Vikan - 24.02.1983, Blaðsíða 44
FRAMHAIDSSA GA
þess aö þetta gerðist svo stuttu
eftir að hinu lauk. Eg hafði
áhyggjur af því fyrst í stað en
varla lengur.”
Hacker horfði fast á hana.
„Hvenær var hringt til þín? ”
„A miðnætti síðastliðna nótt.
Þegar ég svaraði lagði hann á.”
„Þú gerir ráð fyrir að það hafi
verið karlmaður.”
„Eg geri það víst, en auðvitaö
hefði þaö getaö verið hver sem er,
jafnvel skakkt númer. ’ ’
„Þá skulum við hætta að fjasa
um það,” ráðlagði Maureen.
„Lindy langar til að læra vegg-
bolta, Adrian. Eru nokkur laus
pláss?”
„Hún er að gera að gamni
sínu,” sagði Lindy snöggt.
„Eg Kom bara til að horfa á. Eg
ætla aö fara að koma mér heim.
Þaö er óþarfi fyrir ykkur að fara
strax, Maureen. Eg tek strætis-
vagn.”
„Jock er enn að leika. Hann
veröur marga klukkutíma. ”
„Kom Jock með ykkur hing-
að? ” spurði Hacker.
LEIKSOPPUR
Þessi breiðleiti vinur Maureen,
sem hún notaði sem varaskeifu,
hafði sótt þær á skrifstofuna og
síðan borðuðu þau heldur subbu-
lega hamborgaramáltíö saman
áður en þau héldu í veggbolta-
klúbbinn. Lindy fannst hún hafa
ónáðað þau nóg þó Jock heföi tekiö
henni vel. Hún kláraði drykkinn
og stóð upp. „Eg fer þá. Þakka þér
fyrir að bjóöa mér með, Maureen.
Þetta var skemmtilegt. Sjáumst í
fyrramálið.”
„A sama leiöindastaðnum,”
sagði Maureen þurrlega.
Hacker hafði líka staðið upp.
„Eg verð að fara,” sagði hann við
Lindy. „Get égkeyrt þigheim?”
Um leið og bíllinn stoppaði opn-
aði hún dyrnar og hélt þeim opn-
um. „Þetta var ákaflega vingjarn-
legt af þér,” sagði hún. „Ég þakka
þér kærlega fyrir. Vona að þú haf-
ir ekki þurft að taka á þig mjög
stóran krók.”
„Tæpa þrjá kílómetra.”
Hún vissi ekki hvernig hún átti
að skilja þetta. Hún brölti út úr
bílnum, sneri sér við og sagöi:
„Má kannski bjóða þér kaffi-
sopa?”
„Já,” sagði hann aö bragöi og
drap á vélinni.
Hún var felmtri slegin og horfði
á hann sljóum augum þegar hann
steig út úr bílnum hinum megin og
sem hann var að læsa bílnum
reyndi hún árangurslaust að
muna hvort hún ætti kaffi í skápn-
um eða mjólk í ísskápnum. Hún
gat ekki hugsað. Hafði hún munaö
eftir að þurrka af, þvo eldhúsgólf-
ið, ganga frá fötum? Hann gekk
kringum bílinn til hennar, horfði á
húsið og síðan út á götuna.
„Skemmtilega afskekkt,” sagði
hann. „Hefurðu veriö hér lengi?”
„Rúmt ár.” Röddin var skræk.
„Jú, það er rólegt hér. Enginn
gegnumakstur.”
Hún hélt af stað eftir malbikaðri
stéttinni að útidyrunum með hann
á eftir sér. Hún hafði ákafan hjart-
slátt. Þegar inn í anddyriö kom
stansaði Hacker til að dást að
plastkerum með blómum sem
skreyttu vegginn á móti stiganum.
Hún reyndi að láta sér detta í hug
eitthvað sniðugt að segja en án
árangurs. Hún gekk á undan upp
stigann og tókst að finna lykilinn
án þess aö missa töskuna. Það
varö óþægileg þögn meöan hún
baslaði viö aö koma lyklinum í
skrána og sneri þessa tvo
nauðsynlegu snúninga til vinstri,
en einmitt það jók mjög á tauga-
óstyrk hennar. Hún hélt dyrunum
opnumfyrirhann.
„Beintáfram.”
Hún gekk á eftir honum inn í
setustofuna og létti mjög þegar
hún sá að þar var allt í röð og
reglu. Svolítill vottur af sjálfs-
trausti gægðist upp á yfirborðið.
„Tylltu þér niður einhvers stað-
ar,” sagði hún og lagði frá sér
töskuna. Síðan dró hún glugga-
tjöldin fyrir. Þegar hún sneri sér
við hafði hann komið sér þægilega
fyrir við bókahilluna og horföi á
skemmdirnar í loftinu. Augu
þeirra mættust og hann brosti um
leið og hann benti á skemmdirnar.
, .Hvenær f ærðu gert við þetta ? ’ ’
,, A f immtudaginn. ’ ’
„Þá þarftuaðvera heima.”
„Herra Barker hefur gefið mér
frí þanndag.”
„Agætur náungi, Doug. Ertu
ánægð með vinnuna í auglýsinga-
deildinni?”
„Það er ágætt. Svolítið tilbreyt-
ingarlaust á köflum.”
„Eg væri dauður. Sykur og
rjóma, takk. Mjólk, alveg sama.
Hefuröu nokkurn tíma hugsað um
fréttadeildina?”
„Almáttugur, nei,” sagði hún úr
HVÍLD - MEGRUN
LÍKAMSRÆKT -
ÚTIVERA
Sérhœft starfsfólk svo sem lœknir, íþrótta
kennarar, sjúkraþjálfi, leiðsögumenn og
lipurt hótelstarfsfólk mun sjá til þess að
þér líði ------
sem s'
best./ Dagskrá:
/ ÁRDEGI:
/ KI. 08.00 Vakið gegnum hátalarakerfi hússins með\
/ léttritónlistoglíkamsteygium.
I Kl. 08.15 Borið á herbergi heitt sítrónuvatn,
drukkið meðan klæðst er (íþróttagalli).
Kl. 08.30 Morgunleikfimií sal, -málog vog.
Kl. 09.30 Morgunverður
Ki. 10.30 Sund-guía hoiturpottur.
Kl. 11.00 Frjáls tími.
Kl. 12.00 Hádegisverður
SÍÐDEGI:
Kl. 13.00 Hvíld.
Kl. 14.00 Gönguferð með fararstjóra.
Kl. 15.00 Létt miðdagskaffi.
Kl. 15.30 Nudd
Kl. 17.00 Frjálstími.
Kl. 19.00 Kvöldverður
KVÖLD
Kl. 20.30 Kvöldvaka.
Stutt ganga fyrir svefn
Þarftu ad missa
nokkur aukakíló ?
Þarfnastu hvíldar?
Viltu losna frá amstri hversdagsins?
VIÐ HÖFUM LAUSNINA
Vertu velkominn
fJj- H6tef
Verð pr. mann á viku
Kr. 5.980, - í2 m. m/baði
Kr. 6.480,- í 1 m. m/baði
Innifalið í bessu verði er:
Gisting. allar máltidir, lœknisskodun,
sund, gufa, heitur pottur, leikfimi,
nudd, gönguferdir med fararstjórn,
frœðileg erindi, flug og transfer flug
viillur — hótel — flugvöllur.
ATH. Hámarksfjöldi í hópi er 20 manns.
Askilinn er réttur til breytinga á ofannreindu verö
5 I
» E
o rc
Husavik
Simi 96-41220
1. vika 06/02 — 13/02 '83
2. vika 13/02 — 20/02 '83
3. vika 06/03 — 13/03 '83
4. vika 27/03 — 03/01 '83
5. vika 03/04 — 10/04 '83
6. vika 10/04 — 17/04 '83
SÖLUAÐILAR: Hótel Húsavik
Ferðaskrifstofa ríkisins
Ferðaskrifstofan Úrval
Ferðaskrifstofan Útsýn
og ferðaskrifstofur víða um land.
44 Vikan 8. tbl.