Vikan


Vikan - 24.02.1983, Blaðsíða 63

Vikan - 24.02.1983, Blaðsíða 63
Pósturinn Hér er allt eins og þegar ég fór. Hvað hefurðu nú verið að gera af þér? Eg skil ekki hvernig þú ferð að því að veiða svona mörg fiðr- ildi með svona oggulitlum títu- prjónum. b Fæ ekki fullnægingu Kœri Póstur. Vandamál mitt er alvar- legt ad mínu mati. Eg hef leitað að svari við því í helstu bókum um þau mál- efni, svo sem í Allt sem þú vilt vita um kgnlífið, Hverju svarar lœknirinn og Við erum saman, en ekki fundið svar. Vandamálið er að ég bgrj- aði með 21 árs strák þegar ég var 15 ára og þá vildi hann skiljanlega hafa sam- farir við mig um helgar. En vandamálið er það að ég fékk aldrei fullnœgingu, fannst þetta bara vont og hafði svo sem engar áhgggj- ur af því þá. Hélt bara að þetta vœri eðlilegt svona fgrst. En núna er hann 23 ára og ég 17, búin að vera saman í 2 ár og ennþá fœ ég ekki fullnœgingu og blotna heldur ekki að neðan við ert- ingu. Hvað getur valdið þessu? Við liœttum saman í tvo mánuði í haust og þá svaf ég hjá öðrum strák, en það var alveg sama. Erþetta nokkuð eðlilegt? Geta regk- ingar haft áhrif á kgnlíf? Regndu nú að hjálpa mér, þetta veldur mér áligggjum. Svo við snúum okkur að öðru: Geturðu gefiö mér góða aðferð tilþess að fitna? Hvað þarf langt nám til þess að verða tannlœknir? Þakka tilvonandi birtingu. Dísa Vandamál þitt, Dísa, er vandamál samtímans. Þaö er búið aö gera kynlífið að íþrótt og dægradvöl í stað þess að leyfa því að njóta sín sem tjáningarmáta. Fullnæging er hjá flest- um samspil hugar og lík- ama. Því miður er ekki sjálfgefiö að konan fái nokkurn tíma fullnægju, hve oft sem hún hefur sam- farir og hve marga karla sem hún prófar. Sér- fræöinga greinir á um hvers vegna þetta sé en lík- legt má telja að þaö sé meðal annars vegna þess að oft er konan ekki tilbúin að hef ja kynlíf þótt hún geri þaö — af því að hún telur sér trú um að „allir geri það” og þetta sé það sem tilheyri og við eigi. Kynlíf manna hefur tví- þættan tilgang. Annars vegar er það til að sjá um viðhald tegundarinnar. Hins vegar er það útrás fyrir löngun til að njóta annars einstaklings. Því miöur er ekki sjálfgefiö að einstaklingarnir fyllist alltaf löngun samtímis. Vegna geröar kynfæranna getur karlmaðurinn ekki tekið þátt í samförum nema hann hafi löngunina. Þaö geta konur hins vegar og gera það oft. Með því valda þær sjálfum sér tjóni. Kynlífiö verður að skyldustarfi, oft óþægilegu og leiðinlegu í staö þess aö vera ljúf nautn. Kona sem hefur samfarir nauðug viljug eða algjörlega áhugalaus er mjög ólíkleg til að fá fullnægingu eða „blotna að neðan”. Rakinn kemur úr leggöngunum þegar konan verður æst og undirbýr þau fyrir samfar- irnar. Þú nefnir nokkrar bækur um kynferðismál en nefnir ekki þá einu sem að ein- hverju gagni fjallar um fullnægingu kvenna. Það er Nýi kvennafræðarinn og bendir Pósturinn þér sér- staklega á að lesa bls. 197— 218 og íhuga vel og hrein- skilnislega. Einnig þyrftir þú að geta rætt þessi mál vel og hreinskilnislega við vin þinn. Hafðu ekki samfarir nema þig sjálfa langi til þess. Fáöu vin þinn til að sýna meiri blíöu og þolin- mæði, láttu hann gera það viö þig sem þér finnst gott. Vertu ekki hrædd við að prófa nýjar leiðir, gleymdu öllum gömlum kreddum. Flestir karlmenn vilja aö konur þeirra njóti samfar- anna en stundum vita þeir ekki hvernig þeir eiga að fara að. Blíða, hlýja og um- hyggja fyrir makanum er nauðsynleg ef fólk á að geta notið samfara. Andlegar tilfinningar skipta máli ekki síður en líkamlegar. Kíktu líka í bókina Sjafnar- yndi, en það er kynferöis- fræöslubók sem fjallar fyrst og fremst um hvernig menn geta notið kynlífsins sem best. Þú gætir einnig (eftir aö hafa lesið þér til) rætt þessi mál við lækni. Læknar eru bundnir trúnaðareiöi og mannslíkaminn þeirra viðfangsefni. Reykingar verka ekki vel á líkamann yfirleitt, eins og þú sjálfsagt veist, og þá varla á kynlífið þó Póstur- inn geti ekki bent á áreiðanlegar heimildir fyrir því aö þær hafi bein áhrif á það. Til að fitna? Þaö hefur gefist mörgum vel að hætta að reykja til að auka hold- in. Þar að auki borða mikiö af kolvetnaríkum en holl- um mat, svo sem grófu brauði. Tannlæknanám tekur sex ár að loknu stúdentsprófi. HEFUR ÞU LESID VANDAÐ MANAÐARRIT SEMER ÍSÉRFLOKKIÁ ÍSLANDI 8. tbl. Vikan 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.