Vikan


Vikan - 28.08.1980, Blaðsíða 51

Vikan - 28.08.1980, Blaðsíða 51
Myndskreyting: Bjarni Dagur Jónsson persónan, sem lét systur L. B. fá aðgöngumiðann sinn, ekkert um þær upplýsingar. sem hinn ófreski maður hafði gefið fyrirfram. Sjólidinn Kvöldið þann 15. nóvember 1949 var Croiset staddur í höfuðstöðvum lögregl- unnar i borginni Hengelo. Hann var að vinna við sakamál. Þegar hann hafði lokið störfum kl. 9.30 e.h. bað hann lögregluforingjann hr. S. að skrá niður hugmyndir um sætistilraun, sem ákveðið var að halda kvöldið eftir i Enschede fyrir kvenfélag sveitarinnar i nágrenninu. Að þessu sinni sagði Croiset fyrir níu atriði. „Þetta er fjórða sæti i þriðju röð frá hægri. 1. Þar sé ég grannvaxinn ungan mann i dökkum fötum með hárið greitt upp frá enninu. 2. Hann er með litinn vasaklút i brjóst- vasanum. 3. Hann er sifellt að tala við unga stúlku um tuttugu og fjögurra ára gamla sem situr við hlið hans. 4. Þessi stúlka er með rósrauðar kinnar. 5. Vinstra megin við hana situr fullorðin kona. Þessi kona hefur skiptingu i hárinu. Hún er i svörtunt kjól. Hún hefur hvöss blá augu og leikur ævinlega við það sem hún er með i höndunum. 6. Þetta fer i taugarnar á eiginmanni hennar. 7. Eiginmaður hennar er digur. að verða sköllóttur og notar gleraugu þegar hann les. 8. Hann datt á vinstri fót og er með ör fyrir neðan vinstra hnéð. 9. Fullorðna konan á son sem er klæddur einkennisfötum flotans. Hann er að minnsta kosti sjómaður. Ég sé tundurskeyti springa. Hefur þessi kona misst ættingja í slíkri sprengingu viðströnd Atlantshafsins ... í einhverri höfn?” Þessar upplýsingar voru fengnar fundarstjóra i innsigluðu umslagi fyrir fundinn þann 16. nóvember. Og hvernig bar þeim nú saman við sannreyndir? I hinu valda sæti sat ungur maður sem að útliti kom heim við fyrstu þrjú atriðin í lýsingu Croisets. Á fundinum sagði hann við þennan unga mann: „Þér eruð með ör fyrir neðan vinstra hnéð." Furðu lostinn viðurkenndi maðurinn að þetta væri rétt. Einnig kom það heim að við hlið hans at ung stúlka, rjóð i kinnum, sem hann var alltaf að tala við. Upplýsingar Croisets um hana reyndust því réttar, enda þótt hún væri reyndar tuttugu og sex ára i stað tuttugu og fjögurra. Vinstra megin við hana sat fullorðin. bláeyg kona í svörtum kjól, sem einnig viðurkenndi að lýsingin á sér væri rétt. Auk þess reyndist lýsing hins skyggna manns á eiginmanni hennar einnig rétt. En nú kom babb í bátinn. Þessi fullorðna kona neitaði þvi i heyranda hljóði að sonur hennar væri sjóliði, sem hefði farist þegar skip hans varð fyrir tundurskeyti. En ekki hafði hún þó lokið máli sinu fyrr en önnur kona, ungfrú W.v. B. reis úr sæti sinu og gaf þessar upplýsingar: „Bróðir minn var sjóliði, slökkviliðs- maður hjá landgönguliði flotans i styrjöldinni. Hann dó þegar skip hans varð fyrir tundurskeyti i árás nálægt Plymouthflóa." Croiset botnaði hvorki upp né niður í þessum ruglingi. Hann sagði við konuna: „Getið þér hugsað yður nokkra ástæðu til þess hvers vegna ég fékk þessa hugmynd frá yður?" Hún svaraði: „Já, rétt fyrir fundinn þá sendi ég hringinn minn uppá sviðið og bað yður að segja mér eitthvað í sambandi við hann." Croiset hafði tekið við hringnum hjá henni og smeygt honum á milli blaðanna i minnisbók sinni og sagt við hana: „Ég get ekki gert það núna, en ég vonast til þess að fá tækifæri til þess síðará fundinum.” Þótt furðulegt megi virðast hafði hinn skyggni maður þannig fengið skýra mynd í sambandi við þennan tengihlut kröldið áður en hann hafði tekið við hringnum, enda þótt mynd þessi að visu blandaðist saman við önnur áhrif. Auða sœtið Autt sæti getur einnig valdið ruglingi um tima. Þann 15. október 1952 var Tenhaeff prófessor að undirbúa sætistilraun sem fara átti fram fjórum dögum síðar i Rotterdam. Prófessorinn valdi sæti númer 18. „Ég sé ekkert," tautaði Croiset. „Eruð þér viss?" „Fullkomlega." Þetta kom mjög flatt uppá prófessor- inn. Fram að þessu hafði Croiset náðallt að fullkomnum árangri. Dr. Tenaeff reyndi annað númer — þriðja sæti. Þá brosti Croiset og sagði að bragði: „Þarna mun kona sitja. Hún er með ör á andlitinu. Ég sé að þessi ör standa í einhverju sambandi við umferðarslysá Ítaliu." Kvöldið sem halda átti fundinn snjóaði í Rotterdam. Af þeim þrjátíu gestum sem boðnir voru til fundarins gat einn ekki komið. Og hvað um auða sætið? Það var númer 18 — þar sem Croiset sagði: „Ég sé ekkert." En í þriðja sæti sat kona meðáberandi ör á andliti. „Já, það er alveg rétt," sagði konan. „Ég lenti i umferðarslysi á italíu fyrir tveim mánuðum. En segið mér eitt. Hvernig gátuð þér vitað það?" Að tilrauninni lokinni staðfesti Tenhaeff prófessor spá Croisets með vitnisburði frá eiginmanni konunnar, en hann er taugalæknir. I næsta þætti mun ég skýra frá nokkrum fleiri afrekum þessa frábær- lega skyggna manns, sem þegar hefur beitt einstökum hæfileikum sínum fjölda manns til blessunar. □ 35. tbl. Vikan 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.