Vikan - 13.03.1980, Page 9
Pétur Thorsteinsson er fæddur 7. nóvember 1917. Hann lauk
stúdentsprófl 1937, viðskiptafræðiprófi 1941 og lögfræðiprófi
1944. Strax að námi loknu hóf hann störf í utanríkisþjónustunni
og hefur síðan verið sendiherra í fjölmörgum þjóðlöndum. Frá
árinu 1976 hefur hann verið sérstakur ráðunautur í utanríkis-
þjónustunni auk þess að vera sendiherra íslands í Indlandi, íran,
Japan, Kína, Pakistan, Thailandi, Irak og Bangladesh — með
búsetu á íslandi. Eins og að líkum lætur hefur Pétur kynnst
fjölmörgum þjóðhöfðingjum á löngum starfsferli og þegar hann
var inntur eftir hver þeirra væri honum minnisstæðastur svaraði
hann um hæl: De Gaulle, Adenauer og Krúsjeff
Eiginkona Péturs er Oddný Elísabet Stefánsson og eiga þau 3 syni.