Vikan - 19.05.1983, Blaðsíða 22
Best er að flutningakerfið se þaul-
skipulagt.
LOGSTKOS
Mörg fyrirtæki senda vörur sinar til
einnar miðstöðvar.
Logistikos — vöruferli — nær yfir
öll stig framleiðsluflutnings.
„Rétt vara í réttu magni á réttum
stað á réttum tíma."
Frá alda öðli hefur mikið veriö
skrifað og sagt um stríð. Enn þann
dag í dag telja menn fram þá kosti
sem fylgt hafa stríðsundirbúningi
og -æfingum. Nýlega komu saman
nær eitt hundrað fulltrúar ís-
lenskra iðnrekenda til að bolla-
leggja um faggrein sem á rætur að
rekja til stríðsstjórnlistar.
Gríska heitið logistikos merkir
að reikna út eða reikna meö. Á
énsku er talað um listina að flytja
og koma fyrir herafla og herföng-
um, það er að segja logistics. í
framleiðsluiðnaði nota menn þetta
heiti um aðflutninga til verk-
smiöju, skipulag og tækni við
geymslu, flutninga innan verk-
smiðju og loks dreifingu söluvör-
unnar.
Athugun meðal 10 íslenskra iðn-
fyrirtækja á þessum þætti fram-
leiðsluferlisins leiddi nýlega í ljós
ýmsar athyglisverðar staðreynd-
ir. Fjárfestingar í tækjum og
búnaði til flutninga og geymslu
eru oft tilviljanakenndar. Stöðlun
flutningatækja er óalgeng, of
mikiö er um litlar einingar og
einnig óalgengt að umbúðir séu
staðlaöar. Oft er vinnuaðstaða
erfið, aðstaða til móttöku á hrá-
vörum og afhendingar á söluvöru
slæm og hljótast af þessu miklar,
dýrar tafir.
Framleiðsluiðnaður byggir ekki
lengur á frumvinnslu allra hluta
vörunnar, sífellt vex sú tilhneiging
að framleiðsla sé að verulegum
hluta samsetning á vörum frá öðr-
um framleiðendum. Japanir hafa
náð mjög langt í að beita aðferða-
fræði sem miðar aö sparnaði við
alla að- og fráflutninga á fram-
leiðsluvörum. Á ráðstefnu Félags
íslenskra iðnrekenda á Hótel Loft-
leiðum í aprílmánuði síðastliðnum
var lögð áhersla á að boðorðið ætti
að vera: „Rétt vara í réttu magni
á réttum stað á réttum tíma.”
Sé framleiðsluferlið vel skipu-
lagt frá byrjun til enda tekst oftast
að halda birgðum í lágmarki, án
þess að þjónustan bíði tjón af.
Þegar birgðum er haldiö í lág-
marki sparast geymslurými og
ekki þarf að verja eins miklum
peningum í birgðir af hráefnum
eða söluvöru. „Það er hægt að
spara allt að 10% veltunnar ef allt
flutningakerfi fyrirtækisins er
þaulskipulagt samkvæmt þessari
flutningatækni,” sagði Thomas
Möller verkfræðingur. sem flutti
eitt af erindunum á ráðstefnunni.
Jón Sævar Jónsson lýsti sænsku
dæmi um notkun þessarar aðferð-
ar: Öll lyfjafyrirtæki í Svíþjóð
senda vörur sínar til einnar
miðstöðvar sem sér um að geyma
vörurnar og dreifa þeim til lyfja-
búða. Vörurnar berast þessu stóra
birgðahúsi, eru flokkaðar og send-
ar eftir pöntun til lyfjabúðanna í
sérstökum kössum sem hæfa
flutningabílunum og svo framveg-
is.
Thomas Möller sagði að kostn-
aður við flutninga og geymsluá.
heildina litiö væri í Bretlandi um
25 prósent af þjóðarframleiðslu en
í Bandaríkjunum 27 prósent. Hann
vildi halda því fram að þessi
kostnaður væri verulega hærri
hérlendis eða um 40 prósent af
þjóðarframleiðslunni. Því taldi
Thomas fulla ástæðu til aö huga
vel að þessum málum og sagði
dæmin sýna að lækka mætti þenn-
an flutningakostnað um allt að 50
prósent.
Miðað við þær upplýsingar sem
fram komu í áðurgetinni könnun
Thomasar Möllers og Jóns Sævars
Jónssonar á 10 iðnfyrirtækjum
ætti að vera hægt að spara veru-
legt fjármagn með því að huga
vandlega að heildarsamhengi að-
flutninga, birgðahalds og vöru-
dreifingar í íslenskum iðnaði.
m
12 Vikan 20. tbl.