Vikan - 24.02.1983, Page 22
f
/ blíðu og stríðu
GAR Beth gekk eftir gang-
inum heyröi hún raddir dóttur
sinnar, Kate, og vinkonu hennar
innan af baðherberginu. Þær voru
að greiöa hvor annarri og Beth
vissi að þegar þær heföu lokið sér
af yrðu blaut handklæöi, tómar
flöskur og fleira dót út um allt
herbergið.
Kate var orðin sautján ára og
Beth var ljóst að auðvitað bar
henni aö þrífa eftir sig draslið. En
þaö var nú einu sinni svo aö Beth
hafði aldrei haft lag á að aga
börnin sín og þar af leiddi aö þau
voru óhirðusöm, óstundvís og
kærulaus, og allt þetta fór óskap-
lega í taugarnar á fööur þeirra.
Meðan Beth hélt áfram inn eftir
ganginum fann hún hjarta sitt fyll-
ast hlýju og ástúð þegar hún
minntist þess hversu elskuleg þau
voru, hversu skemmtileg og örlát
og ákaflega sjálfsörugg.
Arurn saman hafði Hugh
nöldrað og gagnrýnt hana fyrir
vítavert kæruleysi í uppeldi
barna þeirra. Hún hafði alltaf
gert því skóna að hann hefði rétt
fyrir sér í þeim efnum, vegna þess
að hann hafði miklu ákveðnari og
sterkari persónuleika en hún sjálf,
en henni var lífsins ómögulegt að
breyta háttum sínum.
ZZ Víkan 18. tbl.
Þegar börnin voru lítil átti hún
bágt með að skilja að þaö skipti
nokkru máli þótt þau háttuöu ekki
alltaf á nákvæmlega sama tíma á
kvöldin né þótt þau neituðu að
borða ýmislegt sem þeim féll ekki.
Hún hafði virt óhagganleg viðhorf
Hughs en henni var ómögulegt að
gera þau aö sínum. Og hvaða
ályktun var svo hægt aö draga af
þessu öllu saman núna með tilliti
til þess hvernig málum var
komið? Var hægt aö fullyrða að
annað heföi haft réttara fyrir sér
þegar allt kom til alls?
Meöan hún var að raða
hreinum, samanbrotnum þvott-
inum í línskápinn fyrir enda
gangsins heyrði hún vinkonu
dóttur sinnarsegja:
— Finnst þér ekki fráleitt af
þeim að fara að skilja núna úr því
þau hafa hangið svona lengi
saman? Eg meina til hvers? Ekki
ætti kynlífið aö þvælast fyrir fólki
á þessum aldri.
Aha, hugsaði Beth. Svo þær
gerðu því skóna að kynlíf gaml-
ingja á fimmtugsaldri væri ekki
meira virði en matarleifarnar
sem hún var sífellt aö tína út úr
ísskápnum og henda í ruslið.
— Þau rifust oft ferlega þegar
þau héldu að við værum sofnuð,
sagði Kate.
Eg ætla aldrei að giftast, sagði
vinkonan með sannfæringar-
krafti.
— Ekki ég heldur, samsinnti
Kate.
0, hamingjan sanna, hugsaði
Beth, hvað höfum við gert þeim?
Hún gekk inn í setustofuna og
hellti í glas handa sér. Samvisku-
bitið nagaði hana, henni fannst
hún vera aö kikna undan eigin til-
finningum og afleiðingum þeirra.
Hún fékk sér vænan teyg af vodka
og tónik. Ef til vill, hugsaði hún,
ætti ekki að leyfa fólki að giftast
og eignast börn fyrr en það hefur
gengist undir og staöist einhvers
konar hæfnispróf. Ekki leyfðist
fólki aö aka bíl né hafa hættuleg
vopn undir höndum án þess að
kunna með að fara. Hjónaband og
barneignir var þó stórum
ábyrgðarmeira athæfi. Eða hvað?
Síminn hringdi og hún virti hann
fyrir sér meö tortryggni. Hún
hafði hálft í hvoru óttast bæði
símann og dyrabjölluna núna um
nokkurt skeið. Hún neyddi sjálfa
sig til að lyfta upp símtólinu.
— Beth? sagöi Hugh á hinum
enda línunnar. — Halló! Hvernig
hefurðu það? Er allt í lagi hjá þér?
Krakkarnir frískir?
— Já, þakka þér fyrir, sagði
Beth kurteislega eins og hann
hefði spurt hvernig henni
hugnaðist bókin sem hún væri að
lesa.
— Er viðgerðarmaöurinn búinn
að gera við miöstöövarketilinn?
— Nei, ekki ennþá. Hann hefur
ekki ennþá komið.
Henni gramdist aö heyra
kunnuglegan varnartóninn í rödd
sinni. Auðvitað haföi hún gleymt
að hringja í viögerðarmanninn út
af miðstöðvarkatlinum.
— Er allt í lagi hjá þér? spurði
Beth hikandi. Henni fannst hún
verða aö segja eitthvað til að fylla
upp í óþægilega þögnina. Hún var
of tillitssöm til aö spyrja hvernig
honum geðjaöist að íbúðinni sem
hann hafði leigt handa sér og
nítján ára gamalli hjákonu sinni.
Var hjákona annars rétta orðiö?
I huga Beth framkallaði það
mynd af lostafullri kvenpersónu í
svörtum, flegnum kjól, sem svifi
um í frönsku ilmskýi og sæti við að
pússa langar neglur sínar umlukt
satínpúðum og munúöarfullum
blómum. Hún hefði jafnvel getað
skilið hann ef hann hefði yfirgefið
hana vegna einhverrar hrífandi
heimskonu til þess að bæta sér upp
hversu leiöur hann væri oröinn á