Vikan - 13.03.1980, Page 14
Tónlist
Lúðrasveit? Eru það ekki skraut-
klæddu mennirnir sem blása saman í
lúðra á hátiðum — yfirleitt i grenjandi
roki og rigningu? Svo halda margir. En
lúðrasveit er annaö og meira. Á landinu
munu nú vera starfandi 17 lúðrasveitir
og að baki hver.i liggur mikil vinna og
meiri fjármunir en fólk yfirleitt gerir sér
grein fyrir. Tökum sem dæmi lúðra
sveitina Svan, sem mun vera sú stærsta
á landinu. en hún á einmitt 50 ára
afmæli á þessu ári.
Segjum sem svo að hún sé komin full-
skipuð og búin upp á .við Háskólabíós.
eins og hún gerir ár hvert, þá eru þar 56
manns i búningum og með hljóðfæri.
Nóturnar. sem sveitin er með á slíkum
tónleikum. kosta ekki undir 300 þúsund
krónum. Stativin sem nóturnar hvíla á
kosta um 500 þúsund og hver búningur
kostar um kvart milljón en þaö gerir um
15 milljónir fyrir alla sveitina. Svo eru
það hljóðfærin. Ef við tökum trompett
sem dæmi þá kostar það i dag um 400
þúsund krónur og í lúðrasveitinni Svani
eru 14 manns sem blása í slíkt. Ekki eru
hin hljóðfærin ódýrari. Svona er hægt
að reikna endalaust. en með þessum litlu
dæmum ætti fólki að verða Ijóst að
lúðrasveit er ekki eitthvert fyrirbrigði
sem sprettur upp úr jörðinni 17. júní.
Meðlimirnir æfa tvisvar í viku í húsnæði
sem Svanur deilir með Leikfélagi
Reykjavikur i Vonarstræti auk þess sem
Big-band Svans æfir einu sinni i viku.
Þannig gengur þetta frá september fram
yfir 17. júni.
Afkomu sina byggir lúðrasveitin
Svanur að mestu leyti á styrktar-
meðlimum, sem eru um 500 talsins, og
fyrir þá eru haldnir tónleikar einu sinni á
ári i Háskólabíói. Svo reytist eitthvað
inn fyrir olástur á iþróttamótum. í
útvarpi og sjónvarpi svo eitthvað sé
nefnt. 17. júní fær sveitin aftur á móti
ekkert fyrir spileríið þvi þá er hún að
leika upp í 500 þúsund króna styrk sem
hún fær frá bænum, styrkurinn frá
ríkinu er svo lítill að það tekur þvi ekki
aðjóðla fyrir hann — hvað þá meira.
VIKAN leit inn á æfingu hjá lúðra-
sveitinni Svani þar sem stjómandinn.
Sæbjörn Jónsson, stjórnaði liði sinu af
miklum krafti í laginu Singing in the rain
sem var sérlega skemmtilega flutt og
undirstrikaði að lúðrasveitir geta leikið
annað en hergöngumarsa og aðra fána-
tónlist. Úti i heimi er vegur lúðrasveita
miklu meiri en hér heima. þar leika þær
meira að scgja sinfónisk verk en hér á
Þessi mynd er tekin 1. maí fyrir allmörgum árum. Það óvenjulega við hana
er að þarna er ekki rigning og rok og krafa dagsins hljóðar upp á 45 stunda vinnuviku.
landi er ekkert tónskáld sem semur
sérstaklega fyrir lúðrasveitir. Þess vegna
fáum við nær eingöngu að heyra útlenda
tónlist i skrúðgöngum og eitt og eitt
ættjarðarlag.
En þegar lúðrasveit er annars vegar
þá er heyrn sögu ríkari. Þvi ætti fólk að
lita inn i Háskólabíó laugardaginn 22.
mars. en þá verður Svan'ur með 50 ára
afmælistónleika. Þar verður mikið blásið
— og gaman ef að likum lætur...
HVAÐ ER
LÖÐRASVEIT?
14 Vikan 11. tbl.
EJ