er hrædd um að ég verði að segja þér, frú Templeton, að þetta var ekki neitt slys. Dóttir ykkar gekk bókstaflega og siðan skreið inn í eldinn.” Ivy sat uppi í rúminu. Andlit hennar virtist aðeins sólbrennt. Síða. Ijósa hárið hertnar. va/\ sviðið, stutt og druslulegt. Þegar húnsá /anice^og BjlJ táraðist hún. „Það er allt í lagi; elskan,” huggaði Bill hana. „Hvað kom fyrir mig?” grét Ivy kvalin. „Þau segja aðég hafi gengið inn í eldinn ogég muni ekkert eftir því." Janice íhugaði spurninguna. Hún efaðist aldrei um hver hefði verið á bak við þennan atburð. Eins og Elliot Hoover hafði aðvarað: ..Audrey mun halda áfram að misnota likama Ivy þar til sál hennar verður frjáls. ” Það gat ekkert stöðvað hana, jafnvel ekki tafið hana. Nema... Janice var undrandi á hugsunum ,sjnum; Hút| hikaði við að framkvæma þ^er"vitandi méð vissu að það væri eini jnöguleikinn til að ná árangri. Farðtl varlega, aðvaraði rödd innra með henni. Íhugaðu það vel. Ákvörðun næstu tólf klukkustunda gæti sprengt upp heim þinn. Snöggur ótti greip hana við tilhugsun- ina um áhættuna. Hún myndi missa hann. Hún myndi vafalaust missa Bill. Hún myndi missa allt. ást hans, hjóna- band þeirra. Hana svimaði við tilhugsunina, en samt. Átti hún um annað að velja? Hún hugsaði um Hoover. Hann hafði komið að dyrum þeirra til að bjóða hjálp. Þau höfðu látið setja hann i fangelsi. Hann hafði varað þau réttilega við hvað myndi gerast og þau höfðu látið loka hann inn í klefa. .. Við erum öll hluti af þessu barni. og aðeins viðgetum hjálpað henni." Hann hafði rétt fyrir sér. Aðeins þau. saman. gátu hjálpað henni. Ef Ivy átti að lifa. Þegar Brice Mack kom inn i réttar- salinn næsta morgun vissi hann að hann átti langt í land þrátt fyrir hversu vel gekk með vitnið daginn áður, þar sem vitnis- burður myndaði hlekk milli hins hræði- lega dauða Audrey Rose og martraða lvyTempleton. Þegar hann sneri sér við til að tala við Elliot Hoover beindist athygli hans allt i einu að óvenjulegri kyrrðinni i salnum. Brátt fór þó kliður um salinn. Hann leit upp og sá Janice Templeton skálma ákveðna niður ganginn. Andlit hennar var fölt en lýsti samt ákafa. Hún stansaði og sneri sér að Elliot Hoover. Hann horfði þögull á hana. Brice Mack gerði sér grein fyrir að hvað sem hefði komið fyrir Janice Templeton þá yrði það til góðs fyrir mál þeirra. Hann hafði fundið næsta vitni sitt. Eftirfarandi orðaskipti komu loksins-á MIKIÐ URVAL Allar nánari upplýsingar: PENNAVIÐGERÐIN Ingólfsstræti 2, sími 1 3271 7- tbl. Vtkan 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.