Vikan


Vikan - 28.06.1984, Side 20

Vikan - 28.06.1984, Side 20
Texti: Sigurður Tómasson Ljósm.: Ragnar Th. Margir muna eftir því þegar Pétur Hoff- mann hélt sýningu í Reykjavík á munum, gulli og gersemum sem hann hafði fundið á öskuhaugunum. Þar var margt að finna. Skartgripi, silfurborðbúnað og jafnvel ridd- arakross fálkaorðunnar. í þá daga voru öskuhaugar Reykjavíkur vestur við Selsvör þar sem seinna kom sólarlagsbraut, eftir- lætisstaður ungra elskenda á dollaragrínum. Nú er ekki margt á þeim stað sem minnir á forna frægð. Það er helst að strákarnir í vesturbænum verði varir við leifarnar af þessum uppgangstímum þegar þeir tína í fjörunni gilda fjársjóði af gömlum fimm- eyringum, tvíeyringum, tíeyringum og krónum. Líklega voru djásn Péturs H. Saló- monssonar verðmætari á veraldlegan mælikvarða en sjóður af tærðum fimm- eyringum fundinn í jörð er merkilegri í augum barnanna. En þótt ekki sé neinu fleygt í sjóinn vestan við bæinn eru öskuhaugarnir ekki úr sögunni. Þeir eru nú við Gufunes þar sem Reykjavíkurborg hefur mikinn viðbúnað, mannafla og stórvirkar vélar til að koma í lóg því sem samborgararnir vilja losa sig við. VIKAN skrapp í heimsókn þarna uppeftir einn góðviðrisdaginn. Menningarstigið sést á haugunum Það er óneitanlega sérkennileg stemmning á ruslahaugunum. Blaöamanni kemur í hug það sem vinur hans, íslenskur listmálari, sagöi um ruslahauga: „Á öskuhaugunum færðu nákvæmasta vitneskju um menningar- stig þjóðanna. Ef ég kem í erlenda borg legg ég ævinlega leið mína á haugana til þess að sjá hvernig ástandið er.” Ekki var þægilegt að dæma um menningar- ástandiö í Reykjavík þennan góðviðrisdag þegar við vorum á öskuhaugum borgarinnar í Gufunesi. Þetta virtist vera eintómt rusl. Kannski er það vísbending um ástandið. Kannski á þetta bara að vera svona. Annars ganga ótrúlegustu sögur um það sem hent er á þessum stað og opinberar skýrslur staðfesta að miklu er hent. Það er til að mynda merki- leg staðreynd í skóglausu landi að dag hvern skuli vera grafin í jörð fleiri tonn af timbri. Þá er ótalið gífurlegt magn af pappír og alls kyns málmar. Auk þessa fleygja ein- staklingar miklu af ýmiss konar munum, reiðhjólum, heimilistækjum, gömlum hús- gögnum og raunar flestu sem nöfnum tjáir að nefna. Bannað að hirða Það er bannað að hirða nokkurn hlut á haugunum. Ævinlega er samt töluvert hirt og 'j§5§H „Það var agalegt að horfa á þetta til að byrja með." Þórður Eyjólfsson fyrir framan varðskýlið á tippnum. Lítið um guH, mikið af pappír Meðan við stóðum við komu margir bílar eins og þessi með sag af trésmíðaverkstæðum. Víða er farið að brúka þetta til upphitunar. ZO Vikan Z6. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.