Vikan - 24.02.1983, Qupperneq 3
Anna María á von á fjórða barni sínu
Fjölskylduregnhlífin
Frægafólkið ívetrarfríi
Ekki brosir hún
Goldie Hawn litur ekkert sérlega
sællega út á þessari mynd og hún
vonast til þess að dag einn hitti hún
mann sem hún geti eytt lífinu með.
Fyrra hjónaband hennar var mis-
heppnað. Hún giftist þegar hún var
komin 7 mánuði á leið og á hún tvö
börn úr því hjónabandi. Goldie var
vel tekið i fyrstu myndinni sem hún
lék í, Kaktusblómi. Hún fékk óskar
fyrir þá mynd og síðan hefur hún
verið vinsæl leikkona.
Þegar kólna tekur og snjór
fellur í f jallshlíðar svissnesku Alp-
anna flykkist fræga fólkið þangað
til að njóta útivistar og æfa sig á
skíðum, en ekki síst til að sýna sig
og sjá aðra. Samkvæmislífið í
skíðabæjunum getur orðið hið
fjörugasta yfir vetrarmánuðina.
Þar hittast gamlir vinir, leikarar
frá Hollywood, prinsar, prinsess-
ur, kóngar og drottningar. Margir
eiga glæsihýsi í bæjunum St. Mor-
itz og Gstaad eða dvelja þar á
lúxushótelum. Elizabeth Taylor á
hús í Gstaad og er þar tíðum með
börnum sínum. Furstafjölskyldan
í Monaco á þar einnig hús,
sömuleiðis glaumgosinn Gunter
Sachs og frú. Gestir í bænum voru
til aö mynda Julie Andrews og
maður hennar Blake Edwards,
Audrey Hepburn og vinurinn
Robert Wolders, David Niven og
kona hans Hjördís, Liza Minelli og
eiginmaðurinn hennar, Mark
Gero, Roger Moore og kona
hans Lucia, Richard Burton og
fósturdóttirin Liza Todd, Jóhann
Karl Spánarkóngur og Soffía
drottning. I St. Moritz voru meðal
annarra Koo Stark (en enginn
Andrew), Christina Onassis og
Karim Aga Khan. A meðan
renndu Karl og Díana sér í Liecht-
enstein í boði furstaf jölskyldunnar
þar og Stéphanie brunaði með
vininum Paul Belmondo í franska
Alpabænum Val d’Isere.
Skíðaparadísin Gstaad er um
100 km frá Bern og Genf. Þar eru
brautir við allra hæfi, skíða-
kennarar á hverju strái og um 70
lyftur og togbrautir. Þar má
einnig fá leigða þyrlu til að flytja
sig efst upp á hæstu fjallstinda. I
bænum er einnig allt annað sem
hugsast getur til afþreyingar,
danssalir, spilaklúbbar, sund-
laugar, innanhússtennis, ísknatt-
leiksvellir, skíðahallir og hægt að
leigja loftbelg til útsýnisferða.
Anna María og maður hennar
Konstantin, fyrrverandi Grikkja-
kóngur, eiga 3 börn, Alexiu 17 ára,
Paul 15 ára, Nicholas 13 ára. I júni
er von á f jórða barninu en þar sem
Anna María hefur misst fóstur
fjórum sinnum hafa læknar ein-
dregið ráðið henni frá því að eign-
ast fleiri börn. En Barna-Anna,
eins hún er kölluö í Danmörku,
lætur sér ekki segjast og ætlar aö
reyna einu sinni enn. Þá er bara
aðbíöa og vona.
8. tbl. Vikan 3