Vikan - 19.05.1983, Blaðsíða 25
Undir dynjandi
kiappi
Bryndís Björk og Sigrún Liija lóttstigar
i einu atriðinu.
Nýlega útskrifaðist 50 manna
hópur úr skóla Módelsamtakanna
á tískusýningu á Hótel Loftleiðum.
Ekki hafði allt þetta fólk í hyggju
að leita að starfi í módelheimin-
um. Tvenns konar námskeið voru
í gangi hjá samtökunum í vetur.
Annars vegar námskeið fyrir
verðandi sýningarfólk og hins
vegar námskeið fyrir fólk sem
hafði áhuga á að öðlast meira
öryggi í framkomu og æfingu í að
koma fram. Þau námskeiö voru
tvískipt, byrjunar- og framhalds-
námskeið.
Unnur Arngrímsdóttir og Her-
mann Ragnar Stefánsson fylgdu
hinum nýútskrifuðu fyrstu sporin,
síðan fylgdust prófdómarar með
frammistöðunni. Einn þeirra er
Vikulesendum að góðu kunnur,
Hreinn Halldórsson sem fyrst kom
fram í keppninni Vikan velur
módel 1980. „Hann er nýkominn af
„herra” -námskeiði í London,”
sagði Unnur Arngrímsdóttir í
spjalli við Vikuna. „Þetta nám-
skeið er mjög eftirsótt og er við
London Academy of Modeling.”
Hreinn var jafnframt kennari á
námskeiðum Módelsamtakanna í
vetur. I fyrsta hópnum sem fram
kom voru kornungar stelpur, létt-
ar í spori og ekki var á þeim aö sjá
nein merki um að þær hefðu veriö
dauðkvíðnar að koma fram opin-
berlega í fyrsta skipti. Þær komu
fyrst fram ein og ein, síðan í smá-
hópum og loks allar saman. Að
lokum var þeim launaö með dynj-
andi lófaklappi og afhent skirteini
upp á þátttökuna í námskeiöinu.
Næsti hópur var einnig ein-
göngu skipaður kvenfólki, lítið eitt
eldra en sá fyrri og frammistaðan
með jafnmiklum ágætum og 1
fyrsta hópnum. Þær fengu einnig
sína umbun, lófaklapp og skír-
' teini, og síðan var smákaffihlé og
þá gafst tækifæri til að spjalla við
nokkra þátttakendur í
námskeiðunum.
Eftir kaffihlé kom fram hópur,
nokkuð öðruvísi samsettur en
tveir fyrri. Karlmenn reyndust
nefnilega vera í meirihluta í þess-
um hópi. Þetta námskeiö var snið-
iö fyrir þá sem hafa áhuga á að
gera sýningarstörf aö atvinnu
sinni um lengri eða skemmri
tíma. Sýning þeirra var mjög
tískusýningarleg og það vakti sér-
staka athygli að enginn staðall á
hæö eða þyngd virtist hafa tak-
markaö þátttöku. Þarna voru
sýnd létt og ljós föt fyrir alla og
sýningin öllum sem að stóðu til
sóma, eins og annað þetta kvöld.
Þrátt fyrir kvíöa, svita og tar, sem
fylgja taugaspennunni þegar kom-
iö er fram í fyrsta sinn opinber-
lega, var heildarmyndin mjög góö
og margir hafa sjálfsagt prísað
sig sæla að hafa staðist þessa eld-
raun og tvíeflst eftir á.
Þaö segir kannski sína sögu aö
ung systir eins nýbakaðs þing-
manns var í hópi þeirra sem voru
aö útskrifast og heimiliö hafði ver-
iö alveg undirlagt daginn eftir
kosningar, ekki vegna þingmanns-
ins heldur tískusýningarinnar sem
stóð fyrir dyrum.
Texti: Anna
Ljósm.: Ragnar Th. og Kristján Jónasson
Unnur Arngrimsdóttir afhenti þátttakendum viðurkenningar-
skjal i lok námskeiðsins og sú sem hór tekur við skjalinu heitir
Kristin.
20. tbl. Vikan 25