Vikan - 19.05.1983, Blaðsíða 27
inni ága
BRYNJU <
gER
Texti: Hrafnhildur Ljósmyndir: Ragnar Th.
Til eru hús sem eiga sér
skemmtilegri sögu en
önnur. Brynja Benedikts-
dóttir leikstjóri og Er/ingur
Gíslason leikari búa i einu
slíku húsi í Þingholtunum
ásamt syni sínum, Benedikt.
Við báðum Brynju að segja
okkur frá þeim endurbótum
sem þau hjónin hafa gert á
húsinu og leyfa sögunni að
fljóta með.
„Núna þykir ágætt aö búa í gömlu
timburhúsi, en þaö hefur ekki alltaf
verið þannig. Þegar viö fluttum hingað
inn, 1973, þótti hræöilegt aö eiga heima
í slíku húsi og þaö var áreiöanlega
bannaö aö byggja timburhús í Reykja-
vík um þaö leyti. Timburhús þurfa
reglulegt viöhald og láta fljótt á sjá ef
þeim er ekki sinnt. I okkar húsi haföi
ekki veriö búiö í meira en ár og þaö
leyndi sér ekki. Auk þess haföi húsiö
verið múrhúöaö 30 árum áöur og hinir
geigvænlegu ókostir forskalningarinn-
ar svokölluöu voru aö koma í ljós.
Staðurinn freistaði okkar mest. Starfi í
leikhúsinu er þannig háttaö aö vinnu-
túninn hleypur til og frá, frá kl. 10 á
morgnana til miðnættis. Þó eigum viö
alltaf öruggt frí sunnudagsmorgna og
mánudagskvöld.
Meö því aö kaupa þetta hús sáum viö
fram á aö komast heim á milli, í
staöinn fyrir aö hanga niöri í leikhúsi
allan daginn og vera bókstaflega
aldrei heima. Svo þetta breytti ansi
miklu. Þaö munar öllu aö geta hlaupið
heim á þremur eöa fjórum mínútum.
Og svo er gott aö hafa pláss. Þaö er svo
oft sem maöur verður aö taka vinnuna
heim, þegar maöur hefur engan staö til
aö æfa á. Ahugamannafélög, fátæk
leikfélög og svo Þjóöleikhúsiö, þar er
nú ekki heldur ennþá viöunandi
æfingaaðstaða. Og þaö var ósjaldan
sem t.d. bæöi Inuk og Flugleikur var
æft hér í gamla daga, bæöi hér og úti í
garöi. Þetta er því á vissan hátt vinnu-
staöur um leiö og heimili.
Þaö er ljómandi aö búa hér og við
erum alltaf aö uppgötva ný skúmaskot
í húsinu. Þaö er heilmikill kjallari
undir öllu húsinu, meö endalausu'm
kompum, því Carl heitinn Ölsen kunni
sannarlega að skipuleggja í kringum
sig. Áriö 1942 breytti hann húsinu og
bætti viö þaö eftir sínu höföi. Hann hafði
geymslu fyrir bæöi köld og heit vín því
hann haföi lager af vínum hér. Maöur
sér þaö á hillunum. En það var ein
kompa sem viö skildum ekkert í aö
alltaf var leki í. Þaö var alltaf raki í
þeirri kompu. Viö héldum aö nú
þyrftum viö aö „brjóta, bæta og laga”,
eins og viö segjum gjarnan. En þá kom
í ljós aö þessi kompa haföi veriö
vindlageymslan hans Ölsens. Þarna
haföi hann geymt alla vindlana sína.
Eg man vel eftir honum, háöldruöum,
alltaf með digran vindil í munninum,
og í þessari röku vistarveru geymdi
hann Bjarna frá Vogi og fleiri úrvals
tegundir.
Aöur fyrr var svo eldhúsiö þarna
niðri í kjallaranum og þar var allur
matur unninn. Þar voru þrjár elda-
vélar: kolaeldavél, mjög góö og gömul,
og svo þessi rafmagnseldavél, ein af
þeim fyrstu sem komu til landsins, og
hún skartar nú í borðstofunni. Einnig
var þá gömul Rafha eldavél í
eldhúsinu.
Uppi í risinu, eöa hanabjálkanum,
eru líka pínulítil herbergi undir súö.
Dóttursonur Olsenhjónanna sagöi mér
einhvern tíma aö risið heföi verið
kallaö „þrælabúöir”, í gamni auövitað,
af vinnukonunum, því þær bjuggu þar.
Viö vitum ekki upp á hár hvenær
húsiö var byggt en lóöin var mæld út og
tilbúin 1901 og síöan höfum viö frétt af
því aö húsiö hafi verið notað sem veö
áriö 1905. Húsiö byggöi Oddur Gíslason
yfirdómari, síöar sýslumaöur á
Isafiröi. Olsen var síöasti eigandi á
undan okkur, keypti húsiö árið 1942.
Margir kannast viö Olsen, hann
stofnaöi meöal annars Almennar
tryggingar, sem nú eiga afmæli, atti
þær reyndar líka. Einnig Nathan og
Olsen. Þar áöur áttu húsiö Tulinius og
Beck.
Svo er lítiö, skritið skrúöhús í
garöinum, ég veit ekki hvaö þaö er
gamalt. Eg veit bara aö þar drukku
Olsenhjónin te og börnin súkkulaöi á
sumrin. Og flötin þar fyrir framan var
notuö til aö spila krikket.
20. tbl. Vikan 27