Vikan - 19.05.1983, Blaðsíða 19
fyrir lestir en þaö hefur enginn
getaö fundið leið til aö búa til
frystibíla.” O’Neil sló á
teikningarnar. „Þangaö til núna.
Ég var aö fá einkaleyfi á þessu.
Þetta á eftir að umbylta öllum
matvælaiönaöi, David.”
David leit á teikningarnar. „Ég
er hræddur um að ég ráöi ekki
mikið af þessu, herra O’Neil.”
„Þaö skiptir ekki máli. Þaö sem
ég er aö leita aö er fjármagn og
einhver sem getur stjórnaö fyrir-
tækinu. Þetta eru engir tryllings-
legir draumórar. Ég er búinn að
tala við helstu matvæla-
framleiöendurna. Þetta veröur
stórt — stærra en þú getur gert
þér í hugarlund. Ég þarf einhvern
eins og þig.”
„Aöalstöðvar fyrirtækisins
veröa í San Francisco,” bætti
Josephine viö.
David sat þegjandi, melti þaö
sem hann var aö heyra. „Segiröu
aö þú sért búinn aö fá einkaleyfi á
þessu?”
„Það er rétt. Ég er tilbúinn til
hreyfings.”
„Væri þér sama þó ég fengi
teikningarnar lánaðar og sýndi
þær manni?”
„Ég hef ekkert á móti því. ”
David fór meö lestinni til
Jóhannesarborgar og mælti sér
mót við Edward Broderick,
eiganda stærstu kjötpökkunar-
verksmiöju í Suður-Afríku.
„Mig langar að leita álits hjá
þér á nokkru.” David rétti honum
teikningarnar. „Ég þarf að vita
hvort þetta er framkvæmanlegt.”
„Ég veit ekkert um frosinn mat
eöa sendiferðabíla, en ég veit um
fólk sem þekkir inn á slíkt. Ef þú
kemur aftur síödegis í dag verð ég
búinn aö stefna hingað nokkrum
sérfræðingum fyrir þig, David.”
Klukkan fjögur síðdegis fór
David aftur í pökkunarverksmiðj-
una. Hann tók eftir aö hann var
taugaóstyrkur, fullur af óvissu,
vegna þess aö hann var ekki viss
um hvernig hann vildi aö þessi
fundur færi. Fyrir tveimur vikum
heföi hann hlegið aö hverjum
þeim sem heföi nefnt aö hann færi
einhvern tíma frá Kruger-Brent.
Það var hluti af honum. Hann
hefði hlegiö enn hærra heföi
einhver sagt honum aö hann
myndi íhuga aö stýra litlu
matvælafyrirtæki í San
Francisco. Þetta var geöveiki, að
einu undanskildu: Josephine
O’Neil.
Það voru tveir menn inni hjá
Edward Broderick. „Þetta eru dr.
Crawford og herra Kaufman.
David Blackwell.”
fyrir þá sem vilja
vera svolátió
„ spes”
Alfa Romeo verksmiðjurnar hafa frá upphafi
framleitt bíla sem þurft hafa að ganga í gegnum
hinar erfiðustu raunir á kappakstursbrautum um
allan heim. Hin fjölmörgu gullverðlaun sem Alfa
Roraeo hefur sótt á þessar brautir eru ótvíræð
sönnun þess að vel hefur til tekist.
Við framleiðslu á fólksbílum fyrir almennan
markað hafa verksmiðjurnar gætt þess fullkom-
lega að viðhalda hinum ótrúlega góðu aksturs-
eiginleikum kappakstursbílanna, kraftinum og
öryggisbúnaði. Ennfremur vekur hin sérstæða
og fallega ítalska teikning þessa bíls cills staðar
verðskuldaða athygh.
Verð aðeins frá kr. 239.554
gengi 01.03. '83
Þú ert svolítið mikið „Spes“
ef þú ekur á Alfa Romeo
JÖFUR hr
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600