Vikan - 13.03.1980, Síða 30
Draumar
Gladlegur
vinnuveitandi
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi fyrir nokkru að
vinnuveitandi minn kœmi til
mtn glaðlegur og brosandi og
Skop
segði eillhvað sem allir
skemmtu sér vel yfir. Hann lók
utan um mig og mér fannsl
eins og hann væri að reyna að
koma einhverjum boðum til
mín. Tilfinningin var mjög
einkennileg og mér fannsl sem
ekkert væri óeðlilegl við það
að hann væri svona óskaplega
vinalegur við mig.
Þennan draum hefur mig
drevmi þrisvar áður. að vísu í
nokkuð mismunandi útgáfum.
og leikur mjögforvitni á að
fræðasl um hvað það þýðir að
dreyma einhvern alh að því
faðma dreymandann að sér.
Einnig langar mig að vita
hvað bleikur lilur táknar í
draumi.
Með kærri kveðju og þökk.
P.Á.S.
Gættu þín á að láta ekki glepjast
af loforðum, sem þessi
vinnuveitandi gefur þér, því ekki
er víst að efndirnar verði eins og
best verður á kosið. Vandaðu
val þitt á kunningjum og endur-
skoðaðu afstöðu þína til atvinnu
þinnar og þess sem henni fylgir.
Venjulega boðar faðmlag svik
einhvers og að faðma óvin í
draumi getur boðað veikindi eða
einhvers konar erfiðleika.
Bleikur litur er ekki ævinlega
slæmur í draumi, þótt margir
telji að svo sé, og fer merkingin
eftir atburðarásinni í hverjum
einstökum draumi.
Smokkaát og
barnsvon
Kœri draumráðandi.
Mig dreymdi þennan
hræðilega draum: Ég og systir
mín vorum hérna heima og
nokkrir karlar (sem ég veit
ekkert hverjir voru) og einn
karlinn fór allt í einu að éta
smokka og þegar hann var
búinn meö þrjá urðum við ég
og systir mín ófrískar og
mamma sagði mér að hringja í
bróður hans pabba en ég fann
aldrei símanúmerið hans.
Kæri draumráðandi. Þessi
draumur veldur mér svo
miklum áhyggjum að ég þori
varla að soj'na aftur.
Ein áhyggjufull
Vonandi hefur þér tekist að
festa svefn eftir þessa martröð
sem er ekki ýkja merkileg þegar
að er gáð. Það væri helst að vara
þig við að vera í nánum
tengslum við þessi tvö aðaltákn í
draumnum — karlmenn og
smokka. Ef þú gætir þess þarftu
ekki að hafa áhyggjur af því að
draumurinn um barnsvon ykkar
systranna rætist á næstunni.
Sýningarstjórinn
skellihló alla mynd-
ina út
Kæri draumráðandi!
Viltu ráðafyrir mig tvo
drauma. Eyrri draumurinn er á
þessa leið:
Það var í bíói og átti að fara
að sýna mynd en það komu
svo fáir af því að sagt var að
myndin vœri svo hundleiðinleg.
Húsvörðurinn og sýningar-
stjórinn spurðu okkur hvort
við vildum ekki bara horfa á
sjónvarpið, Dýrlinginn. og það
á sama skerminum og
bíómyndirnar eru sýndar á. Ég
var svolítið hissa en okkur var
svo sem sama. Ég ællaði að
setjasl við hliðina á slelpu, sem
ég þekki. en sýningarstjórinn
sellist þá við hliðina á henni.
Ég settist þá fyrir framan
slelpuna.
Sýningarstjórinn skellihló
alla myndina út. ég var svo
hissa. Þella var alls ekki
gamanmynd.
Sá síðari var svona:
Ég og vinkona mín, sem við
skulum kalla X, vorum að
veggfóðra heima hjá mér, inni í
stofunni. En allt I einu vorum
við farnar að veggfóðra í
félagsheimilinu. Það er íþrótta-
völlur við hliðina á félags-
heimilinu og hann var orðinn
að kirkjugarði. Það var verið
að jarða mann þar og það var
margl fólk við jarðarförina og
við X líka.
Svo fer einn strákur úr
hópnum og hann er alltaf að
staglasl á gælunafninu mínu.
Ég veil ekki hvaða nafn það
var og ég þekki hann ekki. Og
ég elti hann en þá stoppaði
hann mig og sagði mér að
hann væri mjög hrifinn af mér.
Við löbbuðum ífjörunni og
það var girðing þar til þess að
maður kæmist ekki upp á
veginn aftur. Við reyndum að
komast yfir hana og honum
lókst það en ekki mér.
Svo var slrákur sem ég
þekki. Hann kom ti! mín
og hjálpaði mér yfir girðing-
una. Við fórum heim lil hans.
Ein að norðan.
Fyrri draumurinn er þér fyrir
ástarævintýri, sem veldur þér
bæði sorg og leiðindum, og þú
ættir að fara varlega í allar
ákvarðanir varðandi framtíðina
á næstunni. Síðari draumurinn
er undirstrikun þess sent fyrr
segir en þó eru þar einnig
ákveðin tákn um að hindrunum
verði um síðir rutt úr vegi og. þú
lítir atburði og framtíð öðrum
augum en áður.
30 Vikan 11. tbl.