Vikan - 28.06.1984, Síða 41
Þýðandi: Anna
— Það verða nú víst ekki margir
af okkar drengjum sem bíta á
þetta agn, sagði kafteinn Bartlett,
en látum oss nú sjá þetta litla,
fallega flugrit með Playboy-
plakatinu aftan á sem áróðurs-
meistararnir okkar hafa útbúið.
Kafteinninn las textann hátt
fyrir flugmennina þrjá:
„Sælir vinir! Við vitum að þið
eruö svangir, etið rætur og trjá-
börk og eruð á mörkum þess að
brotna niður. Við vitum að leið-
togar ykkar halda ykkur skamm-
arlega illa upplýstum, en látið
ekki blekkjast. Kastiö vopnunum,
læðist að næturþeli eftir næsta
göngustíg yfir víglínuna og komið
yfir til okkar, þá munum við gera
ykkur að hamingjusömum kapítal-
listum sem eiga allt! Hjá okkur
fáið þiö allt það kók sem þið getið í
ykkur látið, þið fáið amerískar
sígarettur, King Size, amerískt
kúlutyggjó, þið fáið í hendurnar
litlar og ástfúsar næturklúbba-
stelpur sem allt kunna og þiö fáið
að taka þátt í því villta lífi sem
hermenn okkar lifa í fríum sínum.
Brjótist undan oki kommún-
ismans og komið yfir til okkar á
öruggan hátt. Þá getið þig, strax í
kvöld, gengið syngjandi um
göturnar með eina fúsa undir
báðum höndum. Yeah, man,
soldierboy! Með þetta flugrit í
höndunum er kapítalísk framtíð
ykkar tryggð. See you, friend! ”
Bartlett kafteinn lagði flugritið
ánægður frá sér.
— Hugguleg lítil kveðja, finnst
þér ekki? sagði hann. Nú þurfum
við bara að dreifa nógu mörgum á
réttum stöðum þar sem mest er af
þessum hábölvuðu, skáeygöu
gaurum, í stærstu borginni. Það er
ykkar mál. Þið eigið að fljúga lágt
yfir þéttbýlasta hluta borgarinnar
og fleygja flugritunum niður. . .
ertu að hlusta, Duffy ?
Duffy stendur svefndrukkinn á
svipinn frammi fyrir kafteininum,
hann er syfjulegur svartur
náungi. Hann kippist við og
smellir saman hælunum.
— Heyrði hvert einasta orð, Sir!
Bartlett kafteinn lítur rannsak-
andi á Duffy eins og það renni nú
fyrst upp fyrir honum hver stend-
ur fyrir framan hann.
— Ég bað um þrjá sjálfboðaliöa
í algjört rútínuverkefni og þú hér,
segir hann, þú sem ert búinn að fá
ótal heiðursmerki fyrir hugrekki
og hreysti. Þú sem ert eini
maðurinn sem braust í gegnum
víglínu 44. Þú sem hefur sjö sinn-
um lent í að skotiö væri að þyrl-
unni þinni án þess að fá svo mikið.
sem skrámu. Hvers vegna í
ósköpunum gefur þú þig fram í
svona hversdagslegt og meinlaust
verkefni eins og smáflugritadreif-
ingu á óvinasvæði?
— Ekkert verkefni er hættulaust
í þessu bévítans landi, hvæsir
Duffy, og ef maður á að vinna
verk sitt almennilega þá verður
maður að leggja lífið að veöi
hverja einustu stund.
Svo fara flugmennirnir þrír að
þyrlunum sínum og nokkrum
mínútum síðar fljúga þeir af staö
og hverfa í norðurátt með fullan
farm af dreifibréfum.
Síðdegis kemur Bob Stone til
baka.
— Þetta var leikur einn, sagði
hann.
Klukkustund síðar lendir Larry
Brandon.
— Ekkert mál! sagði hann,
þessir skáeygðu djöflar skutu
nokkrum skotum upp í loftið þegar
ég lét leikföngin falla, annað var
það nú ekki.
Svo litu menn til lofts eftir
þyrlunni hans Duffys. En hún lét á
sér standa. Menn litu hverjir á
aðra, skilningsvana. Þessi stríðs-
hetja, barmfull af heiöurs-
merkjum, ofurhuginn óforbetran-
legi, hetjan hrausta frá víglínu 44,
réð hann virkilega ekki við svona
einfalt verkefni eins og að láta
nokkur flugrit falla yfir borg óvin-
arins?
Dagurinn leið. Ekki sást bóla á
Duffy. Næsti dagur leið. Enn sást
ekkert til hans. Vika leið. Enginn
Duffy. Svo var tilkynnt að hans
væri saknað og ættingjar hans
látnir vita. Og á herstöðinni var
einmitt verið að skjóta saman
fyrir minningarathöfnina þegar
þyrlan hans kom skellandi og
hvínandi. Duffy lenti henni óað-
finnanlega, steig út og kom skæl-
brosandi í áttina til strákanna.
— Hvaö eruð þiö að gera, strák-
ar? sagði hann.
Bartlett kafteinn kom æðandi.
— Hvernig í ósköpunum ferðu
að því að vera heila viku að dreifa
smábunka af flugritum yfir óvina-
borg sem er varla með loftvarna-
byssur? sagði hann rasandi. Ég
heimta skýringu og það er eins
gottaðhún sé góð!
Duffy leit undrandi á yfirmann
sinn.
— Yfir? tautaöi hann skilnings-
sljór. Átti að dreifa þeim yfir borg
ina? Þá hlýt ég að hafa blundaö
þegar þú varst að segja okkur frá
þessu. Og ég sem er búinn að
hlaupa hús úr húsi og láta þessa
snepla inn um bréfalúgurnar!
Qf/nrn/ /cná
STjornuspa
Hruturinn 21. mars-20. april
Rómantíkin gengur
eins og rauður þráöur
í gegnum líf þitt
næstu vikur. Þú mátt
samt ekki missa
sjónar á takmarki
þínu, þú hefur unniö
lengi aö undirbúningi
þess og það mun
takast.
Nautið 21. apríl - 21. maí
Þeir giftu munu eiga
rólega viku fram-
undan. Góður tími til
þess aö ganga frá
öllum lausum endum.
Þeir ógiftu munu
stunda samkvæmis-
lífið grimmt og
hugsanlega kynnast
nýju fólki.
Tviburarnír 22. mai-21. júni
Einhver þér
nákominn hefur lengi
gengiö meö ákveöna
ósk í maganum en þú
hefur ekki verið til-
búinn til aö uppfylla
þá ósk. Nú er rétti
tíminn til aö skoöa
þetta mál nánar og
taka endanlega
ákvöröun.
Krabbinn 22. júni - 23. júli
Þú ert frekar svart-
sýnn aö eðlisfari og
reiknar aldrei meö
því aö hlutirnir gangi
upp hjá þér. Þú færð
mjög spennandi verk-
efni á næstunni og ef
þú vinnur samvisku-
samlega færö þú
góöa umbun.
Ljónið 24. júlí 24. ágúst
Þú hefur nef fyrir
viöskiptum og næstu
vikur verða mjög
heppilegar fyrir f jár-
festingar. Þú varst
búinn aö ákveöa ein-
hverja ferö en lík-
legast veröur þú aö
sætta þig viö breytta
skipulagsskrá.
Meyjan 24. ágúst 23. sept.
Þú færö skemmtileg
skilaboö á næstunni
sem koma líklega til
meö aö breyta á-
ætlunum þínum fyrir
sumariö. Einhver
vina þinna bíður
óþreyjufullur eftir aö
heyra frá þér. Dríföu
í því.
/ m
Vogin 24. sept. - 23. okt
Þar sem þú ert létt-
lyndur og jákvæöur
persónuleiki laöar þú
aö þér fólk. Þú mátt
samt sem áöur ekki
gleyma hverjir eru
vinir þínir því vin-
skapurinn er þér
mjög mikils viröi.
Sporðdfekinn 24. okt. 23. nóv.
Þér þykir mjög
gaman aö rökræða
viö fólk en stundum
getur þaö fariö út í
öfgar. Líklega kemur
þú til meö aö móöga
einhvem vin þinn og
ef þú vilt ekki aö þaö
veröi vont mál
veröur þú aö leysa
)aö fljótt.
Bogmaóurinn 24. nóv. 21. des.
Þér hættir til aö vera
dómharður og ósann-
gjarn. Einhver vina
þinna ber undir þig
ákveðið mál og þú
verður aö reyna einu
sinni aö setja þig í
hans spor og taka
ákvörðun út frá hans
hagsmunum.
Stemgeitin 22. des. 20. jan.
Þú þarft aö taka
erfiða ákvöröun á
næstunni en haföu
engar áhyggjur, þú
tekur alveg rétta
ákvöröun. Þaö hefur
veriö mjög gaman
hjá þér að undan-
förnu og þú kemur til
meö aö skemmta þér
vel á næstunni.
Vatnsbennn21. |an. 19. febr
Sumariö verður mjög
skemmtilegur tími í
lífi þínu og þú hittir
ákveöna persónu sem
þú umgengst mikið á
næstunni. Þú hefur
gert ákveðiö
framtíöarplan sem
kemur til meö aö
standast fullkomlega.
Fiskarmr 20. fcbr. 20. niars
Þú ert næstum því
alltaf ástfanginn og
þetta sumar veröur
ekkert ööruvísi.
Reyndu aö taka lífinu
létt, þaö er í anda
persónuleika þíns.
Láttu ekki óánægju-
nöldur ákveöinnar
persónu fara í
taugarnar á þér.
Z6. tbl. Vikan 41