Vikan - 24.02.1983, Síða 51
Draumar
Um uppþvott
og jafnrétti
Kæri draumráðandil
Mig langar að biðja þig
að ráða fyrir mig draum
sem mig dreymdi fyrir
stuttu. Mér finnst hann
boða eitthvað — en hvað?
Mér fannst ég vera í eld-
húsi mínu. Þar voru
krakkar, sem ég þekki, við
skulum kalla þá, R, X, Z
og Y. (Eg sá aldrei Y en
mér fannst hann vera
þarna.)
Það var þannig að í vask-
inum var fullt af óhreinu
leirtaui, meira að segja fína
leirtauið hennar mömmu
sem hún notar aðeins við
hátíðleg tækifæri. Mér
fannst svo óréttlátt að ég
skyldi eiga að vaska upþ
ein svo að ég sneri mér að
R og sagði: ,,Þú ert hér í
fæði en gerir aldrei neitt að
gagni svo að mér finnst að
þú ættir að vaska upp
núna. ” En R sagði bara nei.
R var með þrjú handklæði
um hálsinn á sér, eitt
grænt, eitt blátt og hið
þriðja var hvítt og bleikt.
(Eg átti þessi handklæði.)
Eg gekk að R og þreif af
henni handklæðin mín og
jafnvel sjampóið mitt. Og
ég þefaði af háriR. Jú, hún
notaði mitt sjampó.
X, Z og Y höfðu fylgst
meðþrasi okkar. Svo fóru Z
og Y að tala um hvar við
kvenfólkið stæðum ef við
hefðum ekki karlmenn við
hliðina á okkur, því ég
hefði beðiðþá um hjálp en
þeir ekki viljað veita hana.
Svo rifumst við þrjú, ég,
Z og Y, um þetta. Eg sagði
að kvenfólk gæti alveg
staðið á eigin fótum. Svona
hélt þetta áfram. Eg sneri
mér að uppvaskinu en brátt
voru Z ogY búnir að reita
mig svo til reiði að ég var
farin að gráta við uppvask-
ið, en stóð samt alltaf á
mínu.
Þá kom X og sagði (blíð-
lega) við mig að þeir hefðu
reitt mig til reiði og spurði
mig hvort allt væri í lagi
með mig. Eg man ekki
hverju ég svaraði en þar
með var draumurinn
búinn.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna,
Drauma-Dísa
Reiði í einhvers garð í
draumi er yfirleitt bending
um að sá hinn sami muni
þér fremur hliðhollur í vök-
unni. Að deilunum skyldi
svo ijúka með gráti þínum
bendir ennfremur til þess
að margt muni snúast þér í
hag á næstunni. Nöfn
viðmælendanna og litur
handklæðanna undirstrika
einungis þessa merkingu.
Inn í þessi tákn blandast
svo ýmsar hugsanir þínar í
vökunni sem betra mun að
taka ekki of mikið mark á
við ráðningu draumsins en
segja ýmislegt um þig sjálfa
ef vel er að gáð. Hvað það
svo er er betra að þú segir
þér sjálf og dragir af eigin
ályktanir.
Móðir í fangelsi
Kæri draumráðandil
Mig langar til að biðja
þig að ráða eftirfarandi
draum. Mig dreymdi að ég
væri í stóru húsi með fullt
af öðrum stelpum. Það var
eins og við værum að
skemmta okkur. Allt í einu
koma löggur og þær segja
að það eigi að taka okkur
fastar. Við skildum ekkert í
þessu en fengum enga skýr-
ingu. Þá birtist móðir mín
sem er dáin. Eg var alveg
steinhissa að sjá hana. Hún
var brún og sælleg. Hún
segir að hún skuli fara í
fangelsið fyrir mig. Eg vildi
ekki að hún færi en hún fór
samt. Það fór ein kona fyrir
hverja stelpu. Þegar kon-
urnar voru farnar sá ég að
móðir mín hafði skilið eftir
steinlausan silfurhring.
Þá er þessi draumur ekki
lengri. Með fyrirfram þökk
fyrir birtinguna.
1099—0041
Þú mátt búast við að
hljóta einhvern heiður eða
upphefð — ef til vill eftir
að hafa verið misskilin
óheppilega í einhverju
máli (jafnvel svo að það
hafi bakað þér tímabundin
óþægindi). Framundan er
gott tímabil með auknu
frelsi til að gera það sem
þig langar og þú munt
njóta þess vel að eiga góða
vini sem sýna þér falslausa
og fallega vináttu. Flest er
jákvætt um þennan draum
að segja og eitthvað (líklega
í sambandi við þann heiður
sem þér verður sýndur)
veldur þér mikilli gleði og
eykur sjálfstraust þitt.
í himnaríki
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja
þig um að ráða eftirfarandi
draum. Eg var komin til
himnarikis og þar hitti ég
langömmu, langafa og tvo
gamla frændur mína (þau
eru öll dáin). Guð kallaði á
okkur í mat. Meðan ég var
að borða kom til mín strák-
ur á svipuðum aldri og ég.
Við ræddum um vinkonu
okkar og um hvað þau
niðrt á jörðinni tala nú fall-
ega um okkur. Þau heima
voru að ákveða hvaða prest-
ur ætti að jarða mig, það
komu tveir til greina. Það
var skrifað um mig mjög
lofsamlega t Morgunblað-
ið. Enginn minntist á hvað
ég hefði verið frek og
leiðinleg, allir töluðu um
hvað ég hefði nú verið góð
og þannig. Þegar jarðarför-
in yrði myndi skólafélags-
stjórnin í skólanum bera
mig niður í garð og kirkjan
vera troðfull.
Sigga
Þessi draumur veit á
mjög jákvæða þróun eða
stefnubreytingu í lífi þínu,
þar sem greinilegt er að
mikil gæfa fylgir þér og þú
verður miklu jákvæðari og
betri á alla lund en áður.
Draumurinn er jafnframt
áminning um að láta ekki
glepjast út í einhverja vit-
leysu og á því leikur enginn
vafi að þetta fólk sem birt-
ist þér í draumi vill þér
mjög vel, vakir yfir velferð
þinni og vill ekki að þú
flækist í neitt misjafnt. Það
virðist líka harla ólíklegt úr
þessu því draumatáknin
eru á eina lund: Þú átt fall-
egt líf framundan og þig
mun fátt skorta sem máli
skiptir. Vera má að þú gift-
ist ung en þá verður þú án
efa að vanda valið vel og
gefa þér nokkurn umhugs-
unartíma, flest í draumn-
um styður það.
8. tbl. Vikan 51