Vikan


Vikan - 19.05.1983, Síða 46

Vikan - 19.05.1983, Síða 46
FRAMHALDSSAGA Ég veit líka aö þú vilt skipuleggja alla sýninguna, samanber kvöldiö í kvöld. En þú getur þaö ekki. Ekki alla leiö eða allan tímann. Ekki meömér.” Hann beygði sig til að leita að skó, setti hann svo upp og hoppaði á sama staö. „Þetta er fáránlegt! Allt þetta ósnertanlega, það ólík- lega, efnafræöin, það sem við ráð- um ekki við gengur eins og í sögu.” Hann stóð kyrr og hélt á hinum skónum. „Er þaö ekki? Það er öðruvísi. Við snertumst á réttan hátt, hlæjum á réttan hátt. Hef ég rangt fyrir mér? ” „Nei.” „Hvað er þá svona hræöilegt? ” Hún tiplaði spori aftar. „Suzannah, ég verð að vita það. Ég skal gefa þessu allan tíma í heiminum. En ef þín hugmynd um fullkomna hamingju — eða vel- gengni — um að vera eitthvað — er aö telja peninga undir tíu feta háu lofti — ef þú skilgreinir. . . jæja, ég veit ekki hvort ég vil vera......” Hann veifaði skónum, vildi ekki ljúka við setninguna. Hún nálgaðist svefnherbergis- dyrnar. „Ég er ekki sú sem þú ert aðgeramig, Coby.” „Ég hélt að þú vildir... þú varst einu sinni gift, þegar allt kemur til alls. Ég hélt að þú vildir meira. Viltu þaö ekki? Heldurðu aö þú viljir aldrei meira en glæsilega einangrun, einstaka graðfola og góöan mat?” „Ég gæti elskað þig,” hvíslaði hún. „Það er ýmislegt af lífi mínu sem ég vildi deila með einhverj- Auðveld svör um. En þú ert að biðja mig um að færa þér það á silfurbakka, fórna því.” Hann leit á hana, greip svo aftur um höfuðið. „Því ekki... aðláta þetta líða?” Hún veifaði hendinni, hreinsaði loftið. „Það er ýmislegt gott á milli okkar.” „Það er þaö.” Hann rétti aftur úr sér. „Ég veit aö ég er ekki ann- að en flón að halda þessu til streitu núna. En það er ekki tíminn sem við erum að tala um, er það? Við erum að tala um einhvern tíma og einhvern tíma vil ég að líf mitt komi heim og saman, verði heilt. Ég vil ekki eilífar barnapíur, fólk í hálfu starfi sem dansar inn og út úr lífi mínu. Ég vil fá vin, félaga ekki síöur en ástkonu. Ég veit að við erum sérstök. Ef við værum það ekki hefði ég aldrei byrjað á þessu. Þaö myndi ekki skipta máli. En, Suzannah, það er vegna þess að þú ert sérstök, vegna þess að hluti af mér er verulega hrædd- ur. Ég vil ekki halda áfram að vera aö jafna mig á ýmsu. ” „Og þaö sem ég þarf er að vera Suzannah. Ekki eiginkona ein- hvers eða móðir eða herbergis- félagi. Þaö leysir konur upp, dreg- ur úr þeim mátt. Þú skilur ekki við hverju er búist, hvað er falið í orð- unum kona, móðir, eiginkona. Þið mynduð báðir nota mig þangað til ekkert er eftir. Þið mynduð ekki ætla ykkur það en þið mynduð gera það. Það er gildran, þannig eru hlutirnir.” Hann virtist ekki vita sitt rjúkandi ráð. „Ertu hrædd um að tapa framaferlinum, að vera hlekkjuð við eldhúsvaskinn? Ég er með ráðskonu nú þegar. Ég þarf ekki að búa með henni. Hvaö held- urðuaðég sé?” „Pakkinn er logandi fallegur — þess vegna gleypa svona margar konur við honum — en hvort sem þú ert aðlaðandi eða ekki er þetta pakki og hann er með sprengju. Ég myndi glata öllu. Ég myndi enda eins og helmingur kvenn- anna í kringum mig, full af ein- tómu hatri og örvæntingu og dauö- umdraumum.” „Hverslags málæði er þetta? Hvernig varð ég að hættulegu óargadýri? Drottinn minn, hvað í ósköpunum gengur á? Þú veist — þú hreinlega veist hvernig ég yrði vegna þess að ég er karlkyns? Þú yrðir að halda mér og öllum öðr- um mönnum á mottunni vegna þess að annars myndum við eyði- leggja þig? Suzannah — þú og ég — við erum sama tegund! ’ ’ „Ekki berja í vegginn minn! ” „Drottinn minn, hvað þú gerir mig reiðan. Þú hörfar, er það mál- ið? Þú! Kjarkaða, fífldjarfa þú! Ég hef nóg rúm fyrir frama minn og fjölskyldu. Því þá ekki þú?” Vöðvarnir í hálsi hennar voru þandir og henni stóð á sama hver heyrði hvaö vegna þess aö karl- maðurinn þarna haföi ekki heyrt neitt. „Þú notfærir þér konur, það er ástæðan!” Hann gapti af undrun. Hún gat ekki hætt. „Karlmenn eru feður, fíflið þitt! Það er auð- velt aö búa til barn! Það er auð- velt að vera eiginmaður! Karl- menn bjuggu til reglurnar og það er ástæðan!” Hann beið þangað til hún var hætt að titra. „Ja hérna,” sagöi hann. „Ekki hlutlæg píluskífa rauðsokka.” Eftir nokkra stund hættu sinarn- ar á hálsi hennar að kippast til og húðhitinn varð eðlilegur. En þegar reiðin hélt henni ekki lengur uppi datt hún næstum og hún tróðst framhjá honum til aö grípa um bakið á sófanum og halda sér í það. Hann horfði dapur á hana, hristi svo höfuðið og talaði blíðlega. „Suzannah, hvernig varð ég óvin- ur þinn?” Hann opnaði dyrnar en tók þá eftir skólausum fæti sínum og stóð ringlaður þangað til hann kom auga á skóinn og gekk að honum til að taka hann. „Þú hefur lagt saman það sem þú hefur séð, Suzannah, en þú hefur lagt rangt saman og þannig færðu núll. Ekk- ert. Ekki leika á sjálfa þig. Þú get- ur falið þaö með hverri þeirri rök- fræði sem er í tísku þessa dagana, en það sem hræðir er sambandið. Heimspeki þín er of nýtískuleg, kemur of vel heim og saman, er andskotann of mikið af metsölu- bók dagsins í dag. Reiði og and- vörp. Afneitun þess að hamingja sé möguleg. Andskotinn — heimskt fólk sem veit ekki hvaö er í tísku, sem hefur ekki komist að því að karlmenn og konur geti ekki annað en eyðilagt hvert ann- Við eigum ávallt tilá lager hellur eins og myndin sýnir. Kanfsteinn \ \ ^GanostettajieHurT^ Framleiðnnt pinnig milliveggjahellnr 5,7 og 10 sm Ennfremur veitum við heimsendingarþjónustu, góða greiðsluskilmála eða staðgreiðsluafslátt. Vinnuhœlið á Ciila-'ttrauni sími3i04O9). 46 Vikan 20. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.