Vikan


Vikan - 22.09.1983, Page 50

Vikan - 22.09.1983, Page 50
E/dhús Vikunnar Umsjón: Jón Ásgeir Lasanja (Lasagne) Ravíólí með Tómatsósa kryddaðri tómatsósu Um það bil 12 blöð af Lasagne-núðlum eða 1 uppskrift af núðlum (sjá meðf. I. Fylling: 315 grömrn kjöthakk 1 laukur 1 hvítlauksrif 2 matskeiðar olía 1 dós afhýddir tómatar 1 /2 dðs sveþpir 1 bolli rauðvín óreganó, salt, pipar 1 hnífsoddur sykur 1 sléttfull matskeið sósuduft (dökk sósa) Ljós sðsa: 1 pakkiljós sósa (.t hálfan lítra) 1 /2 lítri mjólk 125 grömm rifinn gouda-ostur salt parmesan-ostur smjörklíþa Fyllingin: Losið kjöthakkið í sundur, blandið teningssneiddum lauk og hvítlauk saman við og snöggsteikið í sjóðheitri olíu. Bætið tómötum, sneiddum sveppum og vökvanum af hvom tveggja út í og sjóðið um það bil 10 mínútur við vægan hita í loklausu íláti. Bætið rauðvíni og kryddi saman við og látið suðuna koma upp. Gerið sósuna þykka með sósudufti og bragðbætið eftir þörfum. Sósan: Blandið saman mjólk og sósudufti og hitið. Látið ostinn bráðna í sósunni og bragðbætið með salti. Fletjið núðludeigið þar til það er 1 mm á þykkt. Skerið það í 10 cm langa og 6 cm breiða ferhyrninga. Sjóðið deigbútana þar til þeir em fastir í sér og látið þá liggja á diskaþurrku meðan vatnið rennur af. Berið feiti innan í bökunarform og raðið í það lögum af núðlum, kjötfyllingu og sósu. Efsta lagið á að vera þunnt ostasósulag. Sáldrið parmesan-osti yfír og smjörklípum. Bakið lasanja-réttinn neðst í 220 gráða heitum ofni í 20 mínútur. Berið salat fram með lasönjunni. 1 uppskrift núðludeig (sjá meðf.) 1 eggjahvita til að pensla með Fylling: 250 grömm kjöthakk 3 pylsur 2 laukar 1 —2 hvítlauksrif 2 matskeiðar olía, salt, pipar, rósmarín, thymian, óreganó 1 lítil dðs tómatmauk 2 matskeiðar sýrður rjómi 1 teskeið Ijóst sósuduft (úr bréfi) Snöggsteikið kjöthakk, pylsubita, lauk- og hvítlauksteninga í olíunni og saxið á meðan kjötið í sundur með spaða. Bætið saman við kryddi, tómatmauki, sýrðum rjóma og sósudufti. Látið sjóða í öllu saman. Bragðbætið. Fletjið núðludeigið út í tvo eins milli- metra þykka fleti. Setjið eina teskeið af fyll- ingu á annan deighlutann með 4 sentímetra millibili. Penslið báða deighluta að innan með eggjahvítum. Leggið lausa deighlutann yfír hinn. Ýtið deiginu niður á milli fyllingarinnar með skaftinu á sleif, langs og þvers. Skerið ravíólíið í bita með bylgjulaga skurðhjóli. Sjóðið í 8 mínútur í miklu saltvatni sem blandað hefur verið í 3 matskeiðum af olíu. Veiðið úr vatninu og látið renna af bitun- um. Berið fram ásamt sósu og parmesan- osti. 1 heildós af tómötum 1 laukur 1 hvítlauksrif 2 matskeiðar smjör 2 matskeiðarþurrt sérrí salt, pipar 1 hnífsoddur sykur Merjið tómatana í mauk og þrýstið í gegnum sigti. Fínsaxið lauk og hvítlauk, glærsteikið í smjöri, bætið tómatmaukinu saman við og látið sjóða í öllu. Bragðbætið sósuna. Núðludeig, ljósar núðlur 375 grömm hveiti 1 hnífsoddur salt 2 matskeiðar vatn 1 matskeið olía 3 egg Setjið hveitið á plötu og myndið holu í miðjunni. Bætið öllu öðru x miðjuna og hnoðið deigið í að minnsta kosti 5 mínútur þannig að það verði teygjanlegt og hægt sé að rúlla það út án þess að það rifni. Geymið deigið í 30 mínútur í lokuðu íláti eða vafíð í diskaþurrku. Skiptið því síðan í 3—4 hluta og fletjið það út á hveitiborinni plötu svo að það verði 1 mm þykkt. Síðan má skera úr því núðlur með hvaða lögun sem vill. 50 Vlkan 38. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.