Vikan - 24.02.1983, Page 7
Eldspýtufallbyssa
I þetta þarf ekkert nema þvotta-
klemmu (best aö hafa hana úr
tré), teygju og eldspýtur sem
„skotfæri”. Setjiö teygjuna utan
um klemmuna endilanga og festiö
eldspýtuna síðan eins og sýnt er á
myndinni. Þegar klemman er opn-
uö skýst eldspýtan út í loftiö á góö-
um hraöa.
Sykursjúkir geta
ekki treyst lykkjunni
Seglskútur þurfa ekki endilega að vera svo flóknar. Hægt er að gróf-
tálga spýtukubb og nota svo spýtu úr frostpinna í mastur, seglið þarf
ekki aö vera úr merkilegra efni en bréfi og myndin sýnir hvernig allt er
fest saman. Best er aö skera rauf í spýtukubbinn fyrir mastrinu, bera
rækilega lím á og troða niöur.
Einfaldir eggjaréttir
Koparlykkjan hefur fengið á sig
alvarlegt vantraust sem getnaðar-
vörn. Skoskir læknar hafa komist
aö raun um að margar konur sem
treystu á lykkjuna hafa orðið
ófrískar gegn vilja sínum, jafnvel
þótt þær hafi notað lykkjuna á
alveg réttan hátt.
Margir aörir læknar hafa haft
sínar grunsemdir um takmarkan-
ir lykkjunnar og fjöldi dæma um
aö konur sem notuðu lykkjuna hafi
oröiö barnshafandi hafa aukið á
þær.
Rannsóknir skosku læknanna
leiddu meöal annars í ljós aö syk-
ursjúkar konur gátu alls ekki
treyst koparlykkjunni. Staöfest er
að 11 af 30 sykursjúkum konum,
sem notuðu lykkjuna sem getnaö-
arvörn, voru orðnar ófrískar inn-
an fárra ára.
Astæöan til þess aö lykkjan er
nánast gagnslaus fyrir sykursjúka
er að áliti skosku læknanna efna-
fræðilegt undur: af einhverjum
óþekktum orsökum gerist þaö hjá
sykursjúkum konum aö koparjón-
in einangrast í lykkjunni og þar
meö missir lykkjan alveg gildi
sitt.
Enska læknablaðið, sem skýröi
frá rannsóknum skosku læknanna,
ráöleggur sykursjúkum konum
eindregiö að leita annarra ráða en
koparlykkjunnar ef þær vilja
koma í veg fyrir ótúnabæra þung-
un.
Eggjapanna fyrir tvo:
llítill laukur (smábrytjaður)
1 msk. smjör
2 tómatar
salt og pipar et'tir smekk
reykt síld, 2 bitar
2egg
Brúniö laukinn á pönnu, setjið tóm-
ata sneidda út í. Bragðbætið með salti
og pipar. Setjið reyktu síldina út í,
síðan hrærð eggin meö gætni og látið
krauma viö lágan hita þar til eggin eru
orðin mátulega steikt.
Bökuð egg í eldföstu móti:
(fyrirfjóra)
4egg
1 pakki frystar baunir
snöggsoðin hrísgrjón, 1 bolli
kartöflubitar
smábrytjaður laukur
marinn tómatur eða tómatsósa
skinkuræmur (1—2 cm breiðar)
Setjið allt nema eggin í ofnfast mót
(best aö hafa 4 lítil mót) í vatnsbaði og
bakiö í ofni þar til allt er komiö í gegn,
steikið eggin á pönnu og látiö hylja
réttinn.
8. tbl. Vikan 7