Vikan - 14.02.1980, Page 43
dimmum kofanum, annaðist John og
syrgði. Lydia hvarf þegar hun sá reyk
liða yfir borgina. Tara, sem var svcfn
laus, starði inn í eilífðina. þar til Bowers
bankaði á dyrnar. „Þú verður að fara
burtu.” sagði liann. „Þeir eru á leiðinni
að svæla þig út.” Hann beið ekki eftir
svari frá henni en tók töskuna hennar
uppog ýtti henni út. Vagninn skrölti út í
myrkrið. Tara var skjálfandi og þrýsti
baminu að sér. Þá tók hún eftir líkkist-
unni i vagninum.
Þegar þau komu upp á Itæðina sá
Tara brennandi kyndla sem einn af
öðrunt voru settir inn í kofann.
Eftir á gat hún ekki munað hve lengi
þau ferðuðust í vagninum, en loksins
stansaði Bowers. Hún sá að farið var
með hana inn i helli. Hún huggaði grát-
andi barnið á meðan Bowers kveikti eld.
„Ekkert eftir,” sagði Bowers að
lokum. „Þeir hafa rænt öllu."
„Hvað með hina? Mort?"
„Þeir hengdu Itann "
„Hvernig komst þú burtu?”
Hann brosti i fyrsta skipti. „Ég setti
traust ntitt á drottin. systir Tara. Og ég
hljóp eins og skrattinn væri á hælununt
á mér." Hann varð alvarlegur aftur.
„Við komum stjóranum í kirkjugarðinn
fyrir sólarupprás og jörðum hann.
Nokkrir af strákunum verða þar. Og
eftir það komum við þér og barninu i
burtu."
Kirkjugarðurinn i Skagway var
nokkrar mílur frá borginni, þar sem
slóðin lá í norðurátt. Þrir menn. sern
biðu í myrkrinu við hliðina á nýlega tek
inni gröf. komu á móti þeim og hjálpuðu
Bowers með likkistuna. Þeir létu hana
siga niður i gröfina. siðan flýttu þeir sér
að moka mold yfir.
„Það var gaman að þekkja þig. stjóri."
muldraði Bowers hljóðlega. Tara starði
á gröfina og grét vegna mannsins scm
hafði elskað hana, barnsins sem hún
hafði misst og ntannsins sem hún hafði
gifst.
Tara hélt fast utan um John þegar
hún gekk aftur að vagninum þar scnt
hún beið þar til Bowers hafði borgað
mönnunum. Þá fór liann upp i vagninn
og tók í beislistaumana.
„Þú fékkst skipspláss á morgun. á
Columbiu.” tilkynnti Bowers henni allt i
cinu þegar þau siluðust áfrant.
Bowers hafði skilið prestskragann
sinn eftir og dúðaður i frakka var hann
ólikur fylgismönnum Smiths. „El'
einhver stoppar okkur eruni við hr. og
frú Jenkinson og drengur."
Í grárri döguninni var borgin rólcg
eftir nóflaust ofbeldið.
Bowers stansaði við hafnarbakkann
og rétti fram farntiðann. „Charley."
byrjaði Tara en hann greip fram í:
„Þetta er lil þin frá Jeff." Hann lét
hana fá innsiglað umslag. siðan stóð
hann og Itorfði vandræðalegur á hana.
„Jæja. við verðum víst að kveðjasl.
systir Tara," ntuldraði hann.
Hún kinkaði kolli með kökk í
hálsinunt. Hann gekk hratt í burtu og
Tara gekk hægt upp landganginn.
Tár runnu niður kinnar hennar þegar
skipið þokaðist frá bryggju og Bowers
sem veifaði fjarlægðist uns hann varðað
smábletti. Hún var uppi á þilfari og
horfði á Alaska fjarlægjast.
Tara fékk snöggan sting við að fara
frá þessu landi þokufullra fjalla og
frosinna auðna. Hún var búin að gleynta
kvölunum sent hún hafði orðið að þola.
Þetta hafði verið spennandi og örgrandi
heimur og einhvern veginn hafði hún
lifað af — og ekki aðeins lifað af, gerði
hún sér grein fyrir núna. Hann hafði
gefið henni von fyrir framtiðina. Hún
átti John. Hún hafði fengið aftur sjálfs-
virðingu sína. Hún hafði fundið ást
aftur. Og kannski myndi Daniel koma
aftur einn góðan veðurdag....
Hún mundi eftir bréfinu og fór niður
og las það.
Elsku Tara min.
Þegar þú lest þelta er ég látinn. Ég sel
þetta i gódar hendttr ef eitthvad skeður.
Ég vona ad þad verdi aldrei. þvi þaö er
sro margt sem mig langar til ad við
gerum.
Ég elska þig.
Jeff.
Það var líka ávisun upp á eitl hundrað
þúsund dali. Tara starði á ávisunina.
siðan selti hún hana í litlu hendurnar á
John.
„I>etta er handa þér, barnið mitt. Með
ástarkveðju frá guðföður þinuni. Þakka
þér- fyrir. Jeff," hvíslaði hún. „Ég hef
fengið tækifæri til að lifa aftur."
Tveim dögum eftir að Columbia sigldi
áleiðis til San Fransisco tilkynnti Frétta-
blað Skagwavs:
Mordingi Srniths fundinn — byssu-
maöurá launum hjá járnbrautinni:
Maðurinn sem drap Jefferson Smitlt
var nýráðinn starfsmaður hjá járnbraul-
inni.
Hann var gullleitarntaður sent lánið
hafði ekki leikið við og hann hafði verið
ráðinn aðeins sólarhring áður.
En hr. Thomas Tancrede, forstjóri
járnbrautarinnar. neitar að maðurinn
hafi veriðá vegum fyrirtækisins.
„Við erum ekki óánægðir nteð að
sveitarfélagið sé án Sápu-Smiths, en við
réðunt ekki byssumann til að drcpa
liann."
Þegar hr. Thornas Tancrede var
spurður af hverju byssumaðurinn hefði
skotið hr. Sntith sagði hann að það hefði
getað verið „persónulegt".
Byssuntaðurinn dó samstundis af kúlu
frá Sntith eftir að hafa skotið banvænu
skoti.
Talsmenn járnbrautarinnar segja aö
Itann heiti Daniel Kane. 27 ára að aldri
frá San Fransisco.
SCXiULOK
SKÍÐABOGAR
fyrir fleslar gerðir bifielöa
Verð kr. 7.500.-
Allt á sama Stað Laugavegi 118-Simar22240og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HF
7. tbl. Vikan 43