Vikan - 28.06.1984, Page 30
Æ fleiri hús með viti
Víða um veröld byggja menn nú skrifstofu-
hallir sem innihalda orkustýrikerfi og full-
kominn tölvuaðgang. Engin manneskja sinnir
upphitun nýja City Place skýjakljúfsins í
Hartford í Bandaríkjunum, þar hanga
skynjarar um alla veggi og gefa tölvu-
miðstöðinni merki ef hitastigiö breytist að
einhverju marki. Við svo búið sendir
stjórntölvan boö til loftræstikerfisins að koma
aftur á réttu hitastigi.
Komi upp eldur í City Place veröa skynj-
ararnir varir við það og kveða til slökkviliðið.
Jafnframt lætur tölvan loftræstikerfið draga
úr súrefnismagni í loftinu á hæðunum undir
og yfir eldinum. Loftræstikerfiö sogar eitur-
gufurnar burt. Þegar slökkviliðsstjóri mætir
loksins gefur tölvan honum nýjustu upp-
lýsingar á sérstöku stjórnborði sem gerir
honum kleift að senda menn sína á rétta staði
í risabyggingunni.
Ljósrofar eru ekkert venjulegir þarna. Á
sumum skrifstofum sjá innrauðir skynjarar
um að slökkva ljósin 12 mínútum eftir að
síðasti maður yfirgefur skrifstofuna.
Viti borin hús af þessu tagi sjá nú óðum
dagsins ljós. Þau geta — eins og mennirnir —
skynjað umhverfiö og aðlagað sig breytingum
í því. Heilinn er myndaður úr tölvum og taug-
arnar úr glertrefjaþráðum — hárfínum gler-
þráðum sem bera boð með ljóshraða. Þeir
sem hafast við í þessum byggingum eru á
hraðri leið í gegnum nýjustu tæknibyltinguna,
tölvu- og fjarskiptabyltinguna.
í mörgum þessara bygginga geta leigj-
endur fengið aðgang að nýjasta og full-
komnasta tölvubúnaöi, gagnavinnslukerfum
og öðru slíku. Dýrar fjárfestingar í slíkum
búnaöi nýtast fjöldanum öllum af fyrir-
tækjum sem hvert og eitt hefði annars ekki
efni á aðgangi að svo fullkomnum græjum og
hugbúnaði.
I City Place-skýjakljúfnum geta leigjendur
leigt tölvur, símabúnað og annað frá eigand-
anum, United Technologies Building Systems
Company. Ef leigjandi atvinnuhúsnæðisins á
tölvubúnað getur hann stungið honum í
samband við glertrefja-kaplakerfi hússins og
þannig komist í samband við risatölvu í bygg-
ingunni og notfært sér forrit af ótal gerðum.
Tvö stórfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa
í Boston er Massachusetts Transporta-
tion-byggingin hituð af fólki, ekki olíu.
Hlýtt loft frá skrifstofunum (1) er leitt í
stokkana þar sem það hitar vatn í pípum
(2). Upphitað vatnið rennur niður í kjall-
ara þar sem hitajafnari (3) flytur varmann
yfir í annað vatnskerfi sem hitar upp
húsið. Ákveðinn hluti af vatninu rennur í
geymslutanka í kjallaranum og myndar
varabirgðir. Hinn hluti vatnsins í hitunar-
kerfinu fer í veggina á ytri herbergjunum
(4) og hitar loftið sem kemur inn í bygg-
inguna (5).
tekið sig saman um að útvíkka þessa aðferð
við að gera húsin viti borin. Olympia & York
verktakafyrirtækið, sem á 23 skrifstofuskýja-
kljúfa víðs vegar um Bandaríkin, og United
Telecommunications hafa tekiö saman
höndum um tölvunetkerfið OlympiaNet. Það
á að tengja saman borgir og álfur með gervi-
hnöttum, glertrefjakerfum og tölvubúnaði.
Ætlunin er meðal annars að bjóða forstjórum
og öðrum stjórum aðgang að fundahöldum
með notkun sjónvarps. Menn þurfa þá ekki
lengur að ferðast á milli, þeir hittast í
OlympiaNet, augliti til auglitis.
Þetta er nú ekkert. Merkilegasti áfanginn í
tölvuvæöingu skýjakljúfanna, fyrir utan hita-
stýringu, öryggiseftirlit og annað, er tölvu-
miöstöðin. Sumir halda því fram að með því
skrefi færist menn stórum nær þeim tíma-
punkti þegar allt innandyra lýtur stjórn tölvu
en ekki mannsheilans.
Orkustýrikerfið í City Place hefur enn ekki
haft tíma til að sanna ágæti sitt, en
sambærilegar byggingar hafa náð
orkunotkun niður um 20 prósent. Sumir
byggingaraðilar hafa meira að segja sam-
tengt orkustýringuna í einni allsherjar miö-
stöð, eins og til dæmis Honeywell í Atlanta í
Georgia-fylki.
Tölvustjórnstöö í einni byggingunni í
Boston heldur uppi hitastiginu í hrollköldu
vetrarveðri — án þess að nýta kyndikerfi með
gamla laginu. Byggingin er hituð með því að
endurnýta hitann sem fólkiö og vélarnar í
byggingunni skapa.
Brátt kemur að því að vitru húsin taka
veðurspár með í reikninginn. Þau munu að
líkindum ráða yfir veðurathugunarbúnaði
uppi á þaki, en líka fá tölvuspár frá Veður-
stofunni. Síðan ákveður örtölva hvernig eigi
að nýta tæknibúnaðinn í byggingunni til aö
bregðast við veðurbreytingum.
Miklir peningar eru í veöi hjá þeim sem
byggja svona tæknibyggingar. En þeir sem
reisa þær telja að framtíöin verði þeim vil-
höll. Fyrirtækin verða að spara orku, þau
vilja hafa aðgang að því nýjasta í fjarskipta-
og tölvutækni. I framtíðinni fer eflaust fjölg-
andi byggingum sem stíga í vitiö og gera
ýmislegt annað en veita þak yfir höfuðið.
Úr Science Digest.
30 Vikan 26. tbl.