Vikan - 28.08.1980, Page 20
Erlent
Glæsilegt úrval
af GÓLFDÚKUM
ÚR MYNDAALBÚMI MARÍÖNNU
Sænski tenniskappinn Björn Borg er
sívinsælt blaðaefni. 1 nýliðinni agúrku-
tið tók hann upp á þvi að giftast sinni
heittelskuðu Mariönnu Simonesku, blaða-
mönnum til óblandinnar ánægju. Sú athöfn
hefur vist varla farið fram hjá neinum. En
hver er nú þessi Marianna?
Jú, það vita margir að hún er rúmensk
tennisstjarna, gott þegar hjónin eiga
sameiginleg áhugamál. VIKAN gægðist
í myndaalbúm Mariönnu og fann þar
nokkrar fróðlegar myndir af þessari
tennisbrúði, og nú er hún sjálfsagt búin
að fá nokkrar i viðbót úr framköliun, til
að setja i albúmið sitt. Eins og sjá má er
tennisáhuginn engin ný bóla hjá hinni
nýbökuðu frú Borg, og illar tungur geta
alls ekki klínt því á hana, að hún hafi
farið að spila tennis til að næla sér i
sænsku stjörnuna. Enda hafa illar
tungur ekki reynt það svo vitað sé. Og
auðvitað óskar VIKAN tennishjón-
unum til hamingju og vonar að þau
eignist fullt af tennisbörnum.
8 ára, strax komin 6 tennisvöllinn.
4
4
SÍMI
33070
20 Vikan 35. tbl.