Vikan


Vikan - 13.03.1980, Page 46

Vikan - 13.03.1980, Page 46
Framhaldssaga hann og hann fann heitar varir hennar þrýstastaðsínum. Hann sneri sér einu sinni við, þar sem hann stóð efst í stiganum uppi i flug- vélina, og veifaði. þau veifuðu bæði á móti. Af öllum í heiminum voru þetta þær tvær manneskjur sem skiptu hann mestu máli. Flugvélin hóf sig á loft og flaug i hringi yfir Waverley. Það var undarlega sársaukafullt að lita niður á fjöllin og bæinn og hugsa til þess að á þessum tima dagsins ætti hann að vera á leiðinni í vinnuna. En hann var ekki á leiðinni á skrif- stofuna í þetta skiptið og kannski myndi hann aldrei fara þangað aftur. Hann var að fara til London; eina staðarins sem hann hafði svarið að sjá aldrei aftur. Minningar hans um London voru líkastar martröð. Það voru minningar sem hann hafði reynt af fremsta megni að grafa i gleymsku fyrir fullt og allt. En stundum höfðu þær þó gert vart við sig aftur og það var eins og martröð þar sem honum fannst hann vera í óskaplegri hættu. Fyrir átta árum hafi hann dvalið nokkrar vikur i London. Og þá hafði hann verið heppinn. Hann gat ekki búist við að heppnin myndi ætíð vera honum hliðholl. í þetta skiptið gæti hann ekki falið sig. í þetta skiptið varð hann aðeins að taka því sem að höndum bar. Þetta var langt, langt ferðalag. Peter hafði blundað og millilent hafði verið i Afríku og Róm. Að lokum var þó lent á Heathrow-flugvelli. Hann fann til óöryggis þar sem hann elti hina farþegana i gegnum tollinn og inn í komusalinn. Einhvers staðar til hægri við sig sá hann blossa bregða fyrir. Einhver fræg persóna hlaut að hafa verið með vélinni, hugsaði hann meðsjálfum sér. Hann leit um öxl, en farþegarnir streymdu fram hjá honum og heilsuðu fólkinu sem komið var til að taka á móti þeim. Enginn þeirra virtist vekja neina sérstaka athygli. En honum var nær að leita uppi dr. Muir sem hafði lofað að taka á móti honum, hugsaði Peter með sjálfum sér. Það var ekki hlaupið að þvi fyrir ókunn- uga menn að bera kennsl hvor á annan í þessum mannfjölda. Hann sneri sér við og gekk áfram. „Hr. Peter Blake?” kallaði einhver sem stóð til vinstri við hann. Um leið og hann leit i áttina til hans kom einn blossinn enn og þá skildi hann hvað var á seyði. Það var hann sem Ijósmyndararnir voru aðelta! Hann náði ekki lengra i hugsunum sínum fyrr en hann var umkringdur fréttamönnum. „Hefur þú hitt Karen litlu áður?” spurði Ijóshærð kona. „Hvernig tilfinning er það að vera eini maðurinn af sextíu þúsund sem getur i leit að liföjafa hjálpað barninu?" spurði maður í regn- kápu. „Er þetta i fyrsta skipti sem þú ert í London?” Nú komu enn fleiri blossar. Örvæntingin náði tökum á honum. Hann vildi helst af öllu snúa við og hlaupa. Honum skildist þó einhvern veginn að það var hið eina sem hann mátti ekki gera. Hann stóð því hreyfingarlaus og leit af einu andlitinu á annað. Allt í einu var hann ekki lengur einn. Roskinn maður í tvídfötum stóð við hlið hans. Hann var með þykkt, grátt hár. Hann lét sem hann sæi ekki Peter í augnablikinu en sneri sér að fréttamönn- unum. „Góðan daginn. herrar minir og frúr.” Hreimurinn var örlítið skoskur. „Við kunnum vel að meta áhuga ykkar á þessu máli. Já, þetta er hr. Blake frá Astraliu. . . maðurinn sem mun bjarga Karen. Við vitum ekki hve fljótt hann mun hitta hana, sennilega eftir þrjá til fjóra daga, en það þarf margt að gera áður en það getur orðið." Þau spurðu fleiri spurninga. Hann svaraði þeim ánægjulega og glaðlega. Nýkomin ensk húsgögn mn Hverfisqötu 76 — Sími 15102 Það var næstum eins og hann hefði gaman af þessu, hugsaði Peter með sjálfum sér. Karen hafði það gott, sagði hann þeim. Og á sjúkrahúsinu var vonast til að aðgerðina mætti framkvæma eftir u.þ.b. viku. Jú, það vantaði alltaf gefendur á skrána þeirra á spitalanum. „Og nú er ég viss um að þið munið hafa okkur afsakaða. Hr. Blake mun koma með mér beint á sjúkrahúsið. Við eigum annasaman morgun fyrir höndum.” Peter til mikils léttis virtist þetta vera afstaðið um leið og dr. Muir leiddi hann út úr mannþrönginni. Enginn elti þá. Eftir að þeir höfðu gengið stutta stund nam roskni maðurinn staðar og tók þétt i hönd Peters. „Þú hefur sjálfsagt getið þér þess til að ég er dr. Muir," sagði hann. „Og ég er ánægður, mjög ánægður að hitta þig. Varferðin þreytandi?”' „Það var ekki sem verst. En ég er ekki vanur að verða umkringdur af frétta- mönnum.” Peter var meira brugðið en hann vildi viðurkenna. „Jæja, en þeir hafa starf sitt að rækja. Og við getum heldur ekki komist af án þeirra. Það eru blaðagreinarnar sem útvega okkur flesta gefendurna á skrá." Gáfuleg blá augu læknisins virtust afla sér heilmikilla upplýsinga um Peter aðeins með þvi að horfa á hann. „En þú virðist vera þreyttur,” hélt hann áfram. „Bíllinn minn er hérna inni í næstu 46 Vikan 11. ttol.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.