Vikan - 13.03.1980, Síða 6
Fjölskyldumál — Guðfinna Eydal
Svona á að nota töfluna:
í dálknum til vinstri eru ólík
aldursstig. Ef barnið er t.d.
átján mánaða á að líta í aðra
röð Gáið svo í miðdálkinn og
merkið við þau atriði sem passa
við barnið. Gætið að því að
það er ekki fyrr en við átján
mánaða aldur að barnið á að
geta allt sem nefnt er. Séu
reitirnir ekki allir merktir og
barnið orðið átján mánaða ætti
að veita því sérstaka umhyggju
og ástúð um tíma.
íafla
yfir þróun
bama á öðru
aldursári
Flest börn þroskast í
samræmi við þessa töflu. En sé
barnið fætt fyrir tímann, eða
hafi verið mjög veikt, þarf það
lengri tíma.
Ef merkt er við einhvern reit
i hægri dálk ætti að leita til
læknis, sálfræðings eða heilsu-
verndarstöðvar. Það kann að
vera um að ræða misskilning.
En það getur líka eitthvað verið
að barninu sem er því léttara að
bæta úr þeim mun fyrr sem það
er uppgötvað.
Aldur Eðlileg þróun Afbrigðileg þróun
H. u. b. lok 15. mán. □ Byggir turn úr 3 kubbum hverjum ofan á öðrum. □ Er enn hrætt innan um ókunnuga. □ Þekkir nafnið sitt og 10 önnur orð. □ Skrafar óskiljanlega með sjálfu sér. □ Skilur: ,,Komdu til mömmu". □ Segir: ,,Vó-vó''eða „bíll". □ Réttir fram höndina ef á að færa hana í föt. □ Getur næstum drukkið úr bolla hjálparlaust. □ Hreyfir leikfangabíl fram og aftur. □ Getur ekki enn borðað með skeið, þó að það reyni það oft. □ Getur ekki „veifað". □ Getur ekki setið sjálft eða staðið, þótt haldið sé við það.
H. u. b. lok 18. mán. □ Þekkir myndir i myndabók. □ Segir stuttar setningar með skiljan- legum orðum. □ Er ekki óstöðugt á göngu lengur. □ Borðar sjálft, þó að mikið fari niður. □ Lætur sem það kunni að skrifa. □ Finnst gaman að fara úr skónum. □ Finnst gaman að rannsaka nýja hluti. □ Skríður uþþ á lága stalla. □ Getur lokað öskju með loki. □ Stendur uþp og leikur sér að bolta. □ Getur ekki bent á neinn líkamshluta á sér. □ Getur ekki enn sagt mamma eða pabbi. □ Er ekki enn farið að ganga.
H. u. b. lok 21 mán. □ Hermir eftir fullorðnum. □ Matar, baðar og háttar brúður. □ Segir einfaldar tveggja eða þriggja orða setningar. □ Þekkir nokkra liti. □ Telur uþþ að tveimur. □ Byggir turn úr 5 kuþþum. □ Þekkir nöfn á h.u.þ. 50 hlutum, jafnvel þó að það geti ekki nefnt þá. □ Horfir um stund í myndabækur og sþyr: ,,Hvað er þetta?" □ Líkir eftir því sem verið er að gera, sóþa, tala í síma, lesa þlað. □ Notar ekki enn orð yfir ákveðin hugtök eins og „bílla", „dúkka" eða „vóvó". □ Getur ekki enn sett einn kubb ofan á annan.
b Vikan ll. tbl.