Vikan


Vikan - 13.03.1980, Side 26

Vikan - 13.03.1980, Side 26
Smásaga HULIN FORTÍÐ heyrði ritvélarhljóðið hinum megin við vegginn. Hún hélt að hann ætlaði aldrei að taka til máls. „Ég er ekki viss hvernig ég á að fara að því að segja þér þetta, Susan,” sagði hann loks. „En þannig er mál með vexti að þú fæddist ekki fyrr en eftir að Greg var farinn. Hann vissi ekki að þú værir á leiðinni. Og þegar móðir þín frétti um bækluðu stúlkuna ákvað hún að segja honunt ekki frá þér. Móðir þín taldi að ef Greg hefði vitað um þig þá hefði hann reynt að gera svo mikið fyrir ykkur báðar *— og hann hafði þegar nógu að sinna, nteð örkumla konu." Hr. Simpson leit bliðlega á hana. „Þú skilur það þá kannski núna hvers vegna faðir þinn kom aldrei heim og hvers vegna hann spurði aldrei um þig." Susan var rétt að byrja að skilja hvað hann var að segja. Hún leit aftur til hans og var næstum orðlaus. „Hann hefur þá aldrei vitað neitt um mig?” hvislaði hún. Hr. Simpson kinkaði kolli. „Það er rétt. Móðir þín sagði honum aldrei frá þér. Susan — faðir þinn veit ekki að þú ert til.” Hún sat og starði á hann, Itugur hennar var allur á reiki. „Þaðer rétt,"endurtók hann. „Móðir þín taidi að best væri að rjúfa öll tengsl, frekar en að láta hann vita um eitthvað sem kæmi i veg fyrir að hann gæti orðið hamingjusamur meðeiginkonu sinni. Og eins og þú veist tókst henni að lifa hamingjusömu og nytsömu lifi. Það var fátt sem hún sá eftir og hvað sem það var, þá lét hún engan vila um það." „Já," sagði Susan hægt. „Hún var þannig manneskja ...” Bara að ég hefði vitað þetta fyrr, hugsaði hún. Hún Itefði ekki þurft að hata föður sinn i öll þessi ár. Innst inni vissi hún samt að þetta hafði allt saman verið rétt hjá móður hennar. Móðir hennar vissi að hún hefði reynt að ná sambandi við föður sinn og að henni hefði tekist það — og þá jafnvel eyðilagt hamingju hans og konu hans. „Þetta verður mikið áfall fyrir Greg,” áminnti hr. Simpson hana. „Ekki bara að komast að þvi að móðir þín er látin — heldur einnig að hitta þig.” Hann horfði áhyggjufullur á hana og hún reyndi að hughreysta hann. „Hafðu ekki áhyggjur, hr. Simpson,” sagði hún rólega. „Og þakka þér fyrir. Þakka þér fyrir að segja mér alla sólarsöguna." Hverjunt hefði dottið í hug að þessi rólyndi litli maður ætti eftir að verða til þess að vekja von í brjósti hennar, hugsaði Susan með sér þegar hún yfirgaf skrifstofu hr. Simpsons. Hún sá hvernig sólin skein og fann hve svalur andvarinn var frískandi i fyrsta sinn síðan móðir hennardó. Hún Itafði haldið að hvert einasta vor ætti héðan í frá eftir að færa henni sorgartilfinningu. En núna, á því fyrsta vori, tók hún að hugsa sem svo að þannig þyrfti það alls ekki að vera. Hugsanir um föður hennar flugu í gegnum huga hennar á leiðinni heini. Þegar hún kom heim beið hennar símskeyti sem sagði að hann kæmi fljót- lega. Hún velti þvi fyrir sér hvað hún ætti að segja við hann. Hún hafði sagt margt um hr. Bates á ævi sinni. ekkert af því var rétt. Hún sagði við sjálfa sig að hún gæti að minnsta kosti hætt að hugsa um hann sem hr. Bates. Hann var faðir hennar — afi barnanna hennar. Hún stansaði hissa. „Afi barnanna niinna,” hvislaði hún. Hún smurði nokkrar samlokur og hellti upp á kaffi, hún íntyndaði sér að hann langaði i snarl þegar hann kæmi. Og kvöldmaturinn, hugsaði hún með sér, yrði að vera sérstakur. Ron gæti keypt kampavinsflösku á leiðinni heim. Þegar dyrabjallan hringdi fann hún sér til undrunar að hún skalf. Hún leit rétt aðeins út um gluggann og sá leigubíl aka frá húsinu. Hún opnaði dyrnar, án þess að vita hvað hún myndi sjá, og sá um leið að hann Itafði ekki vitað það heldur. Það sem hún sá var spegilmynd af andliti hennar, eins og hún gæti hugsað sér það gamalt. Og hún gladdist yfir því að hún var til staðar til þess að taka á móti honum. Hún gladdist einnig yfir því að hún yrði til þess að segja honum frá dauða móður sinnar. Hún var því fegin að vera þarna til þess að hugga föður sinn. „Komdu sæll," sagði hún andstutt. Hún vissi hreinlega ekki hvað hún ætti að segja annað. „Þú hlýtur að vera hr. — hr. Bates. Ég heiti Susan. ég er dóttir Dorothy.” Hún rétti honum höndina til þess að bjóða hann velkominn, en sá um leið að hann gat ekki tekið i höndina á móti, því hann var með fangið fullt af liljum. ★ Erlent: 1 Yvonne og Yvette eru samhentar I eldhúsinu, hafa sama matarsmekk og góða matarlyst. Hér eru þær að búa til lummur, en það er uppáhaldsréttur þeirra beggja. Hvirfill við hvirfil Yvonne og Yvette McCarther, sem nú eru 28 ára gamlar, búa i Kalifomíu og eru einu núlifandi siamstvíburarrir sem enn hafa ekki verið aðskildir. Fram að þessu hefur enginn læknir treyst sér til að framkvæma slíka aðgerð þó svo heilar þeirra séu ekki samvaxnir. En núna er það orðið of seint. Þær systur eru ákaflega samrýndar. persónuleiki þeirra er áþekkur, tilfinningalífið svipað og skopskynið það sama. Auk þess hafa þær sama matarsmekk og klæðast alltaf eins. Móðir þeirra hefur aldrei upplifað það að sjá aðra þeirra dapra á meðan hin er glöð — þeim líður alltaf eins. Sameiginlegt áhugamál þeirra systra er að syngja saman i kirkjukórnum í heimabæ sinum. Yvonne og Yvette verða að hafa sig allar við að neita tilboðum sem berast frá fjölleikahúsum hvaðanæva sem bjóða þeim gull og græna skóga fyrir það eitt að sýna sig á fjölunum. Þær eru staðráðnar i að reyna að lifa sem eðlilegustu lífi þar til dauðinn aðskilur þær. vL« «st, «sL» TY »]Y TY BLOSSOM Frábært shampoo BLOSSOM shampoo freyölr vel, og er fáanlegt I 4 geröum. Hver og einn getur fengiö shampoo viö sitt hœfi. Reyndu BLOSSOM shampoo, og þér mun vel lika. Heildsölubirgðir. KRISTJÁNSSON HF. Ingollsstræti 12. simar: 12800 - 14878 26 Víkan 11. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.