Vikan


Vikan - 24.02.1983, Side 37

Vikan - 24.02.1983, Side 37
Víst er diskurinn betri en vekur samt enga hrifningu Óhætt er að segja aö Kodak disktæknin brjóti i blað i þróun Ijósmyndavéla. Þessi litla og handhæga vél hefur „nóg pláss fyrir háþróaðan, tölvustýrðan rafeíndabónað, rafknóna filmu- færslu, sjálfvirka lýsingu og innbyggt flass og allt er þetta knóið með innbyggðri lithium rafhlööu, eins og segir í auglýs- ingu frá Hans Petersen. Ragnar Th. Sigurðsson prófaði vél af gerðinni 6000 (sem kostaði fyrir jólin 1.360) og staðfestir að vélin sé handhæg og lipur, og það stenst að hón hleður upp flassiö með sekóndu millibili. Ljóst er að vélin er stór framför frá Insta- matic vélunum hvað skerpu snert- ir og ættu venjulegar fjölskyldu- myndir að stórbatna með notkun þessara véla, sem seldar eru í fjórum gerðum. Ragnar er ekki ánægöur með upplausnargetu linsu og telur myndirnar ekki nógu skarpar, en þá miðar hann frekar við venju- legar 35 mm vélar sem margir unglingar telja of flóknar og dýrar til að nota til töku venjulegra partí- og ferðalagamynda. Þær þrjár myndir hér á síðunni, sem eru einmitt venjulegar fjölskyldu- albómsmyndir, sýna svo ekki verður um villst að þær sóma sér mjög þokkalega sem slíkar en gæðamyndir verða áfram teknar á betri gerðir35 mm véla. Við höfðum samband við kunn- áttumann á sviði framköllunar og sagöi hann að þaö hefði valdiö sér vonbrigðum að áfram fær fólk myndir með mjög yfirlýstum and- litum þótt þaö taki á diskinn en munurinn á Instamatic myndun- um væri einkum sá að fólk fengi oft hreyfðar myndir ór þeim vél- um og þá eðlilega ót ór fókus, en slíkt ætti sér ekki stað í disknum og teldist það mikil framför. Hann benti á að það kynni ekki góðri lukku að stýra þegar fólk geymdi vél sína með filmu í kannski í hálft ár inni í skáp. Myndir, sem koma ór slíkri geymslu, verða aldrei eins góðar og myndir sem eru teknar á vikutíma eða svo. SJ 8. tbl. Víkan 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.