Vikan - 13.03.1980, Blaðsíða 4
Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk veitingahús
Engin
streita
I Matstofu Austurbæjar er hægt að fá
sómasamlegan mat hjá vingjarnlegu
fólki fyrir óvenju lágt verð. Meðalverð
aðalrétta af fastaseðli er 3.200 krónur og
meðalverð tveggja rétta máltiða af
matseðli dagsins er 2.400 krónur.
lnnréttingar Matstofu Austurbæjar
eru hvorki beinlinis smekklegar né
fagmannslegar. Þær eru þó sæmilega
hlýlegar og gefa gott svigrúm. Innan um
nýlega hluti eru nokkur þreytuleg borð
og stólar. Horfnir eru Ijótir básar á
miðju gólfi.
Þarna virðist dálitið um kostgangara
ÞYRSTIR FÁSÉR
Enn ein nýjungin frá M.S.:
MANGÓ
SOPI
friskurog svalandi mysudrykkur,
fullur af næringarefnum.
MJÓLKURSAMSALAN
og húsvini. Andrumsloftið er laust við
streitu. Ég tók eftir börnum umsjónar-
fólks, sem hlupu með öðrum börnunt
milli salar og eldhúss. Þarna þurfti ekki
sérstakt barnahorn.
Streituleysið endurspeglaðist i
vingjarnlegu viðmóti starfsfólks. Ég
krækti mér i öl úr glerskáp á skenknum.
„Viltu ekki heldur kalt öl?” sagði
stúlkan. Ég tek eftir sliku á timum.
þegar fjöldi stúlkna virðist timbraður og
svefnlaus viðafgreiðslu.
Hálf þjónusta
Eins og Laugaás veitir Matstofa
Austurbæjar hluta úr þjónustu. Þú
pantar og tekur þér áhöld og drykki við
skenkinn, en getur svo látið færa þér
matinn til borðs. Þar með þarftu ekki að
standa upp meðan þú ert að borða.
Þetta er auðvitað hátíð miðað við
sjálfsafgreiðslu, þar sem gestir eru á
þönunt fram og aftur eða horfa á aðal-
matinn kólna, meðan súpan er innbyrt.
Þú færð mikilvægasta hluta þjónust-
unnar, þótt matstofan spari sér nokkurn
kostnað.
Segja má, að í Laugaási sé veitt
treikvart-þjónusta, þvi að þar bera gestir
engan mat til borðs. í Matstofu Austur-
bæjar væri þá hálf þjónusta, þvi að mér
virðist. að þar beri gestir rétti dagsins til
borðs. en fái þjónustu meðsérrétti.
Hvorug leiðin jafnast þó á við hina
gömlu og góðu þjónustu. Hins vegar
kann treikvart-þjónustan að vera
heppileg millileið i hraða nútimans og i
tilraunum til að halda niðri verði. Og
mér finnst hún rnun aðgengilegri en
hálfa þjónustan.
í einkunnum minum fyrir þjónustu
veitingahúsa geta þau fengið hæst tíu
fyrir fulla þjónustu. Fyrir treikvart-þjón
ustu gef ég hæst sjö og hæst fjóra fyrir
hálfa þjónustu. Sjálfsafgreiðsluhús fá
auðvitað ekkert fyrir þennan þátt.
Hnífapör eru of veigalitil i Matstofu
Austurbæjar. Ég beyglaði gaffal. Og
hnifurinn átti í erfiðleikum með nauta-
kjöt, sem þó var ekki seigt. Það er
kominn timi tii að fleygja þessu kreppu-
áradóti og fá áhöld. sem eru gerð fyrir
veitingahús.
Hinn fasti matseðill Matstofunnar er
fremur ýtarlegur með ýmsum eggja-
kökum, pizzum, samlokum og hamborg-
urum. Súpur eru aðeins tvær og einnig
fiskréttirnir. Kjötréttir eru sjö. Engir
eftirréttir eru á matseðli. en samt er
hægt að fá smátertur úr eldhúsi veitinga-
stofunnar.
Matseðill dagsins er einnig með
fjölbreyttasta móti. Ég kom tvisvar i
heimsókn nýlega og voru sex réttir á
boðstólum i annað skiptið. sjö í hitt.
En eins og fastaseðillinn er dagseðillinn
fátækur af fiskréttum, nærtækasta
hráefni landsins.
Blómkálssúpa
Blómkálssúpa var súpa dagsins, þegar
ég heimsótti Matstofu Austurbæjar i
hádeginu. Hún hefði verið sæmileg, ef
hún hefði ekki verið örlitið kekkjótt.
Súpa dagsins er innifalin i verði rétta
dagsins, en kostar 700 krónur, sé hún
keypt sérstaklega.
Ýsa
Steikt ýsuflök með hrásalati og
sitrónu voru á þessum seðli dagsins.
Þetta var ágætur matur, enda voru
flökin hæfilega lítið pönnusteikt. mjúk
og mjallhvít að innan. Með fylgdu
ristaðar rækjur og sæmilegasta rem-
úlaði, hálfkaldar hvítar kartöflur,
sítrónubátur, gúrkusneiðar og bæri-
legasta hrásalat. Verðið er 2.000 krónur
og er þá súpa innifalin.
Sfld
Marineruð síld með brauði. smjöri og
lauk var mild og góð á bragðið, einkar
frambærilegur matur. Meðlætið var
svipað og fylgdi ýsunni og laukurinn var
ágætur. Verðið er 1.800 krónur að súpu
innifalinni.
Pizza
Pizza með skinku og sveppum reyndist
sæmileg, miðað við íslenskar aðstæður.
Hún var ekki eins góð og pizzan í Lauga-
ási og langt frá þvi eins og sú á Horninu.
En ég hef fengið margar verri pizzur um
dagana hér á landi. Botninn var of
þykkur, en samt hæfilega stökkur.
Pizzan var ekki brennd, en of bragðdauf.
Verðið er 1.900 krónur.
Nautabuff
Nautabuff með kryddsmjöri,
frönskum kartöflum. hrásalati og
grænmeti átti að vera lítið steikt, en kom
samt rúntlega miðlungi steikt. Ég skil
ekki þann sið islenskra kokka að spyrja
viðskiptavininn um steikingartima og
taka síðan ekkert mark á svórum hans.
Annars var þetta sæmilegt kjöt. tæpast
nógu meyrt og allt of mikið saltað og
piprað.
Með fylgdu linar baunir og gulrætur
úr dós. sæmilegt hrásalat með léttri
eggjasósu. dökkar. en ekki brenndar.
franskar kartöflur og miður gott krydd-
smjör með béarnaise-bragði.
Verðiðer 3.780 krónur.
Lambagrillsteik
Lambagrillsteik með kryddsmjöri,
frönskum kartöflum og salati'var rauiiar
líka með dósagrænmeti og dósasveppum.
Meðlætinu var lýst hér að framan. En
lambakjötið sjálft var mjög gott. mun
minna ofgrillað en venja er hér á landi.
4 Vikan ll.tbl.