Vikan


Vikan - 13.03.1980, Síða 63

Vikan - 13.03.1980, Síða 63
Pennavinir Mari Holtct, Lyngaas, 2074 Eidsvoll Verk, Norgc, er 30 ára gömul, gift og 3 barna móðir, Hún óskar eftir íslenskum pennavinum og áhugamál hennar eru m.a. börn, handavinna, bréfaskriftir og margt fleira. Jón Ragnarsson, Stckkjargötu 7, 410 Hnifsdal, óskar eftir að skrifast á við stráka á aldrinum 11-13 ára. Áhugamál hans eru ýmisleg og hann svarar öllum bréfum. Karl R. Womarck, 15310 La Jolla Lane, Houston, Tcxas, USA 77060 er 38 ára og hefur mikinn áhuga á að eignast islenska pennavini. Áhugamál hans eru m.a. bréfaskriftir. Jóhanna Sigríður Rögnvaldsdóttir, Hlíðargötu 22, 750 Fáskrúðsfirði, hefur áhuga á að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 13-15 ára. Hún er sjálf 13 ára. Áhugamál hennar eru ýmisleg. Elsa Opsahlscter, N-2270, Flisa, Norge, er gift og 3 barna móðir. Hún hefur mikinn áhuga á að eignast islenska pennavini á öilum aidri. Áhugamál hennar eru m.a. bréfaskriftir, handa- vinna, bækur. tónlist. garðyrkja og póst- kort. Torbjörg Pedersen, Grunnvaag, 9072 Birtavarre, Norge, er tæplega 16 ára og óskar eftir að komast i bréfasamband við íslenska stráka og stelpur frá 15 ára aldri. Áhugamál hennar eru popp. dans, dýrogmargt fleira. Sigríður Björnsdóttir, Stokkhólma, Akrahreppi, Skag., 560 Varmahlíð, óskar eftir að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 16-18 ára. Hún er sjálf 17 ára. Áhugamál eru dýr, bækur og margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er og hún svarar öllum bréfum. Torunn Rudberg, Kirkeveien, 9080 Storslett, Norge, er 13 ára og óskar eftir að eignast islenska pennavini. Áhugamál hennar eru tónlist. íþróttir. hestar, lestur o.m.fl. Britt Pedersen, Grunnvaag, 9072 Birtavarre, Norge, er 12 ára og hefur áhuga á að eignast íslenskar penna vinkonur á aldrinum 12-14 ára. Áhugamál hennar eru popp. iþróttir. dýr og margt fleira. Ævar Ólafsson, Hamraborg 8, 200 Kópavogi, hefur áhuga á að skrifast á við stulkur, 18 ára og eldri. með kynni I huga. Maria Lovise Risnes-Fotland, N-4389 Vikesaa, Norge, er 24 ára gömul og hefur áhuga á að komast i bréfasamband við Íslendinga á aldrinum 20-25 ára. Áhugamál hennar eru tungumál. bréfa- skriftir. handavinna. ferðalög. kristin fræði. matartilbúningur og margt fleira. Guðrún Bennv Finnbogadóttir, Holtabrún 21, 415 Bolungarvík, óskar eftir pennavinum á aldrinum 9-11 ára. Hún er sjálf 9 ára. Áhugamál hennar eru iþróttir, hestar og margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Hún svarar öllum bréfum. Frla Alfreðsdóttir, Garðshrún 4, 780 llöfn, Hornafirði, óskar eftir að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 13-15 ára. Hún er 14 ára. Áhugamál hennar eru margvisleg og hún svarar öllum bréfum. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Knut G. Nomeland, Nordbö, N-4690 Valle, Norge, er 30 ára gamall sjúkra- þjálfari og óskar eftir að eignast íslenska pennavini sem hafa áhuga á frímerkjum. May Hélen Findahl, Jutulvn. 90, 2074 Eidsvoll Verk, Norge, er 35 ára gömul og óskar eftir að eignast íslenska penna vini. Áhugamál hennareru börn, tungu mál, sálfræði, lestur. tónlist og margt fleira. Ingunn Sand, St. Daalsgt. 6, 6000 Álesund, Norge, er 31 árs gömul bg óskar eftir aðeignast íslenska pennavini. Áhugamál hennar eru rósamálun. postulínsmálun, krossgátur, dýr, leikhús og margt fleira. ... hann bað mig svo að kalla sig pabba! Komdu sæll, elsku Póstur! Mér finnst þú gefa ágœt svör. Ég er áskrifandi aö Vikunni og finnsl hún gott blað. En snúum okkur nú að erindinu: Þannig er mál með vexti að ég var hriftn af manni sem er orðinn ... gamall. Hann var líka hriftnn af mér og þótt hann sé . . . árum eldri en ég þá skipli engu máli með aldur- inn. Ég er . . . ára. Hann lílur mjög vel út, virðist 10 árum yngri en hann er og er ekki kominn með neinn skalla ennþá. Fyrir ári kom ég með hann heim til mömmu sem sér ekki sólina fyrir honum núna. Mamma er skilin og ég er einka- barn. Þau eru saman núna og mamma á von á barni bráðlega. Hann sagði mömmu að við hefðum aldrei verið saman, bara góðir vinir. Ég reyndi að segja mömmu að hann hefði verið með mér — en ég gat það ekki. Og ég hugsaði með sjálfri mér, fyrst er hann með mér og svo ræðst hann á móðurina og gerir hana ófríska. Hann bað mig í guðanna bænum að segja engum frá því að við hefðum verið saman og svo bað hann mig að kalla sig bara pabba! En ég hélt nú síður. Þótl ég haft aldrei séð pabba minn ætla ég ekki að kalla fyrirverandi elskhuga minn pabba. Svo sagði hann að ég væri allt of ung og óþroskuð fyrir hann og hann gæli verið pabbi minn. Ég sagði honum að ég væri ekkerl barn lengur og að ég væri hætl að þroskasl líkamlega. Hann segir að ég sé barn núna en hér áður sagði hann að aldurinn skipti engu máli ef fólk elskaði hvort annað og að ég væri ekkerl barn lengur. Hvað ftnnsl þér, Póstur kær? Heldurðu að hann segi þella bara af því að hann er hálfgiftur mömmu? Hann er mjög heiðarlegur og almennilegur maður. Geturðu nokkuð hjálpað, Póstur minn? Á ég að gleyma þessu, sem gerðist áður með okkur? Á ég kannski að segja mömmu frá því að ég haft verið með honum og að hann haft farið upp á mig? Á ég að vera svo óheiðarleg? Ég vona bara að Helga sé búin að borða. Hérna, gefðu henni eldspýtuna á meðan hún fer yftr bréftð mitt. Takk fyrir birlinguna. Ein heiðarleg Það er varla um nema einn möguleika að ræða úr því sem komið er — flyttu að heiman. Þú ert komin á þann aldur að geta staðið á eigin fótum og ert á allan máta sjálfráð gerða þinna. Það segir sig sjálft að þú getur ekki áfram búið með móður þinni og þessum fyrrverandi „vini” þínum, slíkt yrði hvorki þér né þeim til nokkurs góðs. Hins vegar er orðið nokkuð seint fyrir þig að segja móður þinni sannleikann um fyrra samband þitt við manninn, það gæti einungis orðið ykkur báðum til tjóns. Farðu samt alls ekki að heiman í vonsku, heldur útskýrðu fyrir móður þinni þörfina á því að þú standir á eigin fótum í lífinu og þú getir eftir sem áður heimsótt hana. Það er skiljanlegt að þér muni seint finnast maðurinn „pabbi” þinn, en þú segir sjálf að hann sé heiðar- legur'cig almennilegur maður og þótt hann hafi þarna ekki valdið atburðarásinni er ekki þar með sagt að hann geti ekki orðið móður þinni ágætis lífsförunautur. Þeirra hamingja er að mestu leyti komin undir því sem þú aðhefst í þessu máli. Gerðu allt sem þú getur til þess að valda henni ekki sárindum því hún hefur eflaust um nóg að hugsa. Þú ert einkabarn hennar í öli þessi ár og þar af leiðandi ber hún til þín sterkar tilfinningar sem geta orðið fyrir miklum skakkaföllum þegar um svona viðkvæmt mál er að ræða. Tíminn læknar öll sár og svo verður einnig í þessu tilviki. Þú ert ennþá ung og átt eftir að kynnast lífinu frá fleiri en einni hlið. Þessi maður er ekki eini karlmaðurinn í heiminum og þegar þú hefur losnað aðeins frá heimilinu líturðu liðna atburði öðrum augum en áður. Að vísu er sannleikurinn yfir- leitt sagna bestur en í ykkar tilviki á líklega betur við máltækið gamla að oft má satt kyrrt liggja. 11 tbl. Vikan 63

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.