Vikan - 24.02.1983, Qupperneq 42
voru frekar daufar þar sem sá
hárprúöi var ekki mættur og lítiö
bitastætt í fréttunum, fór hún að
sofa.
Inn í draum hennar slæddist
hinn sómakæri herra Barker og
henni fannst hún segja viö hann:
„Heyrðu, Doug, ef þú hefur
eitthvaö út á vinnuna hjá mér aö
setja eru mér allar leiöir færar
annars staöar.” Og í því hringdi
síminn á skrifstofunni. Hún var
ergileg yfir trufluninni og ætlaöi
ekki aö svara en þegar hún
vaknaði í myrkrinu áttaöi hún sig.
Hvorki herra Barker né skrif-
stofan komu þessu máli viö. Hún
sneri sér viö og kveikti á nátt-
lampanum. Klukkan var kortér
yfir tólf. Hún tók upp tólið og
þrýsti því að eyranu.
„ Ní u-s j ö-níu-þr ír. ”
Þögn. Hún endurtók númerið og
bætti viö. „Halló? Hverer þetta?”
Hún endurtók spurninguna meö
áherslu á fyrsta orðinu.
Augnabliki síðar var lagt á.
6. KAFLI
Maureen fannst hún hafa
sloppið vel. „Hugsaðu þér bara ef
hann heföi dembt yfir þig
skömmum og klámi. Systir mín
lenti í því. Hún var margar vikur
aöná sér.”
„Eg held ég hefði heldur kosið
aö hann segði eitthvaö. Þögnin var
svo óhugnanleg.”
„Það er þaö sem æsir þá upp.
Þeir halla sér bara aftur á bak og
hlusta. Systir mín lenti í því líka.
Þaö var þegar hún bjó í einu af
þessum sóöahverfum og hún...”
„Það geri ég þó ekki. Þetta er í
fyrsta sinn sem ég fæ svona
hringingu.”
„Nú er hann meö númeriö þitt,”
sagöi Maureen glaðbeitt, „hann á
ábyggilega eftir aö hringja oftar.”
„Eg þakka.”
„Blástu í flautu í eyraö á
honum. Þá hættir hann.”
„Vonandi hefur þú rétt fyrir
þér. Eg svaf varla dúr þaö sem
eftir var næturinnar. Ertu
upptekin í kvöld, Maureen? Mér
dattíhug...”
„Eg er að fara í veggbolta-
keppni. Eg spila með B-liðinu . .
.ég held ég sé vitlaus. Samt gott
upp á aukakílóin. Viltu prófa?
Þetta er reglulega gaman. Því
ekki aö koma með og horfa á?”
„Það gæti verið. Eg ætti senni-
lega að fara meira út á kvöldin.
Hvar spiliðþið?”
Skrifstofuhúsgögn
Hjá okkur fáið þið aiiar
gerðir af vönduðum
og sterkum SKRiF-
STOFUHUSGÖGNUM
Sendum
um landallt.
Skrifborð, 3 stærðir.
Vélritunarborð, fri-
standandi og föst.
Tölvuborð.
Hiiiueiningar, ýmsar
útfærslur.
Léttir skermveggir, 4
stærðir.
Skrifborðsstólar
Msitfwofíjatt i/jar/l Staðgreiðs/uafsláttur
ívclC/alcuCI VGwU eða góðir greiðsluskilmálar.
Fundaborð, 3 stærðir,
Fundastóiar með örm-
um og án arma
Raðstólar, hornborð,
blómakassar,
3 stærðir.
HÚSGÖGN
Skemmuvegi 4,
Kópavogi,
Sími 73100
42 Vikan 8. tbl.