Vikan - 26.07.1984, Page 3
L 'Wiis.sc 1
».ll||sct
Naturelle Henna hársnyrtivörurrtar urðu til vegna
óska viðskiptavina hins fræga hársnillings og eru
þrautreyndar af fagmönnum. Þær uppfylla því
ákveðnar þarfir og gæði þeirra eru í hæsta flokki
enda eingöngu notuö albestu hráefni.
Hennaduft er muliö, þurrkaö hennalauf og er því
algjörlega náttúrulegt hráefni.
Það er einstaklega auðugt af hárnærandi efnum og
gefur öllu hári fallegan, eðlilegan og lifandi gljáa.
Hennaduftið getur verið annaðhvort litgefandi eða
litlaust.
Naturelle Henna snyrtivörurnar bjóða upp á fjöl-
breytt úrval af sjampóum í litum fyrir alla hárliti,
ólituð fyrir allt hár og ný jurtasjampó, sem næra og
hreinsa þurrt, feitt og eðlilegt hár. Auk þess er boðið
upp á hárnæringu, hárnæringarvax og nærandi
lagningarfroðu, sem hæfir öllu hári. Allt viður-
kenndar gæðavörur, sem hafa öðlast miklar
vinsældir.