Vikan


Vikan - 14.02.1980, Síða 30

Vikan - 14.02.1980, Síða 30
Draumar Framtíðaráform í draumi Kæri draumráöandi. Mig langar að bidja þig ad ráöa fyrir mig draum sem mér fmnst nokkuö skrítinn og ég er atltaf að hugsa um hann. Mig dreymdi að ég væri byrjuð að vera með strák og ég vœri að segja honum að ég ætlaði að verða skiptinemi í eitt ár og síðan að fara I skóla. Ég sagði honum alla mína framtíðardrauma. sem ég hef aldrei sagt neinum frá. Síðan bauð hann mér í bíó og ég þáði það. Hér vaknaði ég. Mig langar að biðja þig að ráða þennan draum vegna þess að mér hefði aldrei doltið í hug að segja neinum frá fram- tíðaráformum mínum. Dísa Ekki er ólíklegt að inn í þennan draum blandist hugsanir þínar og langanir í vökunni, svo vara- samt er að taka mikið mark á honum. Þó bendir ýmislegt í draumnum til þess að þú eigir marga velviljaða vini sem styðja þig í hvívetna. Þér væri farsælast að tala ekki mikið um þessi framtíðaráform í vökunni, því ekki er fullvíst að þú mætir nriklum skilningi þinna nánustu unt þessar mundir. Afmælisveislan þann 20. Kæri draumráðandi. Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi fyrir nokkru. Mérfannst ég sitja á ! veitingahúsi, með mörgum tómum borðum í sal, ásamt öðrum manni. Við sátum báðir sömu megin við borðið og vorum að drekka kaffi úr bollum og ræða eitthvað saman. Þegar við vorum búnir að drekka stóðum við upp og ætluðum út. Þá sé ég að stutt frá mér situr ung kona, sem ég þekki, ein við borð sem ekkert er á. Hún horfir mjög alvarlega og spyrj- andi á mig og segir: „Kemur þú í afmælisveisluna þ.20?" Ég hélt að ég œtlaði að koma og síðan héldum við áfram út úr veitingahúsinu. Með von um svar fjótlega. Kveðja Þ. Þessi draumur er fyrir ein- hverjum óvæntum breytingum á lífsformi þínu. Oft er það svo, að dreymi mann að hann sé að drekka , eitthvað mun löngu liðinn atburður rifjast upp og hafa furðuleg áhrif á líf viðkom- andi. Öll tálín i draumi þessum benda til þess að um einhverjar skyndilegar breytingar verði að ræða, tengdar fréttum og boðið í afmælisveisluna undirstrikar þá atburði. Maðurinn og konan í draumnum eru tákn fólks, sem við sögu mun koma í þessum atvikum, en um frekari skilgrein- ingu á þeim getur varla verið að ræða, til þess vantar nöfn þeirra og fleiri smáatriði í drauminn. Brúðarslör til hversdagsnota Ágæti draumráðandi. Mig dreymdi ekki allsfyrir löngu stuttan en mjög skýran draum sem mér þætti vœnt um að fá að vita hvort gæti verið fyrir einhverju. Mig dreymdi að frændi minn og kona hans kæmu í heimsókn heim til mín. (Þennan frœnda minn hef ég ekki séð í tœp tvö ár og í vöku get ég ómögulega munað hvernig kona hans lítur út.) Konan hans var í stórrósóttum síðum kjó! með dragsítt hvítt brúðarslör og fannst mér þetta vera brúðarklæðnaðurinn hennar en ég hef ekki hugmynd um hvernig hann lítur út raunverulega. Ég var mjög hriftn af því hvað þetta væri sniðugt að nota brúðar- klæðin eftir brúðkaupið í stað þess að láta þau hanga inni í klæðaskáp, þar sem þau kæmu engum að notum. Lengri var draumurinn nú ekki. Með von um birtingu og þökk fyrir ágætan draumaþátt. Ein sem dreymir sjaldan. Að dreyma brúði merkir yfirleitt sættir og gleði eftir mikið ósamlyndi og deilur. Á einhvern máta virðist þessi draumur tengjast mjög þessari fjölskyldu frænda þíns og ekki er ósenni- legt að þú fáir innan tíðar óvæntar fréttir af einhverjum úr fjölskyldu hans, hvort sem það tengist konu hans eða öðrum nákomnum. Það er ýmislegt sem bendir til þess að þú verðir fyrir þarðinu á einhverjum öfundar- mönnum og gættu þín á að segja ekkert vanhugsað í návist ókunnugra. Faðmlög á skóladansleik Kæri draumráðandi. Mig langar til þess að vita hvort þú getir ráðið þennan draum fyrir mig, þótt hann sé ekki skýr. Mér fannst eins og ég væri fyrir utan skólann sem ég er í og mér fannst þetta vera eftir ball sem var að mér fannst haldið í skólanum. Þetta var ekki skólaball heldur ball fyrir alla eldri en 16 ára. Jæja. Ég stóð þarna upp við vegginn á skólanum en þá kom til mín hálfbróðir stráksins sem ég er svo hriftn af (köllum hann D). Tek það fram að ég hef aldrei verið með þessum strák. Mér fannst eins og við hefðum farið að faðma hvort annað þarna, og ég hugsaði með mér að þetta væri þessi sem ég er svo hriftn af (við skulum kalla hann S). Þegar ég og D vorum loksins hætt að faðmast spurði ég D hvort hann væri bróðir L (L er albróðir S en hálfbróðir D). En þegar ég var að spyrja hann að þessu fannst mér eins og mig langaði til að spyrja hann hvort hann vœri bróðir S, en ég þorði ekki, mér fannst eins og hann hefði fattað að ég væri hrifin af S. Rétt áður en ég vaknaði fannst mér hann segja hreykinn: Já ég er bróðir L. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. S.O.M.G. Að miklu leyti er draumurinn afleiðing hugsana þinna í vökunni og því lítið mark á honum takandi. Þó er ýmislegt sem bendir til að þú ættir að fara varlega um tima í samskiptum við hitt kynið og gæta þess að láta ekki glepjast af fögrum loforðum. Tveir draumar um lífgunar- tilraunir Elsku draumráðandi. Ég ætla að biðja þig að ráða tvo drauma sem mig dreymdi. Mér fannst ég vera í eldhúsinu heima hjá mér og ég sat við eldhúsborðið. Mamma var á móti mér og á borðinu var svartur labradorhundur og hann var dáinn. (Við áttum þennan hund raunverulega hér áður en liann er nú dáinn.) Ég var að reyna að lífga hann við og ætlaði að nota munn við munn aðferðina, en þá var hann svo andfúll og þá vaknaði ég- Hinn draumurinn var svona: Hann var alveg eins og hinn nema á borðinu lá systir mín, en hún er 6 ára. Hún var líka dáin og ég reyndi að lífga hana við og eftir langa tilraun tókst mér það. (Ég man ekkl hvernig égfóraðþví.) bq Sennilega eru báðir þessir draumar fyrir sömu atburðum. Ekki er ólíklegt að svarti hundurinn sé fyrirboði gestakomu og mun þar um einhvern óvinveittan gest að ræða. Honum tekst þó ekki að vinna þér og þínum nokkurt tjón. Systir þín táknar eitthvað sem þér mun takast mjög vel að framkvæma og hlýtur þú mikið lof fyrir vikið. Vikan 7. tbj.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.