Vikan - 28.08.1980, Síða 28
Skeljar
gólfog
Grafhýsi konunga Ítalíu
Panþeon er eina fullkomlega varð
veitta hús fornaldar í Róm. Agrippa
hershöfðingi lét reisa það árið 27 fyrir
Krist og Hadrianus keisari lét endur-
bæta það árin 117-125. um það bil 750
árum fyrir landnám Islands. Upphaflega
var Panþeon musteri hinna sjö guða
himintunglanna, en nú er það notað sem
kaþólsk kirkja.
Panþeon er risastórt, hringlaga hus
með voldugu hvolfþaki. ákaflega forni-
fast að allri gerð. Framan við það er
grískur inngangur með sextán háuni
granítsúlum. Sjálfar bronshurðirnar eru
upprunalegar, rúmlega 2000 ára gamlar.
Þarna eru grafnir konungar Ítalíu og
listamaðurinn Rafael.
Besta sjávarréttastofa Rómar
FJanþeon er i miðju gamla hverfinu í
Róm, þar sem þröngar götur hlykkjast
um örsmá torg. Eitt sundið, sem liggur
út frá fjarlægari enda torgsins fyrir
framan innganginn, heitir Via della
Rosetta. Þar er, aðeins um 20 metra frá
torginu, besta sjávarréttamatstofa
Rómar, Carmeloalla Rosetta.
Þetta er ekki glæsilegur staður, en
skemmtilegur, þegar inn er komið. Það
fyrsta, sem mætti auga okkar, var bát-
laga borð úr grófum viði, hlaðið fiskum
og sjávardýrum. Fremst var kassi með
hinum frægu Belon ostrum. síðan stór
bakki með humri (scampi) og stórt fat
með þremur tegundum lifandi skelja.
;
I
Andrós .... aaaatsjú . . . . óg er svo hræðilega
kvefuð. Ég er hrædd um að óg
komist ekki é ballettinn annað kvöld . . .
aaatttsjúúú e. .