Vikan - 19.05.1983, Blaðsíða 24
Á grænni grein
Kristján Sigurðsson er 18 ára
gamall og var á námskeiði fyrir
verðandi sýningarfólk. I þeim
hópi voru karlmenn í meirihluta.
Hvernig atvikaðist það að þú tókst
þátt í þessu námskeiði, Kristján?
Vinkona mín var beöin um að
taka þátt í þessu námskeiði og ég
fór með henni á þaö. Þetta er
tveggja mánaða námskeið og við
hittumst á hverjum sunnudegi
þann tíma. Það sem mér finnst
maður einkum hafa upp úr því aö
sækja þetta námskeiö er þrennt:
Maður kynnist nýju fólki, lærir
framkomu og svo er þetta gott
tækifæri fyrir þá sem vilja verða
sýningarfólk til aö sýna hvað í því
býr.
Ertu kvíðinn fyrir því að koma
fram íkvöld?
Nei, ég hlakka æðislega til.
Geturðu hugsað þér að leggja
þetta fyrir þig?
Ég hef áhuga á aö leggja þetta
fyrir mig, að minnsta kosti næsta
vetur. Njóta þess á meðan gaman
er að því. Ahugamálin tengjast
tískunni, skemmtanir. músík og
föt.
Eru strákar hættir að vera ragir
við sýningarstörf?
Þetta er allt aö breytast. Þeir
voru tregir til fyrst en nú eru sem
sagt fleiri strákar en stelpur á
þessu námskeiði.
Hvað er framundan?
Eg er kominn á græna grein,
búinn aö fara í myndatöku til ljós-
myndara sem dreifir myndum af
sýningarfólki í fyrirtækin.
Margtsetn
kom á óvart
Guðbjörg Karlsdóttir er að
verða 47 ára. Hún fór á námskeið
hjá Módelsamtökunum fyrir jól og
síðan á framhaldsnámskeiö sem
hún er nýútskrifuð af.
Hvað var það sem dreif þig á þetta
námskeið, Guðbjörg?
Systir mín ætlaði aö fara á
þetta námskeið og teymdi mig
með og ég sé ekki eftir þeim tíma
sem farið hefur í þetta.
Hvað hefurðu helst lært af nám-
skeiðinu?
A þessu námskeiði, sem núna
var að ljúka, skiptir aðallega máli
hvernig maður gengur og hvernig
maður kemur fram. Við höfum
lært ýmis atriði sem skipta máli í
framkomu, borðsiði til dæmis, og
svo fengum við tilsögn í hár-
greiðslu og snyrtingu. Þegar Her-
mann Ragnar var að sýna okkur
ýmislegt í sambandi viö borðsiði
fannst mér margt koma á óvart,
en svo var mesta furða hvað vel
gekk aö muna það þegar maöur
var búinn að sjá það og hugsa út í
þaö.
Finnst þér þú verða öruggari með
þig eftir að hafa verið á svona
námskeiði?
Mér finnst allt sem viö höfum
lært koma að gagni. Mestan áhuga
hef ég á aö læra aö ganga rétt.
Tilhugsunin aö koma fram fyrir
hóp af fólki í fyrsta skiptiö var
hræðileg en þegar maður byrjaði
aö ganga hugsaði maður ekkert
um fólkið.
Þetta gekk merkilega vel mið-
aö við hvað viö vorum stressaöar.
Öryggi
í framkomu
Guðrún Guðmundsdóttir er 16 ára
og aö verða 17 ára. Hún var á
námskeiöi hjá Módelsamtökunum
fyrir jól, hélt síðan áfram og fór á
„göngunámskeiðið” svonefnda.
Hvað kom þér af stað á námskeið,
Guðrún?
Ég fór meö vinkonum mínum,
okkur langaöi að prófa hvernig
væri.
Og hvernig var?
Þaö sem mér finnst við helst
hafa lært er öryggi í framkomu,
að vita hvernig tískusýningar eru
uppbyggðar og ýmislegt sem við-
kemur fötum og snyrtingu. Og það
var æöislega gaman. Við lærum
sporin sem tískusýningarfólk not-
ar og að koma fram.
Hvað með þessa upptalningu
sem fylgir fyrsta námskeiðinu,
ræðumennsku til dæmis?
Ég kveiö alveg óskaplega fyrir
því aö reyna mig í ræðumennsku
en þegar á hólminn var komið var
þetta allt í lagi. Þetta er þó nokkuö
erfitt allt, sérstaklega að koma
fram fyrir áhorfendur, en ég vil
hvetja alla, bæöi stelpur og
stráka, til að fara á svona nám-
skeiö.
■ Hvort sem fólk hefur áhuga á
lað veröa sýningarfólk seinna meir
leða ekki hefur það gott af aö læra
Iþað sem kennt er þarna, til að
Iverða öruggara með sig.
24 Víkan 20. tbl.
Prófa
eitthvað nýtt
Karólína Björg Porter er 15
ára. Hún var á framhaldsnám-
skeiöi þar sem aöaláherslan var
lögð á að koma fram, öðlast meira
öryggi í því og læra að ganga í takt
við músík, snúninga og annað sem
aðgagni má koma.
Hvað varð til að þú fórst á þetta
námskeið, Karólína?
Ég var að sýna þegar ég var
lítil, 10 ára gömul, og mig langaði
að rif ja þetta upp.
Varstu eitthvað undirbúin þegar
þú fórst að sýna föt fyrst?
Ég fékk auðvitað þjálfun áður
en ég fór að sýna fyrst en ekkert í
líkingu við svona námskeið. Það
eru engin námskeið haldin fyrir
krakka.
Hverjir sækja svona námskeið?
Þaö er mjög algengt að stelpur
fari saman tvær eða þrjár á
svona námskeiö, þær þurfa ekki
endilega að hafa svo mikinn
áhuga á fötum.
Ég hef engan sérstakan áhuga
á fötum, áhugamálin eru allt sem
er skemmtilegt, skíði, dans og aö
kynnast fólki. Mér fannst mest
gaman á námskeiðinu að læra að
ganga og prófa eitthvaö nýtt.